Morgunblaðið - 11.01.1987, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
nlÐNTÆKNISTOFNUN
ÍSIOXNDS
Uppfinningar
vöruþróun
Rekstrartæknideild Iðntæknistofnunar
óskar að ráða starfsmann til að annast þjón-
ustu við uppfinningamenn og vöruþróun
ásamt annarri rekstrarráðgjöf.
Starfið krefst mikilla samskipta við uppfinn-
s ingamenn, fyrirtæki og ýmsa forsvarsmenn
í þjóðfélaginu.
Leitað er að manni með háskólamenntun
eða sambærilega menntun, helst með
reynslu. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti
unnið sjálfstætt og eigi gott með að starfa
með öðrum.
Allar nánari upplýsingar veita Haukur Al-
freðsson og Þorleifur Þ. Jónsson í síma
687000 kl. 8.00-16.30.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu, sendist á skrifstofu okkar fyrir
20. janúar nk.
Helstu sérsvið rekstrartæknideildar eru:
- stefnumótun, vöruþróun og markaðssókn.
* - framleiðslustjórnun.
- umbúðir.
- aðstoð við uppfinningamenn.
- námskeiðahald.
- aðstoð við stofnun fyrirtækja.
Sölumaður
fasteigna
Fasteignasala auglýsir eftir sölumanni. Upp-
lýsigar um aldur fyrir störf ofl. skilist auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir kl. 17.00 miðvikudaginn
14. jan. merktar: „Fasteignasala — 1506“.
Auglýsingastjóri
Frjálst framtak óskar eftir að ráða auglýs-
ingastjóra fyrir eitt af tímaritum sínum.
Starfið krefst:
.1. Samviskusemi og nákvæmni.
Mikilvægt er að viðkomandi sé sam-
viskusamur og nákvæmur í orðum
sínum og gjörðum.
2. Söluhæfiieika.
Viðkomandi verður að hafa til að bera
áhuga og hæfni í sölumennsku. Helst
er leitað að einstaklingi með reynslu.
Það er þó ekki skilyrði.
3. Sjálfstæðis.
Starfið er í eðli sínu sjálfstætt. Því þarf
viðkomandi að hafa skipulagshæfileika
og sjálfstæði.
Starfið býður upp á:
1. Góð laun.
Viðkomandi verður greitt í samræmi við
afköst. Góður starfsmaður hefur þannig
góð laun.
2. Vinnu í frísku fyrirtæki.
Starfið býður upp á vinnu í hraðvaxandi
fjölmiðlafyrirtæki með hressu og duq-
legu fólki.
Þeir sem hafa áhuga á að sækja um ofan-
greint starf, eru vinsamlegast beðnir um að
leggja inn skriflega umsókn sem tilgreinir
aldur, menntun, starfsreynslu og annað það
sem til greina gæti komið við mat á hæfni.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnað-
armál og öllum svarað. Skilafrestur umsókna
er til kl. 12.00 á hádegi föstud. 16. janúar.
Frjálstframtak
Ármúla 18
Garðyrkjumaður
Skóræktarfélag Eyfirðinga óskar eftir að ráða
garðyrkjumann til verkstjórnar.
Umsóknir sendist í pósthólf 621, Akureyri.
Upplýsingar veittar af framkvæmdastjóra í
síma 96 24047.
Skóræktarfélag Eyfirðinga
Gróðrastöðin í Kjarna
Tímaritið UNG
auglýsir
Það er deginum Ijósara, nú þegar daginn fer
að lengja og 3 tölublöð hafa litið dagsins Ijós,
að tímaritið UNG hefur rutt sér pláss á
íslenskum tímaritamarkaði og áhugi á blað-
inu er mikill.
Við viljum styrkja rekstur blaðsins enn frekar
og leitum nú logandi Ijósi eftir áhugasömum
samstarfsmönnum í blaðamennsku (rithöf-
undum og Ijósmyndurum) og auglýsingasölu.
— Allt lifandi og spennandi störf. —
Laun skv. samkomulagi. Aðeins metnaðarfullt
fólk með einhverja reynslu kemur til greina.
Umsækjendur vinsamlegast mæti í viðtal á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 15, 3.
hæð, mánudaginn 12. janúar.
Nánari upplýsingar fást einnig í síma 622844.
