Morgunblaðið - 13.11.1986, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1986
mmmn
fí Hann er meb nefíð hctns afcx. síns. '*
ást er...
... að komast í
æfingu fyrir fríið
Með
morgimkaffinu
TM Ríg. U.S. Pal Off.—all rights resírved
C1986 Los Angeles Tlmes Syndlcate
Þessi torfærubíll er upp-
lagður eldhúsbíll heimilis-
ins.
með kvef, en þá er það
bara vindillinn!
Þessir hringdu . . .
Til þýskumæl-
andi ungs fólks
Ein ekki af baki dottin
hringdi:
Hvemig væri nú ef við reyndum
að viðhalda þýskukunnáttu okkar.
Við gætum hist svona einu sinni
í viku á einhveijum veitingastaðn-
um og rætt málin yfir kaffibolla
- auðvitað á þýsku. Þeir sem hafa
áhuga, eins og ég, eru beðnir að
hringja í s. 22548 eftir klukkan
20 í kvöld.
Tapaði myndavél
Sigrún hringdi:
Á dögunum tapaði ég vasa-
myndavél í Reykjavík. Á henni
var axlaband með púða. Vegna
filmunnar, sem í vélinni var, er
mér einkar annt um að fá hana
aftur. Heitið er fundarlaunum.
Vinsamlegast hringið í s. 15483
eða 15030.
Ekki gætt
þagnarskyldu
Óánægð móðir hringdi:
* Ég hef orðið fyrir því að tiltek-
in manneskja á Vökudeild Land-
spítalans hefur gerst æði málgefín
um málefni sjúklings sem þar
hefur legið. Ég vil biðja alla sem
þama vinna að gæta þagnar-
skyldu, eins og þeim er boðið að
gera, því margt fer fram á þess-
ari stofnun sem hlutaðeigandi
vilja ekki að fari út fyrir veggi
spítalans.
Veskið týndist
Kona hringdi:
Á mánudaginn 10. þ.m. tapað-
ist svart kvenveski í eða við
sölutuminn í Hafnarstræti 20
(Lækjartorgi). í veskinu eru
skilríki, ávísanahefti, bankabók
og fl. sem kemur engum að notum
en er bagalegt að týna. Finnandi
vinsamlega hringi í s. 35648 eftir
kl. 17 eða skili veskinu á lögreglu-
stöðina.
Berglind á Hressó,
kærar þakkir
Einn þakklátur hringdi:
Á föstudaginn síðasta fór hópur
úr kristilegu stúdentafélagi á
Hressó. Viðtökumar og veiting-
amar voru frábærar og allt viðmót
sem mætti okkur hlýlegt. Þetta
viljum við þakka fyrir og senda
Berglindi, sem afgreiddi okkur,
kærar þakkir.
Hver er með
„Kunstopp“?
Móðir hringdi:
Mig langar afskaplega til að
vita hver er með „Kunstopp", en
það er saumaðferð þar sem við-
gerðin sést ekki. Vinsamlegast
hafðu samband í s. 30727.
Orð í tíma töluð
Kona hringdi:
Ég vil þakka Guðmundi Guð-
mundarsyni fyrir grein hans
„Dýrkun ræfilsdóms og hortitta",
það voru sannarlega orð í tíma
töluð.
Þá vil ég þakka þeim Eddu
Indriðadóttur og Ingva Hrafni
fyrir frábæran fréttaflutning.
Vil komast í sam-
band við Mál-
freyjufélagið
Unnur vill endilega komast í
samband við Málfreyjufélag ís-
lands en getur ómögulega haft
upp á því, hvorki heimilisfangi né
síma. Vill nú ekki einhver væn
Málfreyja hafa samband við Unni
í síma 10121?
Hvað segir þú um það Þorsteinn,
eru afruglarar nauðsynlegri en
gleraugu?
Eru afruglarar
nauðsynlegri
en gleraugu?
Það vakti furðu mína þegar ég
las um það í blöðunum nýverið, að
fjármálaráðherra hefði með einu
pennastriki fellt niður aðflutnings-
gjöld af afruglurum. Mun hér um
að ræða toll, vörugjald og söluskatt.
Væri ekki nær að fella niður
aðflutningsgjöld af gleraugum, sem
fjöldi fólks á í mestu vandræðum
með að verða sér úti um vegna
slæms efnahags, eins og t.d. ellilíf-
eyrisþegar, öryrkjar og bammargar
fjölskyldur?
