Morgunblaðið - 17.12.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986
Þjóðleikhúsið:
„Ástæða til bjartsýni“
- segir Gísli Alfreðsson
HÓPUR leikara safnaðist í gær
saman á pöllum Alþingis, þegar
málefni Þjóðleikhússins voru til
umræðu.
Menntamálaráðherra, Sverrir
Hermannsson, svaraði fyrirspurn
Guðrúnar Helgadóttur, varðandi
rekstur leikhússins og flárframlög
því til handa. Að sögn Gísla Alfreðs-
sonar þjóðleikhússtjóra var jákvæð-
ur tónn í umræðunni. Kvað hann
menntamálaráðherra hafa góðan
skilning á málinu og starfsfólk
Þjóðleikhússins hafa fulla ástæðu
til bjartsýni.
Sjá viðtal við þjóðleikhús-
stjóra bls. 30.
Búnaðarþingskosningar í Austur-
Húnavatnssýslu:
Kæran var ekki
tekin til greina
Gísli á Hofi situr heima í mótmælaskyni
STJÓRN Búnaðarfélags íslands
tók ekki til greina kæru Gísla
Pálssonar á Hofi í Vatnsdal
vegna búnaðarþingskosninga í
Austur-Húnavatnssýslu. Gísli
kærði framboð Jóns Gíslasonar
á Búrfelli á þeim forsendum að
stuðningsmenn hans hefðu brotið
kosningareglur með því að safna
of mörgum meðmælendum við
framboðið, og ekki lagt þær
fram. Bæði framboðin eru því
úrskurðuð gild en Gísli mun sitja
heima á kosningadaginn í mót-
mælaskyni.
í úrskurði stjórnar Búnaðarfé-
lags íslands frá því í gær segir að
undirskriftimar kunni að hafa verið
ósamrýmanlegar ákvæðum laga um
leynilegar kosningar. Hins vegar
hafi þær ekki fylgt framboðslistum
og ekki sannað að þær hafi verið
loforð um stuðning við frambjóð-
andann. Undirskriftarlistamir geti
því ekki talist brot í þeim mæli að
valdið geti ógildi framboðslistans,
eins og hér standi á.
Búnaðarþingskosningamar fara
fram á morgun, fimmtudag, og nú
liggur fyrir að tveir listar verða í
kjöri: Annars vegar Gísli Pálsson á
Hofi, núverandi búnaðarþingsfull-
trúi sýslunnar og Haukur Pálsson
á Röðli til vara og hins vegar Jón
Gíslason á Búrfelli og Bjöm Magn-
ússon á Hólabaki til vara. Gísli
Pálsson mun hins vegar ekki mæta
á kjörstað í mótmælaskyni og hvet-
ur stuðningsmenn sína til að gera
hið sama.
Gísli sagði í samtali við Morgun-
blaðið að eftir þennan úrskurð
Búnaðarfélagsins stæði að framboð
Jóns væri ólöglegt, aðeins hefði
vantað sannanir. Hann sagði að
enginn vafi léki á því að á annað
hundrað undirskriftum hefði verið
safnað en hins vegar væri búið að
brenna alla listana á báli og því
gæti verið erfítt að sanna brotið.
Borgarstjóri um Borgarspítalann:
Hlýtur að koma
botn í málið í
dag eða á morgun
„Þ AÐ hlýtur að koma botn í þetta
mál á morgun eða hinn,“ sagði
Davíð Oddsson, borgarstjóri, er
Morgunblaðið spurði hann í gær-
kvöldi um stöðu Borgarspítala-
málsins. Málið var ekki rætt á
ríkissljómarfundi í gærmorgun
og ekki á fundi borgarráðs í gær.
Stjóm fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík ræddi málið
á þriggja tíma fundi í fyrrakvöld
og sagði Davíð, að þar hefði verið
gerð ályktun í þá veru, að þær
hugmyndir, sem kynntar hefðu ve-
rið um framtíðarstjómun spítalans
væru í samræmi við ályktun aðal-
fundar fulltrúaráðsins.
í ályktun stjómar fulltrúaráðsins
er lögð áherzla á, að sjálfstæði
Borgarspítalans verði sem bezt
tryggt og að meðal annars verði
kannaður möguleiki á því að hann
verði sjálfseignarstofnun.
Iðja samþykkti
samningana
Akureyri.
NÝGERÐUR kjarasamningur
hefur verið samþykktur í Iðju,
félagi verksmiðjufólks á Akur-
eyri. Hann var samþykktur
samhljóða á félagsfundi þar sem
mættir vom tæplega 100 manns.
Flestir félagar í Iðju starfa í
Sambands-verksmiðjunum. Tals-
verður fy'öldi félagsmanna var með
minna en 26.500 í laun á mánuði,
nokkur hluti þeirra með tæp 20.000
fyrir hækkun, þannig að sá hópur
fær nú 26.500 krónur. En stór hluti
félagsmanna vinnur bónusvinnu,
t.d. í Sambands-verksmiðjunum þar
sem bónusinn er yfírleitt 60% af
launum, þannig að þegar allt er
talið eru laun mun hærri en fyrr-
nefndar tölur.
Fullgildir félagar í Iðju eru 800.
Morgunblaflið/Tryggvi Jóhannson
Guðrún með bandarískum vinkonum sinum, Nastössju og Sindy, sem gengust einnig undir lifrarskipti.
