Morgunblaðið - 21.08.1986, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 21.08.1986, Qupperneq 56
SEGÐU RNARHÓLL ÞEGAR ÞÚ EERÐ ÚTAÐ BORÐA SÍMI18833------ wgmiÞliifetfe FIMMTUDAGUR 21. AGUST 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Fjögur félög í Hafnarfirði semja við bæinn: Hópur bæjar- starfsmanna fær 10% hækkun FELAGAR í fjórum verkalýðsfélögum í Hafnarfirði, sem vinna hjá bænum eða stofnunum hans og fyrirtækjum, fengu allt að 10% sérstaka launahækkun frá 1. ágúst sl. Samningur um þetta, sem gerður var milli Hafnarfjarðarbæjar og félaganna fjögurra í síðustu viku og gildir til áramóta, tekur til á annað hundrað starfsmanna. „Mest um vert þykir mér, að gert er ráð fyrir að á næsta samn- ingstímabili, sem á að hefjast 1. janúar 1987, geri þessi félög sam- eiginlegan rammasamning við bæinn, eins og hefur gefíst vel í j^Straumsvík," sagði Sigurður Tr. Sigurðsson, varaformaður Verka- mannafélagsins Hlífar í Hafnar- firði, í samtali við blm. Morgun- blaðsins í gær. Hiíf er eitt félaganna, sem gerðu samninginn en hin eru Verkakvennafélagið Framtíðin, Félag jámiðnaðar- manna og Félag byggingariðnað- armanna í Hafnarfírði. „Þá er það einnig nýlunda í þess- um samningi, að gert er ráð fyrir >að allir fái sérstaka desembempp- bót, en slíks hefur aðeins hluti bæjarstarfsmanna notið hingað til,“ sagði Sigurður. „Þessi uppbót er tveggja vikna laun samkvæmt byrjunarþrepi 17. launaflokks, en það gerir nú 8.456 krónur. Þessi upphæð er innifalin í þeim tæpu 10%, sem við teljum til launahækk- unar,“ sagði hann. Guðríður Elíasdóttir, formaður Framtíðarinnar, kvaðst vera ánægð með þann árangur, sem náðst hefði með þessum samningi við bæjarfélagið, enda hefði ekki veitt af að lagfæra kjör hinna iægst launuðu í Hafnarfirði. Konur í Framtíðinni, sem fengu með þess- ""’um hætti 9-10% kauphækkun ti) viðbótar við ASÍ/VSI-samninginn frá í febrúar, em á milli 60 og 70 en að auki fékkst 3% launahækkun til Sóknarkvenna, sem vinna á elli- og hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Þær konur munu einnig vera á milli 60 og 70. Sigurður Tr. Sigurðsson kvað mikla vinnu nú vera framundan við undirbúning þess sameiginlega rammasamnings, sem stefnt væri að á næsta samningstímabili. Hann sagði ekki ákveðið hvort sá samn- ingur yrði gerður til viðbótar væntanlegum heildarsamningi Al- þýðusambands íslands og samtaka atvinnurekenda eða hvort samið yrði alfarið innanbæjar. Ekki náðist í Guðmund Árna Stefánsson, bæjarstjóra í Hafnar- firði, til að fá umsögn hans um þennan samning. Fyrir fáum vik- um tókst samkomulag um tals- verðar kauphækkanir til opinberra starfsmanna í bænum, félaga í Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar- bæjar. Ríkisstjórnin ræðir fjárlög á Þingvöllum SÉRSTAKUR ríkisstjórnarfund- ur um fjárlög næsta árs verður haldinn á Þingvöllum í dag. Þar munu ráðherrar og nokkrir emb- ættismenn fara yfir þau drög að fjárlögum, sem fyrir liggja. Árlega er haldinn sérstakur ríkisstjómarfundur um fjárlögin en síðan er Qárlagafrumvarp fjár- málaráðherra rætt í ríkisstjóminni eftir þörfum þar til það hefur ver- ið lagt fram í þingi og afgreitt þaðan. Þetta mun vera fyrsti vinnu- fundur ríkisstjómarinnar af þessu tagi, sem haldinn er á Þingvöllum. Morgunblaðið/Sig. Sigm. Bitiðítakt Ekkert raskar ró hrossanna þar sem þeir bíta grænt grasið. Vextir afurðalána lækka VEXTIR afurðalána í dollurum lækka í dag um 0,57o, úr 8,25% í 7,75%. Þá lækka einnig lán í SDR úr 8% í 7,75%. Búast má við að vextir afurðalána í pundum og þýskum mörkum lækki einnig þegar líður á árið. Það kann svo að hafa áhrif á aðra vexti hér á landi. Sjá nánar Viðskiptablað, B-l. Skreiðarútflutningur: Fannur til Níg’eríu án