Morgunblaðið - 13.11.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
með vopnum háð. En baráttan fyrir
frelsinu varð þjóðinni mikill orku-
gjafi og sigramir í sjálfstæðismál-
unum vöktu aukna trú á framtíðina.
Þjóðin hafði dug til að færa sér í
nyt hinar miklu framfarir sem áttu
sér stað í veröldinni, ekki síst eftir
lok síðari heimsstyijaldar. Ekki er
hikað við að takast á fangbrögðum
við miklar framkvæmdir og stórar
athafnir.
í baráttunni fyrir stjómarfars-
legu og efnahagslegu sjálfstæði
þjóðarinnar, var það mikil gæfa að
eiga „aldamótamennina" með sínar
björtu draumsýnir og óbilandi trú
á landið sitt. Það var líka gæfa
þjóðarinnar, að hún eignaðist
dugmikla stjómmálamenn, sem
reyndu með störfum sínum að
tryggja það, að draumar aldamóta-
mannanna gætu orðið að veruleika.
En fleira kom hér til sem skipti
sköpum. Samtök fólksins höfðu
komið til sögunnar og áttu eftir að
láta til sín kveða í ýmsum myndum.
í hópi þessara samtaka var sam-
vinnuhreyfingin, sem festi rætur í
Suður-Þingeyjarsýslu 1882. Þá
urðu ungmennafélögin þýðingar-
mikil samtök á fyrstu áratugum
aldarinnar. „Aldamótamennirnir"
voni þar í forystusveit og höfðu
þeir næman skilning á því, að sam-
vinnufélögin og ungmennafélögin
voru tveir hornsteinar í uppbygg-
ingu frelsis og framfara. Ung-
mennafélögin lögðu áherslu á
þjóðrækni og þjóðfrelsi og sjálft
manngildið. Samvinnufélögin voru
hins vegar sameinaða aflið til að
bæta efnahagslega afkomu heimil-
anna, gefa aukna trú á framtíðina,
og stuðla að efnahagslegu sjálf-
stæði þjóðarinnar. Samvinnuhreyf-
ingin byggðist á fijálsum
samtökum fjölda einstaklinga á
grundvelli lýðræðis. Þannig gat
fólkið sjálft með samtakamætti
sínum skapað afl framfara sem
varð þýðingarmikill þáttur í efna-
hagslífi þjóðarinnar.
Það fer ekki á milli mála að
margar af hugsjónum „aldamóta-
mannanna" urðu að veruleika í
tímans rás. Dugmiklir og framsýnir
stjómmálamenn unnu drengilega
að því að láta framtíðardraumana
rætast. Þá lyftu samtök fólksins í
landinu grettistaki á ýmsum svið-
um. Þar í flokki voru samvinnufé-
lögin afkastamest.
Gamalt orðtæki segir: „Veldur
hver á heldur". Þetta á við stjóm-
málin, rekstur fyrirtækja, félaga-
samtökin, já reyndar flestar
athafnir mannanna. Það var gæfa
samvinnuhreyfingarinnar að eiga
dugmikla frumheija og síðar forvíg-
ismenn. Það voru ákveðnar hug-
sjónir um samvinnu og samtaka-
mátt sem komu hreyfingunni á stað
meðal fólksins. Það var því þýðing-
armikið að til vom forvígismenn
sem gátu túlkað þessar hugsjónir
og sameinaði fólk undir merki
þeirra.
Einn af forystumönnunum var
Eysteinn Jónsson, fyrrverandi ráð-
herra og formaður stjómar
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga, sem er 80 ára í dag, 13.
nóvember.
Eysteinn á langan og gifturíkan
feril að baki, bæði sem stjómmála-
maður og samvinnuleiðtogi. Hann
fæddist og ólst upp á Djúpavogi og
kynnist þar ungur hugsjónum sam-
vinnumanna og ungmennafélaga.
Lærði fyrst í lífsins skóla með því
að stunda algenga vinnu til sjós og
lands, vann hjá kaupfélaginu í versl-
un og á skrifstofu, fór í Samvinnu-
skólann til Jónasar Jónssonar,
skólastjóra, og lauk tveggja vetra
námi 1927.
Trúlega hefði Eysteinn þá verið
reiðubúinn að hefja störf innan
samvinnuhreyfmgarinnar, ef Jónas
skólastjóri, sem þá var mesti ráða-
maður í Framsóknarflokknum,
hefði ekki ætlað honum annað hlut-
verk. Þannig var mál með vexti,
að Jónas lagði sig fram um að fá
unga menn til starfa fyrir Fram-
sóknarflokkinn. Ljóst er að í
Eysteini sá hann efnislegan stjóm-
málamann, enda kvaddi Jónas hann
til starfa sem aðstoðarmann sinn,
þegar hann var ráðherra 1927 í
ríkisstjórn Tryggva Þórhallssonar.