Sjúkraliðar
Á öldrunardeild B-5 og B-6, fullt starf eða
hlutastarf m.a., kl. 08.00-13.00, 17.00-22.00
og 23.00-08.00.
Á öldrunardeild Hvítabandsins, fullt starf
eða hlutastarf m.a., kl. 08.00-13.00 virka
daga.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra í síma 696600-351.
BORGARSPÍTALINN
O696600
Áhugavert starf
Fjárfestingarfélag íslands hf. óskar að ráða
til framtíðarstarfa harðduglegan og kapp-
saman viðskiptafræðing eða mann með
haldbæra starfsreynslu úr viðskiptalífinu.
Viðkomandi þarf að hafa gott lag á að um-
gangast fólk, vera áreiðanlegur, jákvæður,
fylginn sér og hafa gott vald á ensku.
Starf það sem í boði er felst í sölu á ýmiskon-
ar fjármálaþjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson
hjá Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
Vinsamlegast sendið umsóknir til skrifstofu
Hagvangs merktar: „FFÍ“ fyrir 17. janúar.
Hagvangurhf
RÁÐNÍNGARPJÓNUSTA
CRENSÁSVECI 13. 108 REYKJAVÍK
Sími: 83666
Útibússtjóri
til að veita forstöðu nýju útibúi hjá traustu
fyrirtæki.
Fyrirtækið er öflugt fjármálafyrirtæki með
víðtæka og vaxandi starfsemi.
í boði er áhugavert og krefjandi stjórnunar-
starf hjá fyrirtæki sem byggir á faglegum
vinnubrögðum. Góð laun og góð starfsað-
staða. Framtíðarstarf.
Starfssvið útibússtjóra: Stjórnun daglegs
reksturs, starfsmannahald, áætlanagerð,
samskipti og samningagerð við erlenda og
innlenda viðskiptaaðila.
Við leitum að viðskiptafræðingi/hagfræðingi
eða manni með aðra haldgóða viðskipta-/
rekstrarmenntun á háskólastigi. Nauðsyn-
legt er að viðkomandi hafi trausta og örugga
framkomu og eigi auðvelt með mannleg sam-
skipti. Reynsla af stjórnunarstörfum nauð-
synleg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson
hjá Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
Vinsamlegast sendið umsóknir merktar:
„Útibússtjóri" til skrifstofu okkar fyrir 21.
janúar.
Hagvangur hf
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
CRENSÁSVECI 13. 108 REYKJAVÍK
Sími: 83666
Lyfjaheildverslun
Óskar að ráða í eftirtalin störf:
Lyfjafræðingur (6)
Starfssvið:lnnkaup, innflutningur og sala á
lyfjum og skyldum vörum.
Meinatæknir (5)
Starfssvið: Innkaup, sala, og kynning á vör-
um fyrir rannsóknastofur.
Störfin gera kröfu um sjálfstæð og skipulögð
vinnubrögð. Góð enskukunnátta nauðsynleg.
Nánari uppl. veitir Þórir Þorvarðarson hjá
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. Vinsamleg-
ast sendið umsóknir á eyðublöðum sem
liggja frammi á skrifstofu okkar merktar núm-
eri viðknmandi starfs.
Hagvangur hf
RÁÐNINCARÞJÓNUSTA
CRENSÁSVEGI 13, 108 REYKJAVÍK
Sími: 83666
Atvinna óskast
Óska eftir vinnu, hef verið erlendis síðustu
árin. Hef verið verkstjóri við jarðvinnu. Er
með meirapróf, vanur rútu- og vörubílaakstri
og alls konar vélgæslu.
Upplýsingar í síma 39067.
Trésmiðir
Vantar nokkra smiði í uppslátt. Mikil vinna.
Upplýsingar í síma 16637 frá kl. 8.00-18.00
daga og í síma 53324 á kvöldin og um helgar.
Nemi í rafvirkjun
óskar eftir vinnu, helst við rafvirkjun. Er lærð-
ur vélstjóri með sveinspróf í vélvirkjun.
Uppl. í síma 75944.
Atvinna óskast
24 ára maður óskar eftir atvinnu sem fyrst.
Er vanur sölumennsku, lagerstörfum o.fl.
Upplýsingar í síma 26742 eftir kl. 16.00.
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖDUR