Morgunblaðið - 17.12.1986, Page 1

Morgunblaðið - 17.12.1986, Page 1
72 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 285. tbl. 72. árg._______________________________MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Þetta var gjörningaveður Morgunblaðið/Rax Magnús Sigurjónsson, bóndi í Hvammi undir Vestur-Eyjafjöllum, og Ásgeir Kristjánsson, tengdasonur hans, við hluta af þakinu, sem fauk af ijárhúsinu, sem sést til hægri á myndinni. Niðri á þjóðveginum til vinstri sést flutningabíllinn frá Egilssteðum, sem fauk út af veginum. Sjá bls. 4: Hundrað járnplötu þak fauk fimmtíu metra í loft upp. Reagan, Bandaríkjaforseti: Fer fram á friðhelgi lykilvitna í Iranmálinu - gegn því að þau segi allt af létta Washington, AP, Reuter. REAGAN, Bandaríkjaforseti, hvatti i gær þingið til að veita tveimur fyrrverandi starfsmönn- um Hvíta hússins takmarkaða friðheigi gegn því, að þeir leystu frá skjóðunni um vopnasölumál- ið. Donald Regan, starfsmanna- stjóri Hvíta hússins, mætti í gær fyrir leyniþjónustunefnd öld- ungadeildarinnar og kvaðst hann ekkert hafa vitað um hvernig andvirði vopnanna hefði verið varið. Oldungadeildin hefur skipað nefnd 11 manna til að rannsaka vopnasölumálið. „Forsetinn hefur einlægan áhuga á, að vopnasölumálið verði upplýst til fulls og því hefur hann farið fram á það við þingið, að það veiti John Poindexter og Oliver North tak- markaða friðhelgi til að greiða fyrir vitnisburði þeirra," sagði Larry Speakes, talsmaður Hvíta hússins. Þeir Poindexter og North hafa enn sem komið ekkert viljað segja um vopnasölumálið og bera fyrir sig fimmtu grein stjómarskrárinnar, sem kveður á um, að mönnum sé ekki skylt að svara spumingum ef nota má svörin þeim til sakfellingar. Regan, starfsmannastjóri Hvíta hússins, kom í gær fyrir leyniþjón- ustunefnd öldungadeildarinnar og var hann inntur eftir því hver hefði gefði fyrirskipanir um vopnasöluna til írans, hvert hefði verið vald Norths og hveijir hefðu fengið skýrslur um söluna. Ekki er enn vitað um svör hans við þessum spurningum en að yflrheyrslunum loknum kvaðst Regan hafa skýrt nefndinni svo frá, að hann hefði ekki vitað, að greiðslumar fyrir vopnin hefðu runnið til skæmliða í Nicaragua. Var það haft eftir einum nefndarmanna, að sú yflrlýsing væri með „mestu ólíkindum". Öldungadeildin skipaði í gær rannsóknamefnd 11 manna undir forsæti Daniels Inouye, öldunga- deildarþingmanns frá Hawaii-eyj- um. Sjá fréttir af vopnasölumál- inu á bls. 33. Norsku _£»* * 1 •• • fjarlogin loksins samþykkt Ósló, Reuter. ENDURSKOÐUÐ fjárlög fyrir næsta ár voru í gær samþykkt á norska Stórþingjnu. Náði minni- hlutastjórn Verkamannaflokks- ins samkomulagi um það við Kristilega þjóðarflokkinn og Miðflokkinn en samkvæmt því •verða ýmsir skattar hækkaðir til að vega upp á móti minni olíu- tekjum. „Við höfum fengið samþykkt aðhaldssöm fjárlög, sem gera ráð fyrir fjögurra milljarða nkr. tekjuaf- gangi,“ sagði Torstein Moland, aðstoðarmaður forsætisráðherra, en hann bætti því við, að útkoman væri þó komin undir olíunni. Stjórn- in lagði fjárlögin fyrst fram í október en þá voru þau ekki sam- þykkt. Síðan hafa þau verið endurskoðuð og tillit tekið til til- lagna fimm flokka af sex á þingi. Kristilegi þjóðarflokkurinn og Mið- flokkurinn féllust á að styðja þau að þessu sinni þegar ákveðið hafði verið að hækka ýmsa skatta til að bæta upp tekjutap ríkisins vegna lægra olíuverðs. Á norska Stórþinginu er enginn starfhæfur meirihluti og ólíkt því, sem er í flestum þingræðislöndum, má ekki boða til kosninga nema á fjögurra ára fresti. Þær verða ekki fyrr en síðla árs 1989. Þetta ástand og óvissan í kringum fjárlagagerð- ina er farið að valda mikilli óánægju meðal almennings, sem finnst þing- mennirnir láta flokkspólitíkina ganga fyrir þjóðarhagsmunum. Lögregl- unni att á Tchaikovsky Swansea, Wales, Reuter. FJOLDI manna hringdi í gær til lögreglunnar í Swansea í Wales og tilkynnti, að líklega væru hryðjuverkamenn búnir að leggja undir sig ráðhúsið í borginni. Lögreglumennim- ir þustu á vettvang en þá kom í ljós, að verið var að æfa 1812-forleikinn eftir Tchai- kovsky með fallbyssudrunum og öllu tilheyrandi. Griff Harris, framkvæmda- stjóri Fílharmóníusveitarinnar í Wales, sendi starfsmenn sína í nærliggjandi hús til að fullvissa íbúana um að stríð væri ekki skollið á þrátt fyrir fallbyssu- gnýinn og að eldglæringarnar stöfuðu aðeins af púðurkerling- um. „Við sáum bygginguna lýsast upp og héldum, að verið væri að sprengja enda hefur því verið hótað áður,“ sagði ein húsmóðir- in. „Eg er líka viss um, að Tehaikovsky hefur aldrei ætlast til þessa dómadagshávaða." „Þetta átti að vísu að vera áhrifamikið en þó ekki alveg svona,“ sagði Harris um for- leiksæfinguna en kveikjan að verkinu var innrás Napóleons í Rússland. Afganistan: Gífurlegt flugvéla- tjón Sovétmanna Islamabad, AP. SKÆRULIÐAR í Afganistan hafa skotið niður margar flug- vélar að undanförnu, sovéskar flutningaflugvélar og þyrlur, og eru fréttir um, að þeir grandi að jafnaði einni á dag. Sjö ár eru liðin frá innrás Rauða hersins í Afganistan. Tvær sovéskar herflutninga- flugvélar af gerðinni AN-12 voru skotnar niður fyrir nokkrum dög- um, önnur rétt við Kabúl en hin í Paktia-héraði, og er talið, að enginn hafl komist lífs af. Þá hafa margar þyrlur og orrustuvél- ar verið skotnar niður víðs vegar um landið. Erlendir sendimenn segja, að Sovétmenn hafi orðið fyrir miklu mannfalli síðasta hálfa mánuðinn og stjómarherinn e.inn- ig, sem missti 200 menn í bardög- um um borgina Kandahar í fyrstu viku desember. Áætlunarvél frá afganska ríkis- flugfélaginu var skotin niður í lok nóvember og síðan hafa flugmenn í þjónustu þess neitað að fljúga til ýmissa staða í landinu. Robert Peck, háttsettur embættismaður í bandaríska utanríkisráðuneyt- inu, sagði í gær, að flugvélatjón Sovétmanna að undanfömu væri gífurlegt og augljóst, að eldflaug- arnar, sem skæruliðar ráða nú yfir, hefðu valdið straumhvörfum í stríðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.