Eysteinn hafði nú kastað ten-
ingnum. Stjómmálabrautin var
ráðin og framinn var skammt und-
an. Hann varð foringi ungra
framsóknarmanna, hafði þá þegar
fengið orð fyrir að vera ræðuskör-
ungur. Eysteinn verður svo fjár-
málaráðherra í ríkisstjórn
Hermanns Jónassonar 1934, sem
var samstjóm Framsóknarflokks og
Alþýðuflokks og fékk nafnið „stjóm
hinna vinnandi stétta". Eysteinn
var þá aðeins 27 ára gamall og þá
orðinn þingmaður Sunnmýlinga.
Heimskreppan var þá í algleymingi
og reyndi að sjálfsögðu mikið á fjár-
málaráðherrann að ráða fram úr
erfiðum málum.
Varla verður um það deilt, að
Eysteinn stóðst með mikilli piýði
fyrsta prófið í ráðherrastóli. A löng-
um stjómmálaferli sínum, sem ekki
verður rakinn hér, enda gerð góð
skil í þriggja binda æviminningum,
— átti Eysteinn eftir að gangast
undir mörg próf, bæði í ráðherra-
stóli og á Alþingi. Þau próf stóðst
hann þannig, að hann verður talinn
einn af mestu stjómmálamönnum
landsins á ámnum 1934—1974.
Hann markaði djúp heillarík spor í
þjóðlíf íslendinga á þessum árum,
þegar þjóðin er að bijótast út úr
fátæktinni og byggir upp velferð-
am'ki, sem ekki á sér marga jafn-
ingja.
Eysteinn Jónsson var ekki aðeins
stjómmálaforingi, — hann var líka
forystumaður í íslensku samvinnu-
hreyfingunni. Störf hans á þeim
vettvangi standa mér nálægt, enda
átti ég þar samvinnu með honum i
áratugi. Eg er ekki frá því, að sam-
vinnuhugsjónimar, sem Eysteinn
hefur borið í btjósti frá unga aldri,
hafi orðið honum til styrktar í
stjómmálabaráttunni, enda hefur
samvinnupólítík verið hluti af hans
lífsviðhorfí. Á sama hátt hefur það
verið samvinnuhreyfmgunni ómet-
anlegur styrkur, að eiga slíkan
málsvara sem Eysteinn Jónsson
hefur verið, hvort sem var í ríkis-
stjóm, á Alþingi eða í daglegu
starfi.
Það hefur verið samvinnuhrejrf-
ingunni enn meiri nauðsyn að eiga
góða málsvara, vegna þess, að frá
því að henni tók að vaxa fiskur um
hrygg, hefur hún átt mótheija sem
hafa lagt sig fram um að hefta
framgang samvinnustarfsins í því
augnamiði að styrkja samkeppnis-
aðilana. Hefur starf þessara aðila
verið með ýmsu móti: Það hefur
snert lagasetningar á Alþingi, fyrir-
greiðslur til mótheijanna í sumum
ríkisstofnunum og ráðuneytum,
ákvarðanir borgaryfirvalda, sem
iðulega hafa lagt stein í götu sam-
vinnufélaganna á sama tíma og
verið er að hygla samkeppnisaðilun-
um.
23
Það hefur því ekki verið vanþörf
á því, að samvinnuhreyfingin ætti
málsvara á Alþingi, enda hafa mót-
heijamir verið þar vel mannaðir.
Víðar í stjómkerfinu þyrfti hún að
eiga málsvara.
Störf Eysteins Jónssonar innan
samvinnuhreyfingarinnar hafa ver-
ið margþætt. Hann átti stóran þátt
í stofnun Kaupfélags Reykjavíkur
árið 1931. Var hann formaður fé-
lagsins frá upphafi uns það samein-
aðist öðrum hliðstæðum félögum í
Kaupfélag Reykavíkur og nágrenn-
is (KRON) sem sett var á stofn
árið 1934. í stjóm Sambandsins var
Eysteinn kjörinn 1944 og sat þar
óslitið til 1978. Hann gegndi stöðu
varaformanns árin 1946 til 1975
en var þá kjörinn formaður Sam-
bandsstjómar sem hann gegndi til
1978. Hafði hann þá setið í Sam-
bandsstjórn í 44 ár. Þá hefur
Nýtt WXRNER myndefni með íslenskum texta frá Tefli
BARE ESSENCE — 2ja spólu myndaflokkur ísérflokki.
STILL OFTHE NIGHT — mögnuð spennumynd.
GREMLINS — snilldarverkSpielbergs.
Still of the Night
WXRNER HOME VIDEO
„BARE ESSENCE“, alvöru myndaflokkur þar sem eins dauði
er annars brauð ívægðarlausri valdabaráttu hinna auðugu
í tísku- og snyrtivörubransanum í New York.
f1 TEXU 1
Leikiðréttalelkínn [j| takidmyndfráTEFU
Heildsöludreifing Tefli hf., Síðumúla 23. Símar 686250/688080
Ein allra besta mynd fyrr og
síðar. Stór orð en sönn.
Loksins með íslenskum
texta.