Morgunblaðið - 25.01.1987, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987
23
norrænum nafnalistum. íslenski
hópurinn er skráður í bókina
nokkrum blaðsíðum fyrir aftan
kardínálann. Nöfn þeirra eru á
vinstri spássíu og það má draga
þá ályktun af rithönd munksins
að þeir hafi verið einir á ferð.
Onnur nöfn á blaðsíðunni eru ekki
rituð af sama manni og skráði
nöfn þrettánmenninganna.
Jón Sigurðsson, forseti, skrifaði
ritgerðina „Nafnaskrá íslenzkra
suðurgöngumanna" árið 1876 og
taldi að Islendingarnir, §órar kon-
ur og níu karlmenn, hefðu verið
á ferð við Bodensee í kringum
1100. En prófessor Naumann tel-
ur að þeir hafi verið seinna á
ferðinni. Jón sá ekki frumrit bók-
arinnar og hélt að Steini, sem er
nefndur á hægri spássíu á sömu
síðu og Islendingamir, hafi verið
með þeim á ferð. Hann taldi að
Steini þessi væri Steini Þorvarðar-
son, prestur í Stafholti, og komst
að þeirri niðurstöðu að hópurinn
hefði verið á ferð í kringum alda-
mótin 1100.
Naumann telur að hópurinn
hafí ekki verið á ferð fyrr en í
kringum 1170. Á einum stað í
bókinni er þess getið að Thrui
nokkur hafí játist þriðja í páskum
30. mars. Útreikningar sýna að
páskadagur var 28. mars árin
913, 924, 997, 1003, 1008, 1087,
1092, 1171, 1182 og 1193 áþess-
um öldum. Ekki þykir ólíklegt að
Thrui þessi hafí verið á ferð um
svipað leyti og Islendingamir.
Finnur Jónsson taldi að Vigdís og
Kolþerna, sem eru á íslendinga-
listanum, væru hinar sömu og er
getið í Sturlungasögu. Þar greinir
frá Þóri hinum auðuga, bróður
Vigdísar, sem fór með konu sinni
Þorlaugu í Rómarferð og sneri
aldrei aftur. Þórir lést í Lucca
árið 1177.
Það er ekki útilokað að ætt-
menni Þóris og aðrir trúaðir
fslendingar hafí haidið í pflagríms-
ferð til Rómar eða alla leið til
Jerúsalem um svipað leyti og
hann. Naumann segir að algeng-
asta leið suðurfara á þessum áram
hafi verið meðfram Rínarfljóti til
Basel og þaðan yfír St. Bemard-
skarðið til Ítalíu. Reichenau er 100
km frá Basel og góðan spöl úr
leið fyrir fótgangandi fólk.
Pflagrímar fóra um 20 km á dag
svo að það hefur tekið íslending-
ana 5 daga að komast til klaust-
ursins. En eyjan var þekkt fyrir
kirkjulíf. Þar vora 5 eða 6 kirkjur
auk klaustursins og ekki unnið
nema 230 daga á ári, aðrir dagar
vora hátíðardagar kirkjunnar.
Auk þess vora gersemar klaust-
ursins víðfrægar. íslendingamir
kunna því að hafa ákveðið að taka
á sig krók til að lyfta sér upp á
Reichenau og til að skoða safn
klaustursins. Ferðin borgaði sig
svo sannarlega. Þeir vora skráðir
í bræðralagsbókina og era þar
með ódauðlegir.
Þijár kirkjur standa enn á
Reichenau frá þeim tíma sem ís-
lendingamir vora á ferð. Þeim er
vel haldið við og hafa varðveist
vel. Dómkirkjan við klaustrið býr
enn yfir nokkram gersemum en
helstu listaverk klaustursins era
nú á söfnum annars staðar í Vest-
ur-Þýskalandi. St. Georg-kirkjan,
sem maður kemur fyrst að ef
maður ekur eftir „Vegi heimspek-
inganna" út á eyjuna, er skreytt
veggmyndum frá 1000. Loftið í
kirkjunni St. Peter und Paul, sem
er yst á Reichenau, hefur verið
gert upp og gjöreyðilagt en kirkj-
an er annars mjög falleg. íslend-
ingar sem era á ferð á þessum
slóðum gætu haft ánægju af að
feta í aldagömul fótspor landa
sinna og skoða sig um á græn-
metiseyjunni miklu. En hún ku
einmitt vera svo gróðursæl af því
að munkamir í Reichenauklaustri
hreinsuðu hana af snákum og
sníkjudýram þegar þeir hófu akur-
yrkju á eyjunni.
1 —
Suðurnesjamenn athugíð
6',ebrua
n.OO. GUBSÍteOU,í SW,! sími 92-2526.
eina s,n„ a Suðurnesjum.
Ain i-
og félagarí 15
manna stór
hljómsveit hans,
m.a. þeirDave
Bartholomew, Herb
Hardesty, Lee Allen
og allir hinir koma nú
til íslands aftur
29.janúarog
skemmta á
eftirtöldum stöðum:
BKCADWAy
30. og 31. janúar, 15., 6. og 7.
febrúar.
Miða- og borðapantanir í símum 77500
og 641441.
Ath. ósóttar pantanir verða seldar í dag frá ki. 14—17
og næstu daga.
Sjallinn
Akureyrí, 2., 3. og 4. febrúar.
Miða- og borðapantanir í símum
96-22525 og 96-22970.
Sætaferðir f rá Húsavík, Dalvík, Raufarhöfn,
Siglufirði, Ólafsfirði, Sauðárkróki og
Blönduósi.
FATS OG FÉLAGAR SLÓU SVO SANNARLEGA í GEGN í BROADWAY í APRÍL SL.
ÞAÐ ER MÁL MANNA AÐ ALDREI FYRR HAFITÓNLEIKAR Á ÍSLANDIVERIÐ JAFN
FJÖRUGIR OG SKEMMTILEGIR OG ÞÁ. FATS OG
FÉLAGAR TÓKU MIKLU ÁSTFÓSTRI
VIÐ LAND OG ÞJÓÐ OG ÞESS VEGNA KOMA
ÞEIRAFTUR.
R A ISLANDI VERIÐ JAFN
Sjallinn
Missið alls ekkiafþessum einstæða atburði. IBROADVW