Morgunblaðið - 19.10.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.10.1986, Blaðsíða 6
1 6 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1986 Halldóra Jónsdóttir. Hitað upp fyrir MORFIS Framhaldsskólanemar eru þegar farnir að hita upp fyrir mælsku- og rökræðukeppnina eða MORFÍS keppnina svokölluðu, sem haldin er á hverjum vetri og hefst í nóvember næstkomandi. Síðastliðið miðvikudagskvöld öttu tveir framhaldsskólar saman efnilegum gæðingum sínum, til að reyna snerpu þeirra og frumleik, fyrir hina eiginlegu þolraun, sem hefst í byrjun nóvember. Keppnin var haldin í húsakynnum áskorandans, Kvennaskólans, en til leiks var mætt lið Menntaskólans í Hamrahlíð en síðar í mánuðinum verður svo önnur keppni á milli Kvennaskólans og Menntaskólans í Reykjavík. Húsfyllir var og mikil stemmning. En það sögulega við þessa keppni var, að bæði liðin tefldu eingöngu fram kvenfólki, sem stóðu sig með sóma. Úrslit urðu þau að MH vann en þó með naumum yf irburðum. Laufey Umræðuefnið að þessu sinni var, hvort að leggja ætti til að lýð- veldið ísland yrði lagt niður og yrði þess í stað 53 fylki Banda- ríkja Norður-Ameríku. I málflutningi sínum lögðu MH-ingar, sem mæltu með tillög- unni, út af efnahagslegri hlið málsins, þ.e. að með inngöngu sinni í Bandaríkin myndu Islend- ingar ferðast frá örbyrgð til alsnægta á örskoti. Kvennaskóla- stúlkumar lögðu hins vegar áherslu á, að íslenska þjóðin ætti að vera sjálfstæð og ætti ekki að ganga slflcu risaveldi á hönd, því þá myndi hún týna sjálfri sér. í samtali við Agústu Skúladóttur formann nemendaráðs Kvenna- skólans og Hrafn Jökulsson formann Málfundafélags Kvenna- skólans, en Hrafn hafði það hlutverk með höndum að halda utan um Kvennaskólaliðið, kom fram að síðastliðin vika hefði verið mjög annasöm. Mikil vinna Stungið saman nefjum. Morgunblaðið/RAX. Meðlimir nemendaráðs og málfundafélags Kvennaskólans sátu spennt á fyrsta bekk. hefði verið fólgin í heimildasöfnun og söfnun raka með og móti og gerð uppkasta að ræðum, en regl- an er sú að umræðuefnið er til- kynnt með aðeins viku fyrirvara. Til að æfa liðið fyrir keppnina var efnt til svokallaðrar pressukeppni þar sem sett var saman lið á móti sjálfu keppnisliðinu og þau látin reyna með sér. Einnig tóku stúlk- umar tilsögn í raddbeitingu og framkomu í pontu þannig að sjálf keppnin er bara toppurinn á ísjak- anum. Við spurðum þau Ágústu og Hrafn hvernig Kvennaskólanum hefði gengið í MORFÍS keppn- um hingað til? „Okkur hefur ekki gengið neitt glæsilegá, en það er óþarfí að fara út í þá sálma“, sagði nemendaráðs- formaðurinn. „Þetta á sínar eðli- legu skýringar. í Kvennaskólanum hefur ekkert málfundafélag verið starfandi og því lítið farið fyrir undirbúningi fyrir MORFÍS keppn- imar. Nú er þetta breytt, því fyrir þrem vikum síðan var stofnað Málfundafélag Kvennaskólans, sem þegar hefur staðið fyrir nám- skeiði í ræðumennsku, þar sem við fengum til okkar tvo íeikara til að leiðbeina okkur þau 'Herdísi Þor- valdsdóttur og Emil Gunnar Guðmundsson, einnig fengum við til okkar tvo ræðusnillinga þá Helga Hjörvar úr MH og Þór Jóns- son úr Fjölbrautarskólanum Garðabæ." Hvað þarf góður ræðumaður að hafa til að bera til að ná langt? „Hugarflug og sjálfstraust, nokkuð góða rödd og að kunna að koma fram“, sagði Hrafn. Þurfti þjálfarinn nokkuð að tukta stelpurnar til meðan á æfingum stóð? „Nei, en auðvitað þarf að vera ákveðin agi. En þetta er áhuga- samt fólk, svo það sló aldrei í brýnu með okkur.“ Hver fannst þér, Hrafn, helsti styrkleiki stúlknanna?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.