Morgunblaðið - 17.12.1986, Síða 30

Morgunblaðið - 17.12.1986, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986 Þjóðleikhúsið: Fjármagn vant- ar til viðgerða „ASTAND hússins er, vægast sagt, mjög slæmt, bæði að utan og innan," sagði Gísli Alfreðsson, Þjóðleikhússtjóri, aðspurður hvaða verkefni væri brýnast í viðhaldi og viðgerðum á Þjóð- leikhúsinu. „Það er búið að dæma klæðning- una utan á öllu húsinu ónýta. Það liggur fyrir áætlun hjá Husameist- ara um að skipta um klæðningu í áfongum á 5-8 árum,“ sagði Gísli ennfremur. „Við skiptum um klæðningu yfir inngangi árið 1984 og létum þá laga tröppur og stétt um leið. Það þyrfti þó að skipta fljótlega um klæðningu á öllu hús- inu, því hún er stórhættuleg þeim sem eru á ferð hér í kring. Mesta hættan er að vestanverðu, því þar gengur fólk alveg upp við húsið. Sem betur fer hafa enn ekki orðið slys á fólki þegar klæðningin brotn- ar, en maður veit aldrei hvenær það verður. Það þarf í rauninni ekki mjög vont veður til að lausir bitar hrynji hér út um allt. Við höfum lengi þurft að glíma við leka á þökum, en í sumar og haust var ráðin bót á því vanda- máli. Innanhúss eru ótal verkefni sem bíða okkar. Stólar í sal eru orðnir gatslitnir. Aklæðin eru alger- lega ónýt. Það má kannski segja sem svo að hægt sé að gera þá upp, en ég held að ódýrara yrði að skipta um stóla, ef maður hugsar til lengri tíma. Teppin í húsinu eru orðin hættuleg vegna slits. Það hefur í rauninni ekkert verið gert í viðhaldsmálum frá því Þjóðleik- húsið hóf starfsemi sína fyrir um 50 árum. Það er meir að segja aug- ljóst þegar maður kemur að húsinu. Lóðin hér í kring er algerlega óunn- in. Möl og drullupollar sem fólk þarf að ösla þegar það kemur á sýningar. Bílastæðismálin eru líka óviðunandi. Hjá Húsameistara ríkisins hefur verið unnin 5-10 ára áætlun um viðgerð á húsinu. Hún hljóðar upp á 100 milljónir króna. Hinsvegar lækkar upphæðin til Þjóðleikhúss- ins á fjárlögum með hveiju ári, þótt hún sé framreiknuð. A þessu ári fengum við 6 milljónir af íjárlög- um og á næsta ári gert er gert ráð fyrir 7.5 milljónum króna.. Það er því augljóst að íjárlög hafa verið algerlega óraunhæf á síðustu árum, að því er varðar Þjóðleikhúsið. Við höfum sótt um aukafjárveitingar en til þeirra hefur ekki komið. Þær viðgerðir sem þegar hafa verið ráðist í hafa kostat miklu meira en við höfum fengið á fjárlög- um. Við höfum því þurft að taka peninga úr rekstri til viðhalds og viðgerða. Það má nefna sem dæmi, að þegar við létum skipta um klæðningu yfir inngangi árið 1984, kostaði það 10 milljónir. Fjárveit- ingin frá Ríkinu dugði enganveginn til að standa straum af þeim kostn- aði. Við gerum okkur þó vonir um Rafn Gestsson húsvörður stingur fingrum inn í eina sprunguna á Ekki eru þetta traustvekjandi tröppur. veggjum Þjóðleikhússns. Teppin eru orðin hættuleg vegna slits og stólarnir gatslitnir segir þjóðleikhússjóri. Lekaskemmdir inni í húsinu eru “upp um alla veggi“. að úr þessu verði bætt. Sverrir Hermannsson, menntamálaráð- herra hefur sýnt þessu máli mikinn skilning. Við vonum að það hafi sín áhrif á Alþingi og flárveitingavaldið láti