Morgunblaðið - 15.01.1987, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
23
Berlínarbúum innanborðs. Það var
svo ekki fyrr en í október 1950 sem
Hamborgarbúar tóku við stjóm
vallarins að nýju.
A sjötta áratugnum var efnahag-
ur Þýskalands endurreistur á eftir-
minnilegan hátt enda oft talað um
þýska efnahagsundrið í því sam-
bandi. Endurreisninni fylgdi gífur-
leg aukning_ í farþegaflugi í
Þýskalandi. Árið 1954 fóru 450
þúsund farþegar um Fuhlsbiittel.
Það sama ár fengu þýsk yfirvöld
óskorað vald yfir flugmálum lands-
ins og þá hófst á ný áætlunarflug
Lufthansa, sem hafði legið niðri frá
því í lok stríðsins. Lufthansa ákvað
þegar að gera Hamborg að aðal
viðhaldsmiðstöð flugvéla sinna og
heitir Lufthansa-Werft og stendur
á 60 hektara svæði við austan-
verðan Fuhlsbiittel-flugvöll í dag.
Fyrsta þotan lenti í Hamborg
árið 1959. Þotumar hrundu af stað
mikilli aukningu í fólks- og vöm-
flutningum um allan heim svo sem
alkunna er. Til að mæta þotuöldinni
og ört vaxandi umferð henni sam-
fara vom flugbrautimar á Fuhls-
buttel lengdar og nokkmm sinnum
hefur orðið að byggja við flugstöð-
ina og vöruskemmur. Árið 1960 fór
1 milljón farþega um völlinn og
1970 vom þeir orðnir 3 milljónir.
Fyrir þremur ámm kom til Ham-
borgar farþegi númer 75 milljón
síðan 1950!
Arnarf lug heldur uppi
merki íslands
íslensk flugfélög hófu áætlunar-
flug frá íslandi til Hamborgar á
sjötta áratugnum. Áður höfðu þau
stöku sinnum flogið þangað ein-
stakar leiguferðir. Loftleiðir mddu
brautina í áætlunarfluginu með
fyrstu ferðinni árið 1953 en hættu
því tíu ámm síðar, m.a. vegna þess
að umsvif félagsins í Luxemborg
uxu sífellt. Flugfélag íslands hóf
áætlunarferðir til Hamborgar árið
1955 og hélt því uppi í sjö ár, eða
til ársins 1962. Loks var það 23
ámm eftir að Loftleiðir hættu Ham-
borgarfluginu að Amarflug tók upp
þráðinn með áætlunarflugi sem
hófst sl. vor.
Loftleiðir höfðu mikil umsvif í
Hamborgarflugjnu. Árið 1957
störfuðu 12 manns á vegum félags-
ins í Hamborg og höfðu Loftleiða-
vélar viðkomu þar íjómm sinnum í
viku. T.d. árið 1953 vom Hamborg-
arferðirnar 26% af öllum flutning-
um Loftleiða. Á því tímabili sem
Loftleiðir stunduðu flug til Ham-
borgar, 1953—63, flutti félagið
24.488 farþega á leiðinni, eða rúm-
lega tvö þúsund á ári að meðaltali.
í dag er það Amarflug sem heldur
merki íslands uppi á Fuhlsbúttel-
flugvelli.
Nú 75 ámm eftir að menn ákváðu
að reisa loftskipaskýli á Fuhlsbtittel
sjást auðvitað engin loftskip þar
lengur og blaðamaður, sem oft hef-
ur átt leið um völlinn, hefur aldrei
orðið var við neitt sem minnir á þau
og fínnst eiginlega hálfgerð synd
að ekkert skuli vera til minja um
þann mikla stórhug sem tengdist
loftskipatímabilinu í Hamborg. í
stað loftskipanna forðum em nú
breiðþotumar allsráðandi á Fuhls-
btittel.
