Morgunblaðið - 17.12.1986, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 1986
Heimsmeistarakeppnin í rallakstri:
Sljörnustríð
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaidsson
Finnarnir fyrstir að venju. Timo Salonen og Seppo Harjanne unnu
RAC-rallið á Peugeot 205 Turbo, eftir baráttu við nokkra landa sína.
Bíll Kankkunen var óhijálegur eftir veltu á einni keppnisleiðinni.
Hann gafst þó ekki upp og varð þriðji, og Kanukken berst um titil
ökumanna í heimsmeistarakeppninni.
Tvær milljónir áhorfenda létu sig
hafa það að standa tímunum saman
á skógarveginum og í almennings-
görðum til að fylgjast með uppá-
halds ökumönnum sínum í
RAC-rallinu í Englandi í lok nóv-
ember. í fjögurra daga langri
keppninni, sem gildir til heims-
meistaratitils, voru líka saman-
komnar allar helstu stjömumar í
rallakstri. Keppnin var sú síðasta í
Evrópu sem leyfði sérhannaða
4-500 hestafla keppnisbíla, sem
verða bannaðir á næsta ári. Astæð-
an er einfaldlega sú að ökumenn
ráða ekki lengur skynsamlega við
þessi ofurfarartæki sem valdið hafa
slysum á árinu. RAC-rallið var því
svanasöngur þessara bíla, allir vildu
sjá þá og margir frægir ökumenna
ætluðu sér sigurinn. Var þvi um
sannkallað stjömustríð að ræða.
Síðan var baráttan um heimsmeist-
aratitil ökumanna í algleymingi.
Finnamir Juha Kankkunen á Pe-
ugeot og Marrku Alén á Lancia
áttu allt sitt undir keppninni komið
í slagnum um titil ökumanna. Pe-
ugeot hafði hinsvegar þegar tryggt
sér titil bílaframleiðenda.
Smábærinn Bath í Suður-Eng-
landi var þéttsetinn daginn sem 150
keppnisbflum var ekið af stað í
keppnina. Auk allra áhorfenda, sem
eltu keppnina um Bretland fylgdust
1.500 fréttamenn með framgangi
mála. Það var því til mikils að vinna
fyrir keppendur. Það kom líka á
daginn aið keppnin var mjög grimm,
eftir fyrsta daginn skildu aðeins 551
I sekúnda fyrstu tfu bflana að.
Kankkunen hafði forystu, en Alén
kom honum næstur, báðir voru
staðráðnir í að tryggja titil öku-
manna. Alén hafði samt tvívegis
farið útaf og ók því djarft. En fyrsti
dagurinn var bara upphitun, ekið
var um leiðir í almenningsgörðum,
en skógarleiðimar skiptu meira
máli. Á öðrum degi fóru hlutimir
að gerast, Kankkunen ók stíft og
hélt forskotinu fyrri hluta dags með
tíu bfla nánast í skottinu. Álagið
varð of mikið, tvívegis snarsneri
hann bflnum og sprengdi dekk í
leiðinni og tapaði tíma. Alén tók
við forystuhlutverkinu í skamma
stund, áður en félagi hans frá
Lancia, Finninn Mikael Ericsok, tók
til sinna ráða. Daginn fyrir keppni
var hann rekinn frá Lancia, en fékk
þó að aka í keppninni. Hann ók því
eins og griðungur til að sanna getu
sína fyrir eldri ökumönnum og lið-
stjómm Lancia, en Ericson er
tæplega þrítugur og því ungur mið-
að við stjömumíu-. Ericson hafði
forystu í lok annars dag, en aðeins
tvær sekúndur skildu hann að frá
Finnanum Timo Salonen á Peugeot
og Alén á Lancia, þremur sekúndum
á eftir kom svo Kankkunen. Þessir
kappar vom í sérflokki.
I byijun þriðja dags vonuðu Bret-
ar að heimamönnum gengi nú
betur. Breski meistarinn Mark Lov-
ell var hættur keppni eftir að vél í
Ford RS 200 hans bilaði og kveikti
um leið í bflnum, sem brann til
kaldra kola. Fljótasti Bretinn, Tony
Pond á Metro 6R4, hafði átt í vand-
ræðum vegna spmnginna dekkja
og Jimmy McRae á Metro var því
rétt á undan honum í sjöunda sæti.
En Finnamir §órir í forystu höfðu
engar áhyggjur af þessum köppum.
