Morgunblaðið - 13.11.1986, Síða 27
a8ei ÍI38M3VÖM .81 5IUOAaUTMMI3 .aiGAjaMUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
Meinhluti íbúa
í Afganistan
styður skæruliða
- segir í skýrslu sem unnin var á vegnm S.þ.
Sameinuðu þjóðirnar.AP.
í SKÝRLSLU er unnin var á veg-
um Sameinuðu þjóðanna um
mannréttindi í Afganistan og birt
var sl. þriðjudag segir, að mikill
meirihluti afgönsku þjóðarinnar
styðji skæruliða er berjast gegn
heijum ríkisstjórnar landsins og
Sovétríkjanna.
I skýrslunni sem Austurríkismað-
urinn, Felix Ermacora, samdi segir,
að aðgerðir gegn stjómarandstöð-
unni og skæruliðum hafi verið
hertar mjög á síðastliðnu ári og að
sprengjuárásir á þorp, árásir á fólk
á leið til Pakistan, til að leita þar
hælis og tíðar húsleitir, geri það
ómögulegt fyrir almenning að lifa
eðlilegu lífí. Nærvera hinna 115.000
sovésku hermanna og þátttaka
þeirra í átökunum, sé bein orsök
þeirra óbærilegu þjáninga er afg-
anska þjóðin verði að þola. Als-
heijarþingið samþykkti í síðustu
viku með 122 atkvæðum gegn 20
ályktun þess efnis, að Sovétmönn-
um bæri þegar í stað að draga her
sinn til baka frá Afganistan.
Bráðabirgðaskýrsla um mann-
réttindi í íran var birt sl. mánudag.
Þar sagði Reynaldo Galindo Pohl,
frá E1 Salvador, er samdi skýrsl-
una, að hann hefði ekki fengið leyfi
íranskra yfirvalda til þess að ferð-
ast til íran og því ekki getað komist
að lokaniðurstöðu. Andstæðingar
Iranstjómar gagnrýndu bráða-
birgðaskýrsluna og sögðu að nægar
sannanir væm fyrir hendi um
óhæfuverk stjómar Khomeinis. Yfir
50.000 manns hefðu verið teknir
af lífi, um 140.000 sætu í fangelsi
vegna stjómmálaskoðana og pynt-
ingar á föngum væru daglegt
brauð.
Mannréttindasamtökin, Amnesty
Intemational, lýstu yfir áhyggjum
í síðustu skýrslu sinni um Iran,
vegna þess, að ekkert lát væri á
aftökum „samviskufanga" og ann-
arra fanga og réttarhöld væm mjög
ófullkomin, þar sem fangamir
hefðu enga veijendur og fengju
ekki að áfrýja málum. Einnig sagði
í þeirri skýrslu að pyntingar væm
algengar og í sumum tilfellum
skipulagðar.
Gerald Knight, talsmaður Bahai-
trúflokksins, sem heldur því fram
að þeir sem aðhyllist Bahaitrú verði
fyrir miklum ofsóknum í íran og
hafi reyndar verið teknir af lífi fyr-
ir trú sína eina, segir bráðabirgða-
skýrsluna góða að því leyti, að hún
gefi Irönum ekki tylliástæðu til að
neita samstarfí við starfsmann
Sameinuðu þjóðanna.
Notaðir bílar frá USA
Getum útvegað notaða bíla frá USA á hagkvæmu verði, t.d.:
'84 Camaro Z-28 5LT V-8 5 speed
’84 Camaro Z-28 Auto 5L V-8
'84 Transam T-Top 5LTR V-8 5 speed
. '84 Transam 5LTR V-8 Auto
'84 Firebird V-6 Auto
'84 Mustang LX V-6 Auto með öllu
'83 Olds Ciera V-6 með öllu
’84 Olds Ciera V-6 meö öllu
'84 Olds Royal Brougham 88 með öllu
'84 Chevy K-10 4x4 Silverado 6,2 D
830.000,- ’83 Ford F250 6,9 diesel 780.000,-
810.000,- '85 Ford E 250 Club Wagon með öllu 900.000,-
856.000,- '84 Olds Calais V-6 Auto 570.000,-
830.000,- '84 Buick Skylarch V-6 Auto LTD 590.000,-
700.000,- '84 Buick Regal með öllu 645.000,-
440.000,- '84 Chevy Corvette 1.700.000,-
550.000,- '85 Brocno II 4x4 870.000,-
580.000,- '84 CJ5 V-8 45 speed, blæja 710.000,-
760.000,- 960.000,- '84 CJ7,6 cyl., Auto m/húsi 820.000,-
Leitið allra upplýsinga hjá okkur.
Margra ára reynsla í viðskiptum við
USA tryggir bestu og hagkvæmustu
kaupin. Getum einnig útvegað notaða
bíla frá Evrópu.
-umboðið,
Varahlutir — Aukahlutir — Sérpantanir,
Skemmuvegi 22, Kópavogi, sími 73287.
SLAFMAR
FRETTIR
Slæmu frétttirnar eru þær að eins og
undanfarna mánuði verður enn um hríð
nokkur bið (u.þ.b 2 mán.) hjá þeim sem eru
að kaupa SAAB 900 og SAAB 9000. Þessu
valda auknar vinsældir SAAB á stórum
markaðssvæðum, svo sem í Bandaríkjun-
um. SAAB verksmiðjurnar í Svíþjóð anna
ekki eftirspurn á heimsmarkaði og hafa
orðið að taka upp kvótakerfi í afgreiðslu.
Við munum gera okkar besta til þess aö
auka þann fjölda sem íslandi er ætlaður, og
eins að stytta biðtímann sem mest.
Þeim sem hyggja á kaup á SAAB 900
eða SAAB 9000 er bent á að betra er að
panta fyrr en seinna.
Við munum gera allt sem í okkar valdi
stendur til þess að koma í veg fyrir að
SAAB verði aöeins fyrirfáa útvalda.
TÖGGURHF.
BÍLDSHÖFÐA 16. SÍMI: 681530
BEINN SlMI SÖLUMANNS: 83104
GQDAR
FRETTIR
Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að við
eigum von á 20-30 bílum af SAAB 90 nú í
nóvember og desember sem gerir okkur
kleift að bæta úr brýnustu þörfinni.
SAAB 90 TIL AFGREIÐSLU NÚ
Á AÐEINS 487 ÞÚSUND KRÓNUR.
TÖGGURHE
BÍLDSHÖFÐA 16. SlMI: 681530
BEINN SÍMI SÖLUMANNS: 83104