Líður miklu betur
og má borða allt
- sagði Guðrún Tryggvadóttir, tólf ára gömul telpa frá
Húsavík sem gekkst undir lifrarskipti í Bandaríkjunum
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
Guðrún Tryggvadóttir (situr til vinstri) með móður sinni Guð-
laugu Sigmarsdóttur og systkinum Sigmari og Ágústu.
TÓLF ára gömul stúlka frá
Húsavik, Guðrún Tryggvadótt-
ir, er komin frá Pittsburgh i
Bandaríkjunum þar sem hún
gekkst undir lifrarskipti. Að-
gerðin tókst vonum betur og
var Guðrún útskrifuð af sjúkra-
húsinu einum og hálfum
mánuði eftir aðgerðina. Sjúkra-
húsið i Pittsburgh er talið það
besta i heiminum sem fram-
kvæmir slikar aðgerðir á
börnum. Guðrún dvaldist í hópi
barna frá nálægt 20 þjóðlönd-
um sem öll þurftu á nýjum
líffærum að halda.
Guðrún fæddist með lifrarsjúk-
dóm, sem uppgötvaðist þegar hún
var tveggja ára gömul. Að sögn
Guðlaugar Sigmarsdóttur, móður
hennar, töldu sérfræðingar hér-
lendis og í Bretlandi sem rannsök-
uðu Guðrúnu lengi vel að
sjúkdómurinn myndi eldast af
henni. Það var síðan í ágúst í
sumar að hún hlaut slæmt höfuð-
högg og leiddi það til heilablæð-
ingar. Guðrún þurfti að gangast
undir skurðaðgerð á Borgarspítal-
anum og var bundin öndunarvél
í tvær vikur. Skurðaðgerðin og
lyfjagjöf í kjölfar hennar höfðu
mjög slæm áhrif á lifur Guð-
rúnar. Læknar töldu það því
nauðsynlegt að senda hana utan
til lifrarskipta. Flaug hún ásamt
Tryggva Jóhannssyni föður sínum
vestur um haf 15. september
síðastliðinn, í einkaþotu Þotu-
flugs.
Biðin eftir nýrri lifur var óvenju
stutt, og tíu dögum eftir komuna
til Pittsburgh fékkst lifur frá
sjúkrahúsi í South-Carolina sem
grædd var í Guðrúnu. „Fyrstu
vikumar eftir aðgerðina sögðu
læknamir ekkert um hvort hún
myndi hafna lifrinni," sagði Guð-
laug. „Við tókum aðeins einn dag
í senn. Eins og við var að búast
hafnaði líkami Guðrúnar lifrinni
að vissu marki en á eins vægan
hátt og hugsast getur. Gegn þeim
áhrifum tekur hún lyfíð Cyclo-
sporin og verður að taka það inn
ásamt hormónalyfí það sem eftir
er ævinnar."
Guðrún sagðist finna til mikill-
ar breytingar eftir aðgerðina og
sér liði miklu betur. „Núna má
ég borða allt, en áður var mér
meðal annars bannað að borða
salt, og mat sem innihélt það eins
og til dæmis franskar kartöflur,"
sagði hún. Hún sagðist vera fegin
því að vera komin heim til ís-
lands, þvl í Bandaríkjunum hefði
ekki verið gaman. „En á sjúkra-
húsinu átti ég tvær góðar vinkon-
ur, Sindy og Nastössju og við
vorum alltaf að leika okkur saman
þar og eftir að ég útskrifaðist af
spítalanum." Hún sagðist einnig
hafa kynnst yngsta lifrarþeganum
á sjúkrahúsinu sem hét Michael
og var aðeins þriggja vikna gam-
all, og hefði oft passað hann.
Guðlaug sagði að læknar sem
önnuðust Guðrúnu í Bandaríkjun-
um hefðu lokið lofsorði á frammi-
stöðu starfsbræðra sinna hér á
landi. Hún vildi koma á framfæri
þakklæti til lækna og hjúkrunar-
fólks á Landakoti sem annast
hefur Guðrúnu, en meðferðinni
hefur Sævar Halldórsson stjómað.
Einnig vildi hún þakka starfsfólki
á gjörgæsludeild Borgarspítalans
þar sem Guðrún gekkst undir
höfuðaðgerðina í lok sumars.
Læknir hennar þar var Aron
Bjömsson. Breskur læknir, Sheela
Sherlock, hefúr einnig annast
Guðrúnu fyrir milligöngu Bjama
Þjóðleifssonar læknis á Landsspít-
alanum. Aðgerðina á sjúkrahús-
inu í Pittsburgh framkvæmdi
Wallis Marsh.
„Saga þeirra er það, sem máli
skiptir, ekki þáttur okkar lækn-
anna, sem var í raun einfaldur
og sjálfsagður," sagði Sævar
Halldórsson, læknir, í samtali við
Morgunblaðið. „Það er fyrir
mestu, að Guðrún lenti á góðum
stað og var vel tekið þar, en Sig-
urður Pétursson, læknir í Pitts-
burgh var okkur mjög hjálplegur.
Þetta fór allt betur en við þorðum
að vona, en við verðum áfram að
vera í stöðugu sambandi við
sjúkrahúsið í Pittsburgh. Guðrún
er indæl stúlka og foreldrar henn-
ar prýðis fólk, sem gott hefur
verið að vinna með," sagði Sævar.