Morgunblaðið - 19.10.1986, Blaðsíða 12
12 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. OKTOBER 1986
Stærðfræðistofa er hluti
af Raunvísindastofnun og
er hlutverk hennar að sjá
um grunnrannsóknir í
stærðfræði og stærðfræði-
legri eðlisfræði. Stærð-
fræðistofa gegnir svipuðu
hlutverki og Reiknifræði-
stofa, sem einnig heyrir
undir Raunvísindastofnun,
en starfsemi Reiknistofu
snýr meira að hagnýttum
verkefnum og verkefnum í
tölvunarfræði.
HÁSKÓLI
Stærðfræðistofa:
ÍSLANDS
Hér verða menn ein-
faldlega að nota höfuðið
- rætt við Jón Kr. Arason formann
Stærðfræðistofu
Dr. Jón Kr. Arason
það hvaða rannsóknir aðrir starfs-
menn stunda.
— Hvaða verkefni eru nú í
vinnslu hjá Stærðfræðistofu?
Það er ekki auðvelt að gera gein
fyrir þessum verkefnum svo skiljan-
legt sé. Sjálfur er ég með tvö
verkefni. Annað þeirra er alþjóðlegt
og felst í samanburði tveggja sviða
innan algebru. Verkiýsinging er
þannig; Flokkar femingsforma yfír
kropp mynda baug, Wittbaug
kroppsins. Þessi baugur gefur svo
af sér runu af grúpum. Komið hef-
ur í ljós, að fyrstu þijár grúpumar
í þessari mnu em eins og fyrstu
þrjár grúpumar í annarri mnu af
grúpum, sem skilgreind er með
notkun Galois-fræða, án tengsla
við femingsform. Mjög mikilvægt
væri að vita, hvort runumar tvær
em í raun eins. Sérstök aðferð hef-
ur verið þróuð til þess að rannsaka
tengsl mnanna tveggja, og hefur
hún þegar leitt til jákvæðrar niður-
stöðu fyrir vissar gerðir af kropp-
um. (Kroppur er kerfí þar sem
hægt er að leggja saman, draga
frá, margfalda og deila á svipaðan
hátt og gert er með venjulegar töl-
ur). Að þessu verkefni hef ég unnið
í samvinnu við R. Elman í Los
Angeles og B. Jacob í Corvallis.
— Eru einhver tæki notuð við
þessar rannsóknir?
Nei, við getum ekki notað nein
tæki í þessum rannsóknum nema
þá blýant og blöð. Auðvitað skiptir
miklu að hafa aðgang að tímaritum
og bókum.
- Hvað um tölvur?
Tölvumar hafa ekki haft nein
áhrif á abstrakt stærðfræði eins og
hér er stunduð en í reiknifræði hafa
þær hins vegar létt alla útreikn-
inga. Þær hafa reyndar einnig létt
okkur mjög vinnuna við að skrifa
ritgerðir um rannsóknir okkar.
- Það er þá ekki um annað
að ræða en leggja höfuðið í bleyti
þegar stærðfræðirannsóknir eru
annars vegar.
Já, hér verða menn einfaldlega
að nota höfuðið. Það er ekki um
annað að ræða en rannsaka ein-
hveija hugmjmd og kanna hvort
hún gengur eða gengur ekki. En
það getur oft kostað mikla vinnu
áður en það kemur í ljós hvort hug-
myndin er nothæf.
Það er erfítt að gera grein
fyrir því hvað í stærð-
fræðirannsóknum felst,
sagði Jón Kr. Arason
formaður Stærðfræði-
stofu. Hér er ekki fengist við tölur
heldur kerfi af ýmsu tagi m.ö.o. að
finna reglur sem gilda fyrir öll kerfí
af ákveðinni gerð. Slík vinna er
mjög abstrakt og þarf ekki að hafa
nein tengsl við áþreifanlegan raun-
veruleika. Það sem við erum að
fást við er þannig hvergi til nema
í hugheiminum.
- Hversu margir starfa á
Stærðfræðistofu?
Á Stærðfræðistofu starfa fjórir
sérfræðingar og auk þess stunda 5
af kennurum stærðfræðiskorar
sínar rannsóknir þar. Alls vinna því
9 manns á Stærðfræðistofu.
Þau verkefni sem hér er unnið
að eru á ýmsum sviðum s.s. rúm-
fræði, skammtafræði, fallagrein-
ingu og kvíslunarfræði svo eitthvað
sé nefnt.
- Hvað felst í þessum verkefn-
um?
Stærðfræðingar hafa alltaf átt
erfítt með að kynna starfsemi sína
útávið þar sem fjallað um hluti sem
eru langt frá reynsluheimi flestra.
í þessum rannsóknum er ekki fjall-
að um tölur heldur leytað að
almennum reglum um kerfí. Þess
vegna vekja uppgötvanir í stærð-
fræði jafnan litla athygli og eru
venjulega ekki hagnýttar fyrr en
löngu eftir að þær hafa verið gerð-
ar.
Stærðfræði er í eðli sínu alþjóð-
leg. Niðurstöður rannsókna eru
birtar sem ritgerðir í alþjóðlegum
stærðfræðitímaritum, kynntar á al-
þjóðlegum ráðstefnum og sendar
manna á milli í handritsformi. Ár-
angur rannsókna í einu landi hefur
því áhrif á hvað gert verður í öðrum
löndum. Einnig tíðkast að stærð-
fræðingar frá mismunandi löndum
taka sig saman um að vinna að
sameiginlegum verkefnum og höf-
um við verið þátttakendur í mörgum
slíkum.
Starfsmenn Stærðfræðistofu eru
sjálfstæðir að öllu leyti og velja sér
verkefni sjálfír. Þó ég sé forstöðu-
maður hef ég ekkert að segja um
AVV
Meistarafélag húsasmiöa
Stjórn Meistarafélags húsasmiða vill beina því
til félagsmanna sinna og þeirra sem þurfa á þjón-
ustu þeirra að halda, að þeir geri skriflega
samninga um þau verkefni sem vinna á. A skrif-
stofu félagsins eru til einföld samningsform fyrir
smærri verkefni.
Skrifstofa félagsins að Skipholti 70 er opin frá
mánudegi til föstudags frá kl. 13.00—15.00.
Stjórnln.
Munið
OPNA HUSH)
í Háskóla íslands í dag. Alls eru 19 byggingar
opnar fram til kl. 18
.\v°
áskóli íslands