Morgunblaðið - 11.01.1987, Síða 55
55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987
Lækningastofa
Domus Medica
Breyttur viðtalstími: Viðtalstími verður alla
virka daga milli kl. 9—12 og fimmtudaga milli
kl. 16 og 18.
Viðtals- og vitjanabeiðnir daglega milli kl. 9
og 17 í síma 13774.
Dr. med. Frosti Sigurjónsson.
Aimennar heimilislækningar.
Golfhermir, ný önn 5. jan.—7. maí
1987
★ Fáeinir fastir tímar lausir.
★ Boðið er nú upp á fasta tíma aðra
hvora viku.
★ Lækkað verð um helgar.
Nánari upplýsingar gefur Jón Hjaltason í
síma 621599. Sporthúsið Öskjuhlíð
Gekk í veg
fyrir bíl
EKIÐ var á fullorðinn mann á
mótum Hringbrautar og Hofs-
vallagötu á föstudag. Maðurinn
slasaðist töluvert, en er ekki í
lífshættu.
Slysið varð um kl. 14. Bíl var
ekið á móti grænu ljósi austur eftir
Hringbrautinni. Maðurinn gekk út
á götuna í veg fyrir bílinn og snögg-
hemlaði ökumaðurinn. Maðurinn
fór þá lengra út á götuna og varð
fyrir öðrum bíl sem var ekið fram
úr hinum kyrrstæða. Hann skarst
töluvert og beinbrotnaði, en er ekki
í lífshættu.
Ungir fram-
sóknarmenn:
Brugðið verði
fæti fyrir Sverri
í ÁLYKTUN sem Framkvæmda-
stjórn Sambands ungra framsókn-
armanna sendi frá sér nýverið, eru
formaður og forystumenn flokks-
ins hvattir til þess að standa heils
hugar að baki Finns Ingólfssonar
í viðleitni hans við að bregða fæti
fyrir Sverri Hermannson mennta-
málaráðherra í gönuhlaupi hans
varðandi málefni Iánasjóðsins, eins
ogjjað er orðað í ályktununni.
Alyktunin er að öðru leyti á þann
veg að Framkvæmdastjóm SUF lýsir
yfir fullum stuðningi við þær hug-
myndir til lausnar lánasjóðsmálir.a,
sem fram koma í frumvarpsdrögum
Finns Ingólfssonar. Framkvæmda-
stjómin telur að í drögunum sé staðinn
vörður um stefnu Framsóknarflokks-
ins varðandi LÍN, enda sé þar ekki
gert ráð fyrir vöxtum á námslán eða
lántökugjaldi. Framkvæmdastjómin
hvetur námsmannahreyfingamar til
að standa vörð um þau markmið, sem
sett voru með lögunum frá 1982. Full-
um stuðningi SUF er heitið við
námsmannahreyfingamar.
Morgunblaðið/Július
Fullorðinn maður slasaðist töluvert þegar ekið var á hann á Hring-
braut í gær, en hann mun ekki vera í lífshættu.
ISLENZKUR
HEIMILISIÐNAÐUR
Við kynnum garndeildina okk
ar og veitum 15% afslátt af:
Lopa og bandi ogjurtalit-
uðu bandi fyrir útsaum og
vefnað, íslenskum
munstrum og efnum fyrir
útsaum, vefnaðargarni og
vefnaðaráhöldum, bóm-
ullarprjónagarni o.fl. o.fl.
Kynningin stendur fra 12.
janúartil 25. janúar.
Islenzkur heimilisiðnadur
Hafnarstræti 3, sími 11785.
garndeild, 2. hæð.
Golf