Morgunblaðið - 13.11.1986, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
39
Líflegt félagslíf
Islendinga í Höfn
Jónshúsi,
DAGUR eldra fólksins hjá
íslenska söfnuðinum í Kaup-
mannahöfn var fyrsta sunnudag
í vetri, en slík samkoma fyrir
hina fjölmörgu eldri Hafnar-
íslendinga er haldin vor og
haust. Guðsþjónusta var í St.
Pálskirkju eins og jafnan síðasta
sunnudag hvers mánaðar. Sendi-
herrahjónin, Hörður og Sara
Helgason, sem nýkomin eru hing-
að til starfa, heilsuðu upp á
kirkjugesti og buðu öllum til
kaffidrykkju í félagsheimilinu í
Jónshúsi og voru það um 100
manns. Sendiráðspresturinn
stjórnaði samkomunni, en þar
flutti sr. Bjarni Sigurðsson frá
Mosfelli ávarp og Þórunn Guð-
mundsdóttir lék á flygilinn og
viðstaddir sungu. Þá gekkst
safnaðarnefnd íslenska safnað-
arins fyrir bögglauppboði og
hlutaveltu í félagsheimilinu til
ágóða fyrir safnaðarstarfið. í
safnaðarnefnd eru Jón Helgason
formaður, Ragnhildur Ólafsdótt-
ir og Árni Björnsson.
Aðalfundur íslendingafélagsins
var haldinn 9. okt. sl. Eru 6 stjóm-
arkonur hinar sömu og áður, en í
stað þeirrar sjöundu var kjörinn
Amar Ingólfsson. í skýrslu stjómar
er lýst störfum hennar, samkomu-
haldi og þátttöku í rekstri félags-
heimilisins, Nýs Hafnarpósts og
starfsemsi SÍDS, auk bókasafnsins,
sem félagið sér alveg um með smá-
styrk frá Alþingi og sjálfboðavinnu
umsjónarmanna undir _ stjóm
Kristínar Oddsdóttur. Stjóm íslend-
ingafélagsins er þannig skipuð:
Bergþóra Kristjánsdóttir formaður,
Guðrún Valdimarsdóttir varafor-
maður, Amar Ingólfsson gjaldkeri,
Kristín Oddsdóttir Bonde ritari,
Sigrún J. Brunhede, Erla Eiríks-
dóttir og Guðrún Eiríksdóttir.
FÍNK hélt aðalfund sinn í tvennu
lagi að þessu sinni, 15. og 30. októ-
ber. Var félagsstarf með hefð-
bundn'um hætti og að auki sá
félagið með íslendingafélaginu um
þorrablót og jólatrésskemmtun
bama og tókst sú nýbreytni mjög
vel. Síðasta verkefni fráfarandi
stjómar var að halda rússagildið,
en fyrst á dagskrá nýju stjómarinn-
ar er fundur nk. miðvikudag, þar
sem Sigrún Davíðsdóttir cand. mag.
mun flytja erindi og síðan 1. des.-
hátíðahöldin laugardaginn 29.
nóvember. Sigrún Davíðsdóttir
dvelur nú í fræðimannsíbúðinni hér
í Jónshúsi og nefnir hún erindi sitt
„Handritamálið, sagan og sagan
um söguna". Dagskrá 1. des.-há-
tíðahaldanna verður vönduð að
venju og hefst kl. 15 síðasta laugar-
dag í nóvember. Verður dansleikur
um kvöldið þar sem Bítlavinafélagið
mun leika fyrir dansi. Nýja stjómin
er ákveðin í að láta lánamál náms-
manna mjög til sín taka, en þau
mál verða mikið til umræðu nú í
vikunni á vegum SÍNE, er Friðrik
Sophusson alþingismaður kemur til
fundar við námsmenn. Trúnaðar-
maður SÍNE er Gunnar Guðmunds-
son.
Stjóm Félags ísl. námsmanna í
Kaupmannahöfn skipa nú: Bima
Baldursdóttir formaður, Hans Unn-
þór Ólason gjaldkeri, Þóra Leós-
V^terkurog
k/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
dóttir ritari, Aðalbjörg Jónsdóttir,
Edda Guðmundsdóttir, Helena Mjöll
Jóhannsdóttir, Örn Þór Halldórs-
son. Fulltrúi félagsins í hússtjóm
Jónshúss var kosinn Pétur Gunn-
arsson og Þóra Leósdóttir til vara.
í svæðisstjóm SÍDS eru Bima Bald-
ursdóttir, Lárus Ágústsson og
Salvör Aradóttir fyrir FÍNK, Erla
Eiríksdóttir, Pétur Gunnarsson og
Sigrún J. Brunhede fyrir íslend-
ingafélagið og Gunnar Snælundur
Ingimarsson er oddamaður. Fyrir
sögusjóð stúdenta voru tilnefndir
Gunnar Guðmundsson og Gunnar
Kristjánsson, en sömu menn sitja
áfram í félagsheimilisnefnd fyrir
bæði félögin.
Þá var nýlega haldinn fjölmiðla-
fundur og skiptu áhugamenn með
sér verkum við að sjá um útgáfu
íslenzka blaðsins, Nýs Hafnarpósts,
og til að standa að íslenska útvarp-
inu, sem nú hefur um skeið sent
út hjá Sokkelund-útvarpsstöðinni á
laugardagskvöldum frá kl.
