Morgunblaðið - 19.10.1986, Blaðsíða 16
16 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1986
iHASKOLI ISLANDS
Endurmenntun:
Fyrirsjásudegt að
þessi starfsemi á eftírað vaxa
T"* j j f , • n • ••
Rætt við Margréti S. Björns-
dóttur endurmenntunarstjóra
Háskóla íslands
Margrét S. Bjömsdóttir
Endurmenntun er
nýmæli í starfsemi
Háskóla Islands og á þvi
sviði er nú ör þróun.
Endurmenntunarstjóri
Háskólans er Margrét
S. Björnsdóttir og var
hún spurð hvemig
endurmenntun væri
háttað.
Endurmenntun á vegum
Háskólans takmarkast
enn sem komið er við
námstefnur og nám-
skeiðahald um afmörk-
uð efni, en ekki er um að ræða
samfelt nám á tilteknu sviði. Þessi
námskeið á vegum Háskóla ís-
lands hófust árið 1983 í samvinnu
við Tækniskóla íslands, Bandalag
háskóalmanna og þrjú aðildarfé-
lög BHM, sagði Margrét. Síðan
hafa verið haldin á annað hundrað
námskeið og námsstefnur en þátt-
takendur hafa verið tæplega þijú
þúsund.
Þessi starfsemi eru undir stjóm
10 manna endurmenntunamefnd-
ar, en í nefndinni sitja 5 menn frá
Háskólaráði og fimm frá sam-
starfsaðilum utan Háskólans.
Hugmyndir að námskeiðum
berast endurmenntunamefnd eft-
ir ýmsum leiðum. Frá fræðslu-
nefndum eða stjómum aðildarfé-
laga BHM, frá fulltrúum í
endurmenntunamend, frá kenn-
umm háskólans o. fl. Nokkuð er
um að aðilar utan BHM óski eftir
námskeiðum og er jafnan reynt
að verða við slíkum óskum eftir
því sem tök eru á.
Frá upphafi hefur verið staðið
þannig að endurmenntunamám-
skeiðum að þátttökugjald stendur
undir kennslukostnaði en alla að-
stöðu leggur Háskólinn til. Það
hafa verið vinnuveitendur og
stofnanir sem að mestu eða öllu
leyti hafa kostað þátttakendur á
"þessi námskeið. Námskeiðin era
mjög mislöng - frá 10 og uppí
40 klukkustundir. Próf hafa ekki
verið tekin í lok mámskeiða þann-
ig að þau veita þátttakendum
ekki eiginleg háskólapróf, en eru
þó metin til launa hjá ýmsum
stéttum.
Námskeiðin miðast fyrst og
fremst við háskólamenntað fólk,
en standa þó öllum opin. Eins
hafa verið haldin námskeið fyrir
aðra sem þess óska s.s. Samband
íslenskra auglýsingastofa, Blaða-
mannafélag Islands o. fl.
- Hefur þessi starfsemi farið
vaxandi?
Já, námskeiðum hefur fjölgað
jafnt og þétt síðan þetta hófst og
hefur aukningin verið um 30 pró-
sent milli ára. Sú nýbrejrtni hefur
verið tekin upp að halda nám-
skeið innan fyrirtækja og stofn-
ana og eru t.d. nú í haust 5 slík
námskeið.
- Er í ráði að opna háskólanám
frekar í náinni framtíð?
Fjarkennslunefnd Háskólans,
sem tók til starfa á þessu ári,
fjallar m.a. um það með hvaða
hætti verði unnt að opna háskól-
ann með fjarkennslu. Þessi mál
era nú í athugun en óvíst er enn
hvenær til framkvæmda kemur.
Líta má á endurmenntunarstarfið
sem örlítinn vísi að opnun háskól-
ans. Hvers kyns endur- og
símenntun hefur vaxið mjög er-
lendis á síðastliðnum 10 til 15
árum. Samskonar þróun er að
eiga sér stað hér. Þannig er ótrú-
legur fjöldi af íslenskum aðilum
sem er með starfsemi af þessu
tagi og er fæst af því í tengslum
við hið formlega skólakerfi.
Hingað til hafa okkar námskeið
fyrst og fremst verið um af-
mörkuð efni. Fyrirsjáanlegt er að
þessi starfsemi á eftir að vaxa og
gæti jafnvel orðið um að ræða
samfelt nám á tilteknum sviðum.
- Hvaða námskeið hafa notið
mestra vinsælda af þeim sem í
boði hafa verið?
Það er erfítt að segja. Oft er
verið að kynna nýjungar í greinum
og slík námskeið era alltaf vel
sótt. Mikil eftirspum er einnig
eftir námskeiðum sem tengjast
tölvunámi og tölvunotkun. Greini-
legt er að ýmsir hópar hafa áhuga
á einstökum sviðum tölvunotkun-
ar án þess að ætla sér að leggja
stund á tölvunarfræði sem há-
skólagrein.
Þá lenda ýmsir hópar háskóla-
manna í stjómunar- og rekstrar-
störfum en hafa þó ekki fengið
undirbúnig fyrir slíkt í sínu námi.
Þetta fólk hefur jafnvel áhuga á
samfelldu og dýpra námi í stjóm-
un og rekstri en hægt er að veita
á einstökum námskeiðum. Segja
má að þarfir starfandi háskóla-
manna fyrir endur- og símenntun
séu afar fjölbreyttar og við reyn-
um eftir því sem kostur er að
svara þeim. _ bó.
Guðmundur Magnússon leiðbeinir á n&mskeiði um vexti og peningamál.
maHorka
- SUMARAUKI
Hvernig væri að enda sumarið með sumarauka á Mallorka?
Við bjóðum uppá 3 stuttar ferðir.
Gist verður á okkar rómuðu Royal íbúðarhótelum.
Þetta eru vinsælustu ferðirnar.
Brottfarardagar: 22. október - 8 dagar, uppselt.
29. október - 5 dagar, uppselt.
2. nóvember - 7 dagar, fá sæti laus.
Verð frá kr. 12.800,-
Miðað við 4 saman í íbúð.
md(VTK(
Feröaskrifstofa, Hallveigarstíg 1 - Símar 28388 - 28580.