Á síðasta ári fóm 4,9 milljónir
farþega um völlinn, 60 þúsund tonn
af frakt og 13 þúsund tonn af
pósti. Að vísu hefur tekið mannsald-
ur að ná þessu marki með öllum
þeim sigmm og bakslögum sem
orðið hafa í þýskri flugsögu. Þrátt
fyrir allan afmælisglauminn í ár
hafa flugvallaryfirvöld ekki gleymt
að huga að framtíðinni. Ifyrir
nokkmm mánuðum var stefnan
sett á árið 2000 þegar ákveðið var
að bæta alla aðstöðu vemlega og
gera hana nýtískulegri. Hafm er
bygging flugöryggismiðstöðvar,
fyrirhugað er að reisa flugskýli fyr-
ir Boeing 747 risaþotur og byggja
landganga sem flugvélar koma til
með að leggja að svo fátt eitt sé
nefnt sem er á döfinni.
Ef Hamborg er í dag óhugsandi
án hafnarinnar frægu og góðu þá
er Hamborg án Fuhlsbúttel-flug-
vallar ekki síður óhugsandi.
Þróunarfélagið tek
ur 200 millj. kr. lán
NÝVERIÐ undirritaði Þróunar-
félag íslands hf. lánssamning að
fjárhæð tæpar 200 milljónir
króna. Lánið er tekið í banda-
ríkjadollurum og ætlað til
endurlána.
Þróunarfélagið leitaði eftir til-
boðum hjá nokkmm erlendum
bönkum og lánastofnunum og bár-
ust félaginu hagstæð tilboð. Einnig
var aflað tilboðs frá Framkvæmda-
sjóði íslands. Ákveðið var að semja
við Framkvæmdasjóð um að annast
hina erlendu lántöku og endurlána
félaginu. Var þetta gert með hlið-
sjón af því að hér var um fyrstu
lántöku félagsins að ræða og í til-
boði Framkvæmdasjóðs vom sveigj-
anleg tímamörk varðandi útgreiðslu
lánsins.
Undirritun lánssamnings önnuð-
ust fyrir hönd félagsins stjómar-
mennimir Ólafur Davíðsson og
Ólafur B. Thors ásamt forstjóra
félagsins Gunnlaugi M. Sigmunds-
syni. Sem fyrr segir, verður lánið
notað til að veita lán til þeirra verk-
efna sem uppfylla þau skilyrði sem
félagið setur hvað varðar arðsemi
og nýsköpun.
Félaginu barst á síðasta ári mik-
ill fjöldi umsókna og fyrirspuma.
Nokkuð vantaði á að margar um-
sóknanna uppfylltu þær kröfur sem
félagið gerir til undirbúnings mála
og arðsemi verkefna. Tíu mál vom
samþykkt frá félaginu á síðasta ári
og á annan tug mála em í frekari
athugun.
Hjá félaginu vinna nú þrír starfs-
menn og skrifstofur þess em til
húsa að Skipholti 37. I mars nk.
er ráðgert að félagið flytji starfsemi
sína að Suðurlandsbraut 22.
(Fréttatilkynning)
Frá undirritun lánssamninga Þróunarfélags íslands hf. við Fram-
kvæmdasjóð. Við borðið sitja fulltrúar Þróunarfélagsins, talið frá
vinstri: Gunnlaugur M. Sigmundsson forstjóri félagsins, Ólafur Daví-
ðsson stjórnarformaður og Ólafur B. Thors stjórnarmaður. Standandi
frá vinstri eru Guðmundur B. Ólafsson framkvæmdastjóri Fram-
kvæmdasjóðs og Þórður Friðjónsson stjómarformaður.
mnMnmai
7 vikna námskeið hefiast 14
Timi: 18.25-20 25 o« ?n J' J5'
Síðdegistímar kl nÍ f U5~22-^.
mmmmm
°8 15. janúar.
vegnasamr^
, Enste » ,7' 00-18.20
linli Ify’ reyns|u
Kennarar rne»
12 vifena narjisKe
heijast ^
Rituð
ENSKA/Þ
Att þú erfijj með að
/Skrifa ensku eða þýsku?
26. janúar hefst 10
vikna námskeið. Kennt
rnferdurminu sintii í viku,
tyoddukkutíma í senn. /
ENSKUSKOLI
12 V I K N A
N Á M S K E I Ð
H E F J A S T
19. JANÚAR
Enskuskóli æskunnar er
fyrir börn á aldrinum
8-13 ára og þeim er skipt
í hópa eftir kunnáttu.
Skólinn er starfræktur í
BREIÐHOLTI,
VESTURBÆ OG
HAFNARFIRÐI
ÆSKUNNAR
pplýsingar og innrituri í síma 11109/10004/21655