Sérleiðir í Skotlandi vom eknar
greitt og álagið jókst á ökumönnum.
Það hlaut eitthvað að klikka. Eric-
son fór fyrst útaf, lenti á föllnum
tijábol og skekkti framfjöðrunina
en hélt ótrauður áfram en fór aftur
útaf og tapaði mínútu. Kakkunen
var ekki eins lánsamur, fyrst rétt
slapp hann við að velta í krappri
beygju, en fór stuttu síðar útaf á
dágóðri ferð og endaði á hvolfí.
Áhorfendur þustu af stað og réttu
bflinn við. Kankkunen komst af
stað, en bíliinn var í döpm ásig-
komulagi og rúmar þijár mínútur
höfðu farið í súginn. Salonen og
Alén börðust á meðan um forystuna
og þegar kom að kvöldi hafði sá
fyrmefndi níu sekúndna forskot.
Ericson var þriðji, mínútu á eftir,
en Kankkunen fjórði þrátt fyrir
veltuna. Finninn Mikael Sundström
á Peugeot hélt fímmta sæti á undan
Tony Pond á Metro, sem var fyrst-
ur heimamanna.
Síðasti dagurinn rann upp og
ekið var um Wales. Allt gat enn
gerst, smámistök í akstri, spmngið
dekk eða bilun gat breytt stöðunni
á svipstundu. Alén ætlaði sér sigur-
inn, ók gífurlega hratt og kom á
sundurtættum dekkjum út af hverri
sérleið á fætur annarri, en Salonen
Heimsmeistarar í rallakstri tvö
ár í röð. Þetta geta starfsmenn
Peugeot-keppnisdeiidarinnar státað
sig af, eftir .að hafa tryggt sér
heimsmeistaratitil bílaframleiðenda
í ár. Á hveiju ári eyðir deildin tveim
milljörðum króna í rekstrarkostnað
undir stjóm keppnisstjórans Jean
Todt, enda mikið í húfí. Velgengni
í rallakstri þýðir aukna bflasölu á
almennum markaði og árangur
Peugeot 205 Turbo 16 bjargaði
verksmiðjunum frá vemlegum
skakkaföllum í fyrra, þegar fyrsti
titillinn leit dagsins ljós. Blaðamað-
ur Morgunblaðsins leit inn hjá
Peugeot-keppnisdeildinni skömmu
fyrir RAC-rallið.
Það er ótrúlega mikið mál að ná
árangri í heimsmeistarakeppninni
og kostar mikið fé. Fyrir nokkrum
ámm hönnuðu helstu bílaverksmiðj-
umar allar sérstaka fjórhjóladrifs-
bíla, sem eingöngu hafa verið
notaðir í rallakstri. Bflar búnir
250—500 hestafla vélum, byggðir
úr áli, stáli og plasti, svo þeir væm
sem léttastir. Hröðun bflanna er frá
2—3 sekúndum frá kyrrstöðu í
hundrað kflómetra hraða og sumir
þeirra hafa slegið Formula I-kapp-
akstursbílum við á malbikskeppnis-
brautum. Peugeot 205 Turbo 16
er einn þessara bfla og hefur unnið
hélt fengnum hlut. Bilið minnkaði
aðeins niður í sex sekúndur, þrátt
fyrir lætin í Alén. Þegar dró að
lokum keppninnar gerði Alén af-
drifarík mistök, hann valdi vitlaus
dekk undir bflinn og þó bflinn væri
fjórhjóladrifinn réð Alén ekki nægi-
lega vel við hann. Alén tapaði um
mínútu á Salonen, sem gat siglt af
öryggi í endamark eftir að hafa
haldið haus alla keppnina, með
Seppo Haijanne sér við hlið. Vann
Salonen þar með sinn annan sigur
á árinu, en Alén sætti sig við annað
sætið og dýrmæt stig. Sundström
hafði komið Peugeot sínum í þriðja
sæti, en hleypti á lokaleiðinni
Kankkunen framúr, svo hann fengi
fleiri stig til heimsmeistaratitils.
margar keppnir undanfarin tvö ár
og tryggt bæði titil bflaframleið-
enda og ökumanna. Salonen varð
heimsmeistari í fyrra og vann síðan
RAC-rallið fyrir skömmu á slíkum
bfl.
Nær allir hlutir í Peugeot-keppn-
isbflinn eru smíðaðir og samsettir
hjá keppnisdeildinni, sem skipar
áttatíu manna starfslið. I keppni
eru um þijú hundruð starfsmenn á
ferli vegna keppnisbflanna, sem oft-
ast eru tveir eða þrír talsins.