Þjóðleikhúsið hafa það fé til rekstrar sem bráðnauðsynlegt er. Við erum sjálf með ýmsar áætl- anir á pijónunum til að gera reksturinn hagkvæmari. Má þar nefna töluvert átak í markaðsmál- um, t.d. með því að tölvuvæða miðasölu. Auk þess þarf að breyta rekstrarfyrirkomulaginu, m.a. með því að setja stórar dyr á gafl húss- ins og fá geymsluaðstöðu fyrir leikmyndir úti í bæ. Þannig getum við geymt leikmyndir árum saman. Það er mjög óþægilegt að þurfa að hætta sýningum á ákveðnu stykki afþví að frumsýning á því næsta hefur verið ákveðin. Við höfum ekki pláss á sviðinu til að geyma leikmyndir. Leikhús lýtur sömu lögmálum og safn, það eignast leikmuni og bún- inga. Þetta þarf að geyma. Núna eru leikmunir og búningar geymdir á 6-7 mismunandi stöðum í húsinu og þremur úti í bæ. Plássleysið er varið að há okkur mikið. Stundum má meir að segja að ódýrara sé að sauma nýjan búning en reyna að finna þann gamla. Það getur verið svo mikið verk. Þetta ástand hefur haft mikil áhrif á starfsemina hér og ég held mér sé óhætt að fullyrða að hver einasti starfsmaður Þjóðleikhússins bíður spenntur eftir þeirri ákvörðun sem tekin verður á Alþingi," sagði Gísli Alfreðsson, Þjóðleikhússtjóri. Sigmund inn fyrir Kremlarmúra SOVÉSKA sendiráðið á íslandi hef- ur nú kannað innihald nýju Sigmund-bókarinnar frá Prenthús- inu og komist að þeirri niðurstöðu að hún ógni hvorki öryggi Sov- étríkjanna né stefni i hættu árangri byltingarinnar 1918. Því sé óhætt fyrir sendiráðið að taka við og koma bókinni áfram til Mikails Gorbachevs segir í fréttatilkynn- ingu frá Prenthúsinu. I fréttatilkynningu segir ennfremun „Eins og kunnugt er af fréttum ák- váðu útgefendur að færa leiðtogum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna að gjöf sérbundin árituð eintök bókarinn- ar „Sigmund í Stjömustríði", og afhenda þau í sendiráðum ríkjanna. Eintaki Ronalds Reagan var veitt móttaka sl. miðvikudag í bandaríska sendiráðinu með þökkum, en vomur komu á sovéska sendiráðið sem hafði ætlað að taka á móti bókinni þann sama dag. Kváðust starfsmenn sendi- ráðsins ekki treysta sér til að veita bókinni formlega viðtöku fyrr en þeir hefðu „kannað innihald hennar nán- ar“. Hér væri um skopteikningar að ræða, og þar sem málið varðaði æðsta valdamann Sovétríkjanna væri það mjög „viðkvæmt" og hinn nýi sendi- herra Sovétríkjanna á íslandi yrði að ákveða framhald málsins. Afhending bókarinnar gat þvi ekki farið fram eins og ráð var fyrir gert, en bókin var’-þó' skilin eftir I sendiráðinu til „nánari athugunar" ásamt bréfí og rússneskri þýðingu þeirra myndatexta bókarinnar sem ijalla um alþjóðamál og kváðust starfsmenn mundu láta útgefendur vita fljótlega, hvort og þá hvenær sendiráðið gæti veitt bókinni formlega viðtöku. Daginn eftir höfðu Sovétmenn komist að þeirri niðurstöðu að óhætt væri að þiggja eintak af henni handa leiðtoga sínum. Bók Sigmund, „Sigmund í stjörnu- stríði", flytur aðdáendum teiknarans úrval 126 mynda frá þessu ári. Hún er m.a. prýdd fjölda mynda frá „leið- togafundi Ronalds Reagan ogMikhails Gorbachev í Höfða fyrr á þessu hausti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.