Morgunblaðið - 11.01.1987, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987
mm m % 8 m II % ttmm-
& KVENNALEIKFIMI
■5K"«?SS*p-
feíSSss'
KJALLARINN
HAMRABORG 20 A KÓP. S: 46191.
KCLLatex
TAKIU HIUTMA FÖSTUM TÖKUHI
KCL Latex gúmmíhanskarnir eru
afar hentugir þar sem hreinlætiö
er í fyrirrúmi.
Þeir eru þunnir en sterkir og verja
hendurnar gegn skrámum,
óhreinindum, sterkum efnum og
annarri óáran sem þær geta
komist í tæri viö í daglegu
eldhúsamstri, viö
hreingerningar o.þ.u.l.
KCL Latex hanskarnir eru búnir
sérstökum gripfleti í lófanum
sem gerir þér kleift að taka
hlutina föstum tökum.
Farðu vel meö hendurnar þínar
notaðu KCL Latex gúmmí-
hanska.
K.RJCHTERhf.
Afmæliskveðja:
Guðmundur Bjarna-
son Stykkishólmi
Einn af traustum borgurum hér
í Hólminum varð 70 ára 6. þ.m.,
Guðmundur Bjamason vélstjóri,
sem hefir átt heima hér í Stykkis-
hólmi í rúm 44 ár. Ég hitti Guðmund
alltaf öðru hvoru, því við höfum
ýmislegt átt saman að sælda um
áratugi. Ég var með honum stofn-
andi útgerðarfélagsins Bjargar árið
1962 og síðar stofnuðum við ásamt
fleirum útgerðarfélagið Sævar og
loks útgerðarfélagið Sæfell. Þá var
ég í stjóm Flóabátsins Baldurs
meðan Guðmundur var þar vélstjóri.
Guðmundur er fæddur að Litla-
Nesi í Múlasveit. Foreldrar hans
vom þau Sólveig Árnadóttir og
Bjami Magnússon sem síðar áttu
heima í Búðardal. Var Guðmundur
elstur 8 bama þeirra. Þriggja ára
flutti Guðmundur að Hömmm í
Laxárdal og var þar til fermingar,
en þá lá leiðin að Stóra-Vatns-
homi. Þar var hann uns hann fór
til Vilhjálms Ögmundssonar að
Narfeyri, hins landsþekkta reikni-
meistara. Guðmundur byijaði
snemma að vinna og vann eins og
ævinlega húsbændum sínum af alúð
og trúmennsku. Eftir að hafa verið
um skeið á Narfeyri lá leiðin til
Stykkishólms. Þar hóf hann búskap
og kvæntist Herdísi Torfadóttur og
hafa þau átt heimili á Víkurgötunni
lengst af. Þau eignuðust 4 börn sem
öll em gift og hafa stofnað eigin
heimili.
Um 40 ára skeið var sjómennska
aðalstarf Guðmundar. Hann hóf
sjóróðra á mb. Olivette, undir skip-
stjóm Bergsveins Jónssonar. Á
sumrin var hann á smábátum. Á
flóabátnum Baldri var hann sam-
fleytt í 13 ár og frá þeim ámm
kann hann margar sögur af ævin-
týraríkum ferðum, bæði um Breiða-
Qörð og víðar. Hann var einnig lengi
vélstjóri á mb. Gullþóri, mb. Sæ-
ljóni, og mb. Tjald svo nokkrir séu
nefndir og alls staðar vélstjóri.
Honum var sýnt um vélar þótt lær-
dómur væri ekki mikill nema sjálfs-
nám. Vélamar hjá honum
Guðmundi vom altaf í lagi og hann
tók vel eftir ef vélahlutir fóm að
slitna og hafði varahluti til taks.
Er því ekki ofmælt að hann hafi
verið þarfur þeim útvegum sem
hann vann á. Nú vinnur hann í fisk-
vinnslu Sig. Ágústssonar hf. hér í
Stykkishólmi. Guðmundur er fast-
heldinn á hið forna en þó altaf opinn
fyrir nýjungum. Sumarsins njóta
þau hjón uppi í Álftafírði í hjól-
hýsinu sínu og þar ber margan
gest að garði. Góðan bíl á Guð-
mundur og heldur honum vel við
eins og öllu því sem hann hefir
undir höndum. Vinfengi hans hefi
ég fengið að njóta og þeirra hjóna
alla tíð frá viðkynningu og þar hefi
ég átt traustum og tryggum vinum
að mæta. Hann er góður borgari
síns bæjarfélags. Arni
Skemmtikraftamir Þuríður Sigurðardóttir, Hermann Gunnarsson,
Ragnar Bjarnason og Ómar Ragnarsson ásamt undirleikaranum
Hauki Heiðar, en auk hans annast undirleik í Þórskabarett hús-
hljómsveitin í Þórscafé, Santos sextettinn.
Nýr Þórskabarett
settur á svið
Söng-varinn Tommy Hunt í hópi skemmtikrafta
NÝR Þórskabarett hefur göngu
sina í veitingahúsinu Þórscafé
föstudaginn 16. janúar næstkom-
andi. í kabarettinum koma fram
þekktir islenskir skemmtikraftar
og erlendir gestaskemmtikraftar,
en hinn fyrsti þeirra er bandaríski
söngvarinn Tommy Hunt.
Þórskabarett hefur um árabil verið
ein vinsælasta skemmtidagskrá sem
flutt hefur verið í veitingahúsinu
Þór8café. Skemmtunin er einkum
hugsuð fyrir matargesti og hefst að
lokinni þríréttaðri veislumáltíð. Þeir
innlendu skemmtikraftar sem bera
uppi Þórskabarett að þessu sinni eru
Þuríður Sigurðardóttir, Hermann
Gunnarsson, Ragnar Bjarnason og
Ómar Ragnarsson auk dansara,
hljómsveitar og ýmissa gesta-
skemmtikrafta bæði innlendra og
erlendra. Fyrstur kemur fram sem
gestur í Þórskabarett bandaríski
söngvarinn Tommy Hunt, en hann
hefur meðal annars komið fram með
stórstjörnum á borð við Sammy Davis
jr., Stevie Wonder og Diönu Ross.
Undirleik í Þórskabarett annast
Haukur Heiðar píanóleikari auk hús-
hljómsveitarinnar í Þórscafé, Santos
sextettsins en hljómsveitina skipa:
Halldór Olgeirsson trommur, Gunnar
Guðjónsson bassi, Sveinn Guðjónsson
hljómborð, Þröstur Þorbjömsson gítar
og saxafónleikaramir Sigurður Jóns-
son og Einar Bragi Bragasona. Jón
Möller píanóleikari leikur dinnertón-
list fyrir matargesti. Að lokinni
skemmtuninni verður stiginn dans
fram eftir nóttu við undirleik Santos
og söngkonunnar Guðrúnar Gunnars-
dóttur.