Hönnun bflsins er slík að skipta
má um fjöðrunarkerfi, yfirbygg-
ingu, drif og gírkassa og aðra hluti
á 10—20 mínútum. Allir starfsmenn
keppnisdeildar eru sérþjálfaðir við-
gerðarmenn og hönnuðir. Þegar
ráða á nýjan mann, er hann fyrst
prófaður í mánuð. Ef hann stendur
sig ekki, er annar ráðinn úr hópi
manna, sem eru á biðlista eftir að
vinna hjá keppnisdeildinni. Ástæð-
an er sú að ferðalög eru tíð, farið
er um alla heimshluta í hinum ýmsu
keppnum. Þar þarf gífurlegt skipu-
lag. I venjulegri keppni notar
Peugeot um tuttugu viðgerðarbfla,
hlaðna varahlutum og meðferðis
eru 1.000 dekk. Síðan er fjöldi að-
stoðarbfla, sem skjótast í smáverk-
efni eða veita blaðamönnum
upplýsingar meðan á keppni stend-
Ein milljón -
Ræsing keppninnar og endamark var í Bath. Hér bíða Juha Kankkun-
en og Juha Piironen eftir því að leggja af stað. Þarna var bíllinn enn
I góðu lagi...
Eftir keppnina munar aðeins einu
stigi á milli Alén og Kankkunen,
Alén í vil, og ein keppni er eftir.
Tíu fyrstu bflamir voru allir íjór-
hjóladrifnir og sérhannaðir rallbflar
nema Mazda 323 4x4 Ingvars
Carlssonar, sem varð tíundi. Hann
ók lítt breyttum fjórhjóladrifsbfl og
sigraði í sínum flokki. Skoda vann
fjörtánda árið í röð í minnsta vélar-
flokknum með aðstoð Ladislav
Krecek á Skoda 130 LR, en ísland-
svinurinn John Haugland varð
annar á sams konar bfl. David
Maseln vann í flokki óbreyttra bfla
á Mazda 323 4x4. Það voru því
stjömur í mörgum flokkum í RAC-
rallinu, af öllum stærðum og
gerðum.
Lokastaðan í RAC-rallinu
1. Timo Salnonen/Seppo Haijanne
2. Marrku AJén/Ilkka Kivimaki
3. Juha Kankkunen/Juha Piironen
4. Mikael Sundström/Voitto Silander
5. Kalle Grundel/Benny Melander
6. Tony Pond/Rob Arthur
7. Per Eklund/Dave Whitock
8. Jimmy McRae/Ian Grindrod
9. David Llewellin/Phil Short
10. Ingvar Carlsson/Jan O. Bohlin
Peugeot 205 Turbo
Lancia Delta S4
Peugeot 205 Turbo
Peugeot 205 Turbo
Ford RS 200
Metro 6R4
Metro 6R4
Metro 6R4
Metro 6R4
Mazda 323 4x4 Turbo
Refsi
klst.
5.21.11
5.22.33
5.27.16
5.27.42
5.29.32
5.30.14
5.33.12
5.35.08
5.40.38
6.00.33
Af 150 sem hófu keppni, komust
83 í endamark.
Texti og myndir:
Gunnlaugxir Rögnvaldsson
dropi í hafið
ur. Á fímmta tug bfla tengdust
Peugeot-keppnisliðinu í RAC-rall-
inu. Þessum íjölda þarf að stjóma,
auk flugvélar og þyrlu, sem sveimar
í grennd við keppnimar.
Það er því augljóst að ein milljón
dygði skammt í svona útgerð, hún
yrði dropi í hafíð. Milljón nægði
kannski í vasapening fyrir ökumenn
liðsins í nokkrar vikur, varla lengur.
Hér bíða tveir bílar tilbúnir
i slaginn, búnir vélum sem
skila frá 430—500 hestöfl-
um, allt eftir óskum
ökumannsins. Fremst á
myndinni eru dekk sem not-
uð eru í malbikskeppnum. Á
innfelldu myndinni sést að
greinilega er mikið spáð og
spekúlerað. Dekk mælt við
til að sjá hvort smíði bílsins
sé rétt og tveir kappar vinna
í tilvonandi vélarrýminu.
Vélin er staðsett í miðjum
bílnum til að bæta þyngdar-
hlutföllin.