Morgunblaðið - 13.11.1986, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
Stór númer
Nýjar sendingar — Mikið úrval
Bæði fyrir konur og karla
Villibráðakvöld verða á
A. HANSEN dagana 13. -15. nóv
tveitinqahúsiðj
"7A. tlánsen)
Haukur Morthens
ogfélagar skemmta
matargestum
m
og að sjálfsögðu verður
Jón Rafn í stuði á loftinu
Hlaðborð með allri villibráð sem völ er á 1986.
Borðapantanir í síma 651130.
r ^
MEÐEINU
IU
KT^'ii.rTWMriir.n
greiðslukortareikning
SÍMINN ER
691140-
691141
Fráleitt að vekja
máls á gagnkvæm-
um veiðiheimildum
- segir Matthías Bjarnason, við-
skiptaráðherra
„ÉG TEL fráleitt að vekja máls
á gagnkvæmum veiðiheimildum
við þessar þjóðir. Ég tel það held-
ur ekki allra heppilegasta tímann
nú, þar sem sérstaklega þessar
tvær þjóðir, Kanadamenn og
Norðmenn, hafa verið að undir-
bjóða okkur eins og á sild, en
það hefur gert okkur mjög erfitt
fyrir,“ sagði viðskiptaráðherra,
Matthías Bjarnason, viðskipta-
ráðherra, er Morgunblaðið innti
hann álits á hugmyndum sjávar-
útvegsráðherra um gagnkvæmar
veiðiheimildir við erlendar þjóð-
ir.
„Það hefur verið stefna okkar
að losa okkur við útlendinga úr
íslenzkri fiskveiðilögsögu. Það
gerðist á tiltölulega skömmum tíma
eftir að landhelgin hafði verið færð
út í 200 mílur. Hér hafa þrjár þjóð-
ir mjög takmörkuð fískveiðiréttindi,
alveg sáralítil, sem engu máli
skipta, en margar aðrar hafa sótzt
eftir þeim, meðal annars þjóðir
Evrópubandalagsins og fleiri. Þessi
hugmynd kemur mér algjörlega á
óvart. Það fyrsta sem ég veit um
hana er að lesa um þetta í Morgun-
blaðinu á sunnudag. Ég minnist
þess ekki að þetta hafí nokkum
tímann verið rætt í Ríkisstjóminni,"
sagði Matthías Bjamason.
Æskileg hugmynd
- segir Kristján Ragnarsson um hug-
myndir um samninga um gagnkvæm
ar fiskveiðiheimildir við aðrar þjóðir
„ÉG tel ekki miklar líkur á að af samningum um gagnkvæmar veiði-
heimildir við aðrar þjóðir geti orðið. Mér finnst hugmyndin eðlileg
og æskilegt að af henni gæti orðið, en ég óttast að svo verði ekki,“
sagði Kristján Ragnarsson, formaður LIÚ, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Eins þessi mál standa núna,
getum við íslendingar ekki treyst á
neina aðra en okkur sjálfa. Þess
vegna verðum við að umgangast
fískistofnana þannig að við getum
verið eins öruggir og unnt er um
nægilegt veiðanlegt magn í sjónum.
Hitt fínnst mér æskilegt, að við
gætum, ef sérstaklega illa stendur
á hjá okkur og ef illa stæði hjá
öðrum þjóðum, náð gagnkvæmum
samningum eins og fram hefur
komið hjá sjávarútvegsráðherra. í
þessu efni er ekki hægt að þyggja
veiðiheimildir án þesss að láta eitt-
hvað í staðinn. Ég er hræddur um
að okkur fínnist við alltaf hafa lítið
að láta aðra fá,“ sagði Kristján
Ragnarsson.
Uppfinning Islend-
ings vekur athygli
Pusterur moi
de frosné láse
Jónshúsi.
í BERLINGSKE Tidende var nýlega grein um eina af mörgum upp-
finningum Jóhannesar Pálssonar, íslenska uppfinningamannsins, sem
búsettur hefur verið í Kaupmannahöfn undanfarin ár. Er það lása-
þíðarinn hans, sem þarna er vakin athygli á, en frá honum var sagt
í Morgunblaðinu í fyrravetur.
