Morgunblaðið - 13.11.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
43
Athugasemd
frá Orkustofnun
vegna vatnstöku
Atlantslax
HAUKUR Tómasson forstjóri
vatnsorkudeildar Orkustofnunar
hefur sent Morgunblaðinu eftir-
farandi athugasemd:
Vegna viðtals við Sigurþór Þor-
gilsson í Morgunblaðinu 5. nóvem-
ber síðastliðinn um Atlantslax hf.
og vatnstöku þess fyrirtækis vill
Orkustofnun árétta hvernig komist
var að þeirri niðurstöðu, sem ráð-
leggingar hennar til Landbúnaðar-
ráðuneytisins byggjast á. í þessu
máli er Orkustofnun umsagnaraðili
að beiðni Landbúnaðarráðuneytis-
ins og hefur engra hagsmuna að
gæta og einungis hlutlægar skoðan-
ir, sem byggja á þeirri þekkingu
sem til er í dag. Orkustofnun hlýtur
þvi að vísa á bug þeim fullyrðingum
í viðtalinu að „stofnunin geri þetta
í þvermóðsku sinni án þess að hafa
nokkur rök fyrir sínu máli“.
Mat Orkustofnunar á og með-
mæli með leyfilegri vatnstöku
Atlantslax byggist á niðurstöðum í
reiknilíkani, sem gert var fyrir Hita-
veitu Suðurnesja fyrir nokkrum
árum. Reiknað er með að Atlantslax
megi nota þriðjung útrennslis af
fersku vatni á sínu svæði. Almennt
er talið og stutt með líkanreikning-
um að ekki megi taka nema þriðj-
ung útrennslis úr ferskvatnslins-
unni á Reykjanesi ef ekki á að
eyðileggja hana. Leyfí til meiri
vatnstöku í landi Atlantslax væri
því í raun ávísun á vatn úr öðru
landi en þeir hafa til umráða.
Orkustofnun getur því ekki mælt
með að Atlantslax fái meira vatn
til umráða af því svæði, sem þeir
nú ráða yfir. Til þess að þeir geti
fengið meira vatn, þurfa þeir að
ráða yfir stærra svæði en þeir gera
nú.
Ásókn í vatn á Suðumesjum er
að verða svo mikil að ástæða er til
að rannsaka ferskvatnslinsuna bet-
ur en hingað til hefur verið gert. í
þessu sambandi er rétt að geta
þess, að Orkustofnun hefur gert
áætlun um frekari rannsóknir á
ferskvatnslinsunni, sem geta verið
grundvöllur skipulagningar á vatns-
töku á öllu svæðinu."
SIEMENS
SIEMENS uppþvottavél
LADY SN 4510 með Aqua-
Stop vatnsöryggi. Vandvirk
og hljóðlát.
• 5 þvottakerfi.
• Þreföld vörn gegn vatnsleka.
• Óvenjulega hljóðlát og spar-
neytin.
Smith og Norland,
Nóatúni4,
s. 28300.
INNLEGGSDEGI f
Þú getur notið fyllstu ávöxtunar
Innlánsreiknings með Ábót
strax frá deginum sem þú leggur inn.
Ábót á vexti
Grundvöllur Lotusparnaðar
GOÐ
' Ire
JLnt
refjarík fæða er öllum nauðsynleg og flestir íslendingar
neyta hennar ekki sem skyldi. ALPEN er framleitt
samkvæmt gamalli svissneskri uppskrift, sem f eru aðeins
vönduð hráefni og holl. Ef þú vilt neyta
trefjaríkrar fæðu, reyndu þá ALPEN,
enginn morgunmatur bragðast betur.
RÉTTA LEIÐIN UPP A MORGNANA