Morgunblaðið - 13.11.1986, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 13.11.1986, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986 NÆMT VIÐBRAGÐ OG MIKIÐ ÖRYGGI CARINAII Carina II er með háþróað framhjóladrif og tann- stangarstýri sem hefur næmt viðbragð og gefur öku- manni góða tilfinningu fyrir stýringu. Sjálfstæð fjöðrun á hverju hjóli, neikvæður innhalli framhjólanna og tvöfaldar þverstífur á afturhjólum gefa Carina II mikla rásfestu og stöðugleika, hvort heldur ekið er á möl eða malbiki. Þægindi og öryggi — það er Carina II. Lestarslys í Sovétríkjunum: • • Okumaður- inn sofnaði undir stýri Moskvu, Reuter. EKKI er vitað hvað margir fór- ust þegar tvær lestir skullu saman 6. nóvember í Úkraínu. Greint var frá slysinu í sovéska dagblaðinu Izvestia í gær og sagði þar að ökumaður annarrar lestarinnar og aðstoðarmaður hans hefðu verið sofandi þegar siysið varð. „Eg hef unnið hér árum saman, en aldrei séð nokkuð þessu líkt,“ var haft eftir öryggisfulltrúa við jámbrautarlestimar í Úkraínu þeg- ar hann sá myndir af slysinu. Areksturinn varð á lítilli brautar- stöð í Koristovka. Önnur lestin fór á 33 km hraða og hin á 40 km hraða þegar þær skullu saman, að því er sagði í blaðinu. Sagði að ökumaðurinn annarrar lestarinnar og aðstoðarmaður hans hefðu verið sofandi og hefði lestin haldið áfram inn á brautarstöðina á rauðu ljósi. „Mörg hundmð læknar og hjúkr- unarkonur frá nærliggjandi bæjum og samyrkjubúum komu til hjálp- ar,“ stóð í blaðinu. „Þeir sem slösuðust höfðu allir fengið læknis- aðstoð þremur klukkustundum eftir að slysið átti sér stað.“ Fréttinni í Izvestia lauk á því að ábyrgðar- og agaleysi hefðu leitt til slyssins. Persaflóastríðið: 25 týna lífi í loftárásum Bahrain, Reuter. HERÞOTUR frá írak gerðu sprengjuárásir á skotmörk í íran í gær, annan daginn í röð. Frétt- ir frá Teheran, höfuðborg íran, herma að 25 manns hafi látið lífið. Talsmaður íraka í Baghdad sagði sprengjuárásir hafa verið gerðar á borgina Esfahan, sem er 340 kíló- metra suður af Teheran. IRNA, hin opinbera fréttastofa írana, staðfesti frétt þessa og sagði árásir hafa verið gerðar á verksmiðjur í borg- inni. Útvarpið í Teheran sagði 25 manns hafa týnt lífi. Stórskotalið Irana hóf þegar árásir á skotmörk í Irak í hefndarskyni og vom íbúar borgarinnar Bashra hvattir til að flýja borgina þar eð árásin myndi standa í tvo sólarhringa. í fýrradag gerðu írakar sprengjuárásir á olíuhreinsunarstöð í hafnarborginni Bandar Khomeini sem Iranir em að byggja í sam- vinnu við Japani. íranir kváðust hafa skotið niður herþotu af gerð- inni MiG 23 en talsmaður Iraka kvað allar vélamar hafa snúið aftur úr árásinni. ÓSA/SlA fayyry&'V Y' • / %% Fjölbreytt úrval af fallegum gjafavörum. Við útbúum fallegan jólapakka og sjáum um að hann komist til viðtakanda á réttum tíma. ^lafossbúöin VESTURGÖTU 2, SÍMI 13404 Sendum um allan heim.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.