Að vísu steig Albert Guðmunds-
son, þáverandi ljármálaráðherra,
stórt skref í þá átt, þegar hann
gekkst fyrir því að tollur af gleraug-
um var felldur niður. Enn stendur
þó eftir 24% vörugjald og 25% sölu-
skattur.
Ég beini því þeim tilmælum til
fjármálaráðherra, að hann beiti sér
fyrir að umrædd aðflutningsgjöld
verði felld niður af gleraugum, sem
að mínu mati kæmi sér betur fyrir
almenning en afsláttur af afruglur-
um.
Margrét Thoroddsen
Víkverji skrifar
Skýrsla nefndar þeirrar, sem Jón
Þorsteinsson, lögfræðingur og
fyrrum alþingismaður veitti for-
stöðu um málefni Hafskips og
Útvegsbankans er líklega athyglis-
verðasta greinargerð, sem til þessa
dags hefur komjð fram um þetta
mikla gjaldþrot. I skýrslunni er tek-
ið fast á málum, fastar en við eigum
að venjast hér á okkar landi. Al-
þingi sjálft er harðlega gagnrýnt,
svo og trúnaðarmenn Alþingis í
bankaráði og bankastjórar svo og
vinnubrögð Utvegsbankans í heild
sinni.
Frá því að þessi nefnd var sett
á fót hefur lítið farið fyrir störfum
hennar, raunar svo lítið að margir
voru fullir efasemda um, að hún
mundi skila markverðu starfí. En
skýrslan sýnir að hávaði í fjölmiðl-
um er ekki mælikvarði á það,
hvernig menn vinna störf sín. Störf
þessarar nefndar eiga eftir að leiða
til mikilla umræðna næstu mánuði
um innviði þjóðfélags okkar.
XXX
Skemmdarverkin á hvalveiði-
skipunum og hvalstöðinni hafa
vakið gífurlega athygli erlendis.
Áður fyrr var íslenzkra mála ekki
getið í fjölmiðlum erlendis nema um
væri að ræða stórfellt eldgos á borð
við Vestmannaeyjagosið, þorska-
stríð eða hótanir um lokun vamar-
stöðvarinnar í Keflavík. Þeir, sem
lesa erlend dagblöð og tímarit
reglulega hafa hins vegar veitt því
athygli undanfarnar vikur, að nú
eru aðrar fréttir frá íslandi orðnar
fréttaefni í erlendum fjölmiðlum.
Þannig var töluvert skrifað t.d. um
stríð okkar við Sovétmenn um sölu
á saltsíld þangað. Engin spuming
er um það, að leiðtogafundurinn
hér fyrir nokkrum vikum hefur leitt
til þess að fréttir frá íslandi em
nú metnar á annan veg en áður.
Enda er það svo, að orðið Reykjavík
blasir við á nánast hverri síðu, sem
flett er í útlendum dagblöðum um
þessar mundir.
Áhrif leiðtogafundarins eru einn-
ig önnur. Óhætt er að fullyrða að
íslenzkir ráðamenn fá nú aðrar
móttökur erlendis en þeir ella
mundu fá. Það hefur t.d. verið for-
vitnilegt fyrir ráðamenn í Kína að
hitta Steingrím Hermannsson að
máli svo skömmu eftir leiðtoga-
fundinn hér, þótt hann hafi ekki
búið yfír sérstökum upplýsingum
um það sem fram fór í Höfða. Hann
var einn af örfáum stjómmálafor-
ingjum, sem skömmu áður hafði
hitt báða æðstu menn Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna.
XXX
IMorgunblaðinu í gær birtist
grein eftir húsmóður á Selfossi
um hundahald. Hún segir m.a.:
„Maður fer varla svo út úr húsi að
rekast ekki á einn eða fleiri lausa
hunda. Ástandið er sérlega slæmt
á morgnana, þá ganga þeir oft í
hópum um götumar, jafnvel gelt-
andi...Víða er það svo að böm þora
ekki út að leika sér vegna hund-
anna, sem ganga lausir. Hvers eiga
þau að gjalda?"
Það er full ástæða til að veita
þessum orðum eftirtekt. Það er
víðar en á Selfossi sem hundar
ganga lausir. Ef yfirvöld taka ekki
strax í taumana og koma í veg fyr-
ir, að hundahaldið fari út í ógöngur
á það eftir að leiða til slysa og
harðvítugra deilna.
-I