20—21.30 eins og sagt hefur verið
frá hér í blaðinu. Ganga útvarps-
sendingar ágætlega, fréttir að
heiman koma í gegnum íslenzka
útvarpið í Malmö, sem stendur á
gömlum merg, en annað efni er
heimafengið hér. Er sent á bylgju-
lengdinni FM 101,7 Mhz. Það er
mikil framför að hafa nú útvarps-
dagskrá á íslenzku hér og auðveldar
það mjög að ná til Islendinga á öll-
um aldri og koma tilkynningum
áleiðis. Eru nú þrír starfshópar sem
sjá um dagskrána til skiptis. Nýr
Hafnarpóstur kemur eftir sem áður
út og eru nýir menn í ritnefnd hans:
Aðalbjörg Jónsdóttir, Edda Rós
Karlsdóttir, Einar Siguijónsson,
Helena Mjöll Jóhannsdóttir, Jónína
Kristjánsdóttir, H. Edda Þórarins-
dóttir og Þorbjörg Kjartansdóttir.
Þá má geta nokkurra þátta í fé-
Stjórn FÍNK efst frá vinstri
Hans, Edda, Aðalbjörg, Birna,
Helena, Þóra og Om.
lagslífínu á nýliðnu hausti. Guðrún
Halldórsdóttir skólastjóri Náms-
flokka Reykjavlkur hélt erindi í
félagsheimilinu um Ingibjörgu Ól-
afsson. Var það haldið í tilefni af
hundrað ára minningu hinnar
merku íslensku konu, sem lengi ól
aldur sinn í Danmörku og Englandi
og var m.a. árum saman aðalfram-
kvæmdastjóri KFUK í Danmörku
og á Norðurlöndum. Þá hélt Dansk
Islandsk Samfund nýlega fund í
Domus Technica. Þar talaði Guð-
mundur Sigvaldason jarðfræðingur
um eldgos á íslandi og sýndi kvik-
myndina um Heklugosið 1947. Var
mikið íjölmenni á fundinum eins
og ævinlega þegar Dansk Islandsk
Samfund heldur samkomur og voru
fundarmenn afar ánægðir með fyr-
irlesarann og kvikmyndina. For-
maður Dansk Islandsk Samfund er
Sören Langvad verkfræðingur.
Fyrsta jazzkvöld vetrarins var í
Jónshúsi sl. sunnudagskvöld og léku
þeir Guðmundur Eiríksson á píanó,
Gunnar Bemburg á bassa, Ölafur
Sigurðsson á trommur og Sören
„sax“ Hindborg á saxófón. Vom
jazzunnendur hrifnir af tóniist
þeirra félaganna.
G.L.Ásg.
SAUNA BOÐ
GUFUBÖÐ
ALLTÍ
EINUM
PAKKA
KLEFAR
# öllum stærðum
og gerðum
OFNAR
ásamt öllum
hugsanlegum
aukahlutum
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
OG LÍTTU VIÐ
VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK
SÍMAR: VERSLUN 686465, SKRIFSTOFA 685966
Hjartans þakkir fœrum við sóknarbörnum
Utskála- og Hvalsnessafnaða fyrir vegleg
kveÖjusamsœti, sem okkur voru haldin þann
28. september og 5. október sl., svo og höfðing-
legar gjafir og hlýjar kveÖjur. Einnig þökkum
viÖ samstarfsvinum í Kjalarnesprófastsdœmi
verömœta gjöf og góÖvild alla.
GuÖ blessi ykkur, kœru vinir.
Stein vör Krístófersdóttir,
Guömundur Guðmundsson.
Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig á
nirœÖisafmœlinu minu 20. október meÖ heim-
sóknum, gjöfum, blómum, skeytum og
símtölum.
GuÖ blessi ykkur öll.
Gróa Þorleifsdóttir,
Óðinsgötu 16B.
Loðfóðruð moccastígvél með
stömum, góðum sólum frá
OSWALD 1
Litir: Svart, grátt og
beinhvítt. Verð kr. 5.340,-
Litir: Svart og beinhvítt.
Verð kr. 4.995,-
Domus Medica,
Egilsgötu 3,
Sími: 18519.
STYRT
VIÐHAID
- NÁMSKEIÐ -
Félag málmiðnaðarfyrirtækja efnir til námskeiðs
um stýrt viðhald véla, tækja og mannvirkja dag-
ana 20. og 21. nóvember í aðsetri félagsins
að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Námskeiðið er
ætlað þeim, sem stjórna viðgerðar- og viðhalds-
verkum í smiðjum og ennfremur þeim sem hafa
umsjón með viðgerðum og viðhaldi í fyrirtækj-
um, stofnunum og skipum.
Fjallað verður í fyrirlestrum og með verklegum
æfingum um vinnubrögðin sem fylgja því að taka
upp stýrt viðhald, sem er heiti á viðhaldskerfi því
sem ryður sér nú víða til rúms.
Að námskeiðinu loknu eiga þátttakendur að hafa
tileinkað sér ný vinnubrögð og öðlast þjálfun til
þess að koma þeim á — hver á sínum stað.
Námskeiðsgjald er kr. 5.600,- fyrir hvern þátttak-
anda frá aðildarfyrirtækjum FMF, en kr. 6.300,- fyrir
aðra. Innifalin eru ítarleg námskeiðsgögn, matur
og kaffi.
Þátttöku ber að tilkynna eigi síðar en 17 nóv
í síma 91-621755.
ú
FiEAGi MALMlÐNAÐAHfrYRIRT/EKJft
Hverfisgötu 105 — 101 R. S. 91-621755.