Morgunblaðið - 16.11.1986, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 1986 57
Umsjón/Vilmar Pétursson:
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Ég
æfi
fimm
sinnum
íviku
— segir Einar Örn
Þorlákshafnarbúar eru
einhverjir ötulustu sund-
menn iandsins og að
sjálfsögðu áttu þeir
myndarlegan hóp kepp-
enda á unglingasundmóti
Ármanns. Einn þeirra var
Einar Örn Davíðsson sem
keppti í 100 m bringu-
sundi sem er ásamt
skriðsundi hans aðal-
sund.
Einar var spurður út í
sundáhuga Þorlákshafn-
arbúa. „Það eru mjög
margir krakkar sem æfa
sund enda er lítið annað
hægt að gera því t.d. er
ekkert íþróttahús heima.
Einnig höfum við frábæra
sundþjálfara sem ýta und-
ir áhugann," sagði hann.
Ekki bjóst Einar við að
vinna til verðlauna á mót-
inu en markmið hans væri
að bæta tímann sinn. Var
hann bjartsýnn á að það
tækist því honum hefði
gengið vel á æfingum fyrir
mótið. „Ef það tekst ekki
núna fæ ég aftur tækifæri
um næstu helgi en þá
keppi ég á öðru móti. Það
er mjög gott að hafa nóg
af mótum þegar maður er
að berjast við að bæta
sig,“ sagði kappinn.
Einar sagðist æfa 5
sinnum í viku og byrjuðu
æfingarnar á því að krakk-
arnir hlaupa 5 km. Að því
loknu demba þau sér í
laugina og synda 3 km.
Ekki fannst Einari þetta
neitt sérstaklega erfitt;
„maður venst þessu. Við
reynum að halda jöfnum
hraða þegar við hlaupum
og stoppa aldrei og þá
verður þetta tiltöiulega
létt,“ sagði hann að lok-
um.
Verður að hafa lukku-
dýr til að knúsa
Morgunblaöið/VIP
• Lukkudýrin eru greinilega ánægð á þessari mynd enda margknúsuð af eigendum sínum, þeim Guðrúnu, Arnheiði og Bylgju, sem eru
með þeim á myndinni.
„ÆGIR er besta félagið," sögðu
þær GuArún Gfsladóttir, Arn-
heiður Magnúsdóttir og Bylgja
Ragnarsdóttir, þegar þær voru
teknar tali á unglingasundmóti
Ármanns.
Þær stöllurnar eru kannski
ekki alveg hlutlausar í þessu
mati sínu því allar æfa þær
sund hjá Ægi eins og margir
aðrir krakkar úr Breiðholti. Alls
æfa stelpurnar 4 sinnum í viku
2 tíma í senn auk þess að
keppa á mótum sem þær segja
að sé alveg nóg af. Bylgja er
búin að æfa sundið lengst eða
í þrjú og hálft ár, Arnheiður
hefur æft í rúmlega ár en
Bylgja er nýbyrjuð.
Á unglingasundmótinu
kepptu þær allar í 100 m skrið-
sundi sem er þeirra aðalgrein.
„Það kemur yfirleitt fljótt í Ijós
hvað er manns aðalsund og
þá æfir maður það kanski að-
eins meira en hin sundin sem
er þó nauðsynlegt að æfa
með,“ sögðu þær.
Það vakti athygli blaða-
manns að allar héldu stelpurn-
ar á lukkudýrum. „Maður
verður að hafa lukkudýr til að
knúsa," sögðu þær. „Eg
gleymdi einu sinni lukkudýrinu
mínu en það kom nú samt
ekkert að sök,“ bætti Bylgja
við. Þrátt fyrir góð lukkudýr
bjuggust stelpurnar ekki við
að komast á verðlaunapall á
þessu móti.
• Krakkamir f SH slappa af áAur en keppnin á mótinu hefst.
Erobik og lyftingar
styrkia líkamann
SUNDFÉLAG Hafnarfjarðar átti
marga fulltrúa á unglingasund-
móti Ármanns og hitti blaAa-
maAur þau að máli rétt áður en
keppni á mótinu hófst.
Ekki sögðust Hafnfirðingarnir
hafa æft neitt sérstaklega fyrir
þetta mót. „Þaö er nú varla hægt
að æfa mikið meira en við gerum
því við æfum 6 daga vikunnar tvo
og hálfan tíma í senn en á laugar-
dögum geta æfingarnar teygst
uppí fimm tíma. Það er ekki bara
synt á æfingunum heldur förum
við líka í lyftlngar og erobik sem
byggja upp og styrkja líkamann,"
sögðu krakkarnir til að sá mis-
skilningur kæmist ekki af stað
að þau tækju ekki íþrótt sína al-
varlega.
Þrátt fyrir allar þessar æfingar
voru félagarnir í SH ekkert of
bjartsýn á árangur á mótinu „við
gætum fengið einn eða tvo á
pall,“ sögðu þau. Þetta reyndist
óþarfa svartsýni því uppskeran
varð þrír á verðlaunapall.