greiðslutryggingar Landsbankinn tilkynnti viðskiptamönn- um sínum að ábyrgðin væri þeirra LANDSBANKI Islands hefur sent skeyti til þeirra viðskipta- manna sinna sem eiga skreið um borð í skipi á leið til Nígeríu á vegum Islensku umboðssölunnar hf. og tilkynnt þeim að þessi út- flutningur væri á þeirra eigin ábyrgð vegna þess að bankanum hefði ekki borist fullnægjandi greiðslutrygging frá kaupendum ytra, en bankarnir eiga veð í skreiðinni vegna afurðalána. Fram hefur komið hér í blaðinu að um er að ræða 40 þúsund pakka af skreið. Björgvin Vilmundarson banka- stjóri Landsbankans staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gær. Allt að 2500 grafa viðbót við Foss- vogskirkjugarð Tekin í notkun að ári ÞESSA dagana er verið að Ijúka við stækkun á Fossvogskirkju- garði út í Öskjuhlíðina til vesturs. Er gert ráð fyrir að eftir um það bil ár verði hægt að taka í notkun um 2.000 grafa við- bót við núverandi garð, að sögn Ásbjörns Björnssonar, forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkur. Kirkjugörðunum var úthlutað viðbótarlandi, hálfum þriðja hekt- ara, í Öskjuhlíð fyrir nokkrum árum en þá reyndist iandið of grunnt og ekki grafartækt, að því er Ásbjöm sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. „Þá var ákveðið að leyfa húsbyggjendum að aka moid úr lóðum sínum í landið en þegar átti að fara að hefja undirbúning að frágangi þessarar viðbótar við garðinn reyndist hafa komið of mikið stór- giýti með moldinni. Á síðasta ári tókst samkomulag við Reykjavík- urborg um skiptingu kostnaðar við að flytja gijótið burtu, nokkur hundruð bflhlöss," sagði hann. í vor var lokið við skipulagn- ingu garðsins og verkið síðan boðið út. Ætlunin var að því yrði lokið fyrir 1. september en nú er talið vafasamt að það takist, því enn á eftir að ganga frá götum og gangstígum. „Það er á að giska eitt ár þangað til hægt verður að fara að nota_ þennan hluta garðs- ins,“ sagði Ásbjöm. Hann sagði að í garðinum myndu rúmast 2.000-2.500 graf- ir. í Reykjavíkurprófastsdæmi em árlega grafnir um 1.000 einstakl- ingar en þar sem ýmsir eiga frátekin grafstæði við hlið maka sinna og ástvina í eldri hlutum garðsins og í nýja kirkjugarðinum í Gufunesi taldi hann að þessi við- bót myndi duga talsvert lengur en í tvö ár. Hann sagði að bankinn hefði ekki gefið leyfi fyrir þessum útflutningi og reyndar ekki frétt af honum fym en búið var að skipa skreiðinni út. Hann sagði að bankinn hefði sent viðskiptamönnum sínum skeyt- ið til að þeim væri það alveg ljóst að þeir yrðu að standa í skilum með þau afurðalán sem á skreiðinni hvíldu, hvort sem þeir fengju vör- una greidda eða ekki. Halldór Guðbjarnason banka- stjóri Utvegsbanka íslands sagði að Útvegsbankinn hefði ekki sent sínum viðskipamönnum sérstaka tilkynningu varðandi þennan skreiðarútflutning eins og Lands- bankinn. Hluti eigenda skreiðarinn- ar og útflytjandinn eru í viðskiptum þar. Halldór sagði að öllum aðilum, þar á meðal Seðlabanka, Lands- banka, Útvegsbanka, viðskipta- ráðuneyti og flestum eða öllum eigendum skreiðarinnar hefði verið ljóst með hvaða hætti skreiðin væri flutt út. Um næstu mánaðamót rynnu út innflutningsleyfí fyrir skreið í Nígeríu og gætu liðið ár og dagar þar til þau fengjust aftur. Eigendur skreiðarinnar og útflytj- endur hefðu viljað koma skreiðinni inn í landhelgi Nígeríu áður en leyf- in rynnu út til að lokast ekki inni með hana, þó ekki hefði verið búið að ganga frá greiðslutryggingu. Skreiðin væri í raun í höndum út- flytjandans þar til henni yrði skipað upp og það yrði væntaniega ekki gert fyrr en menn hefðu fullvissu fyrir greiðslu, en á meðan væri unnið að því að fá tryggingar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.