Lásaþíðarinn er lítill stautur op-
inn í annan endann og með götum
á botni, nógu lítill til að geta hang-
ið með á lyklakippunni. Segir í
Berlingi, að fyrirtækið Dancool
framleiði tækið sem hefur fengið
nafnið „Iceblow". Tækið er til að
hjálpa bílstjórum í vetrarhörkum,
sem ekki komast inn í bfla sína, af
því að lásinn er frosinn fastur.
Lásaþíðaranum er stungið inn í lás-
inn, svo blæs bflstjórinn þrisvar til
fjórum sinnum í rörið og það er
allur galdurinn. Hélan, sem mynd-
ast við andardráttinn er kyrr inni
í tækinu og hurðin opnast með rykk.
Uppfínningin er ekki dýrari en svo
að hún getur verið auglýsingagjöf
fyrirtækja með heimilisfangi og
símanúmeri þeirra.
Jóhannes segir í samtali við
fréttaritara, að Falck fyrirtækið,
sem hefúr ijölda hjálpar- og sjúkra-
bfla, leggi nú inn stóra pöntun á
lásaþíðaranum, ætli hann jafnvel
til gjafa, enda Falck-bflar oft kallað-
ir af óþolinmóðum bfleigendum
margan vetrarmorguninn. Þá mun
Esso verða söluaðili að hinum nýja
og handhæga grip.
í blaðinu er lýst, hvemig þíðarinn
var þrautreyndur áður en hann var
færður á markaðinn. Bfllás var sett-
ur í vatnsbala, sem geymdur var í
frysti í sólarhring við 18 stiga frost.
Lásinn var svo tekinn upp, litla
rörið sett í hann og blásið og lásinn
opnaðist strax og lyklinum var snú-
ið. Getur nokkur verið hissa á að
það var ÍS-lendingur, sem hefur
Af Philip Jmrgmten
Iceblow hedder apparatet,
aom firmaet Dancool nu in-
troducerer pi det danske
marked til frelse af mange
svovlende vinterbilister,
som ikke kan fi adgang til
deres bil, fordi lisen er fros-
set fast.
En enkel, lille cylinder,
som kan sidde i negleringen,
stikkes ind i lisen. Derefter
saetter den tsenderklap-
rende bilist munden til reret
og puster en tre-fire gange.
Deter det hele'
Neglen ssettes i lisen. og
Sesam, Sesam, deren skulle
springe op.
Den lille opf indelse koster
ikke mere end. at den skulle
kunne blive en prismsessigt
rimelÍA. reklamegave ved
kundebeseg, eventuelt for-
synet med firma-logo og te-
lefonnummer.
Gemene deUil-kunder
mi dog regne med al skulle
erlsegge den fyrstelige sum
aí fem ltroner pi landets
benzintanke. hvor den snart
skulle dukke op.
Lásenudsat
for hárd prove
Pf rmaet har blandt andet af-
prsvet det lille pusterer pi
en hillis. som blev meltrak-
teret pi falgende mide;
Billisen blev smidt i en
balje med vand og derpi an-
bragt et degn i en dybfryser
med den absolut uvcnlige
opholdstemperatur af ml-
hus 18 grader celsius.
Lisen blev taget op, Ico-
blow'en sat til, si munden,
si tre trut med virm inde.
Liaen gik straks op, da nag-
len derpi blev sat i og drejet
rundt
Kan det undre, at det var
en /Slsending (nu dog dansk
sutsborger) der fík patent-
ret opfindelsen ? Det er ud-
taget verdenspatent.
Greinin um lásaþiðarann í Berl-
ingske Tidende. Lásaþíðarinn
er uppfinning Jóhannesar Páls-
sonar.
fengið einkaleyfísréttinn að upp-
fínningunni?, segir Berlingur að
lokum.
G.L.Ásg.