Morgunblaðið - 25.01.1987, Page 40

Morgunblaðið - 25.01.1987, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987 Þannig var umhorfs í Vestmannaeyjum viðupphaf vélbátaútgerðar skömmu eftir aldamótin. Myndin sennilega tekin um 1910. Frá örófialda var hafnarsvæðið opið fyrir ágangisjávar og austan vinda. Voru stórslys og ijón tíð áður en hafnargarðarnir á Hringskeri og Hörgeyri komust upp. Meðþeirri mannvirkjagerð tókst að bægja mestum hættum frá. Garðamir voru byggðir með ótrúlegriþrautseigju og dugnaði á árunum 1912 til 1930. Á ýmsu gekk og enn er til í munnmælum öldunga kviðlingur erþá varð til: Jóhannes staflar steinun- Jiám / með sterkum handleggsbeinunum / næsta dagspyr náunginn / Nielsen, hvar ergarðurinn? Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja 125 ára: Hóf starfsemina með því að tryggja ellefu stórskip Sjálfstæðisbaráttan á öldinni sem leið markaði heillarík spor, sem þjóðin býr að og upp úr standa víða kennileiti og minnisvarðar sem vert er að huga að og heiðra. Frá því sögur hófust hafa Vestmanna- eyjar og íbúar þeirra verið samofnir hafínu sem þær umlykur. Eða eins og kveðið var: „Þangað lífsbjörg þjóðin sótti, þar mun verða stríðið háð.“ Lífsafkoman hefur fyrst og fremst byggst á öflun lífsviðurvær- is úr greipum hafsins. Um aldaraðir var sjórinn sóttur á opnum skipum og á þeim tímum var handfærið einasta veiðarfærið og notað allt fram undir síðustu aldamót. Oft þrengdi að með afla- og gæftaleysi og þá var hungur og allsleysi jafnan nærri bæjardyrum manna. I byijun 19. aldar var íbúa- tala Vestmannaeyja komin niður í 174 en var 237 manns árið 1787. Þegar kom fram á öldina fór Félagið hefur átt þátt í mörgum framfaramálum byggðarlagsins Morgunblaðið/Sigurgeir. Eftirjarðeldana 1973 heyra áhyggjur sjómanna og útgerðarmanna um báta sína íaustanveðrum ogland- synningi sögunni til. Vestmannaeyjahöfn er orðin meðþeim skjólbestu á Iandinu. Fremstá myndinnimá sjá skrúf una af gamla Þór á veglegum stöpli innst í Friðarhöfn. Hún er til að minna á framtak Vestmann- eyinga og forustu í björgunarmálum. Þór var fyrsta björgunar- og varðskip íslendinga og upphafið að Landhelgisgæslunni. ~ Bátaábyrgðarfélag Vestmannaeyja verður 125 ára næstkomandi mánudag, 26.janúar. Sannkallaður merkisatburður sem vert er að minnast. Félagið er langelst allra tryggingafé- laga á landinu og það á að baki ákaflega merkilegan starfsferil. Því hefur fylgt mikil gifta allt frá upphafi. Það hefur vel verið byggt undir það sem enn stendur, 125 árum eftir að frumheijarnir reistu merkið. Félagið er enn í vexti og það dafnar vel. Á þessu merka félagi sjást engin ellimerki og það hlýtur að vera ósk allra Vestmanneyinga félaginu til handa á þessum merku tímamótum, að það megi halda áfram að dafna og eflast. Frétta- ritari Morgunblaðsins gekk á fund Jóhanns Friðfinnssonar, forstjóra Bátaábyrgðarfélagsins, og það sem hér fer á eftir er byggt á upplýsingum sem hann lét blaðinu í té. Ekki eru tök á því að gera þessu merkisafmæli þau skil sem vert væri, því sagan er jú löng. Mb. Ófeignr III VE 325 var fyrsti sérsmíðaði stálfiskibáturinn fyrir íslendinga. Eigendur Ólafur Sigurðsson frá Skuid og Þorsteinn Sig- urðsson frá Blátindi. Ófeigur hefur reynst hin mesta happafleyta og rær enn til fiskjar frá Eyjum. IBrautryðjandinn. Frumkvöð- ullinn að stofnun Báta- ábyrgðarfélags Vestmanna- eyja varBjamiE. Magnússon sýslumaður (1831-1876). Mik- ill merkismaður sem markaði djúp spor ísögu Vestmanna- eyja. Bjarni var sýslumaður Vestmannaeyjasýslu í 11 ár, frá 1861 til 1871 aðhann fékk veitingu fyrir Húna- vatnssýslu. Þegar á öðru ári veru sinnarí Vestmannaeyj- um gekkst hann fyrir stofnun Skipaábyrgðarfélags Vest- mannaeyja. Hann lét sér og mjögannt umýmis önnur framfaramál í Eyjum, var einn helsti hvatamaður að stofnun Lestrarfélags Vest- mannaeyja og eignaðist góðan bókakost. Hann var ötull forvígismaður að barna- fræðslu og ræktunarstarfi á Heimaey. BjarniE. Magnús- son varð bráðkvaddur 45 ára gamall, 25. maí 1876 og var öllum harmdauði. heldur að rofa til og farið var að gæta tilslakana á einokunarvaldinu sem svo lengi hafði þjakað þjóðina. Menn fóru að horfa til athafnafrels- is. Og eins og slysfarir og dauði fylgir öllu lífi höfðu eyjabúar ekki farið varhluta af manntjónum og skipssköðum. Oft voru skörðin stór og sorgin þungbær. Þegar auk þessa fylgdi óbættur eignamissir þeirra sem eftir stóðu, er ekki að undra þótt úrræða hafi verið leitað til að vega hér upp á móti. Þetta var í örfáum orðum sagt forspilið, aðdragandinn, að stofnun Skipaábyrgðarfélags Vestmanna- eyja, þann 26. dag janúarmánaðar árið 1862. Undir þessu nafni starf- aði félagið fram til ársins 1907. Það ár var nafninu breytt í Báta- ábyrgðarfélag Vestmannaeyja enda var þá öld vélbáta gengin í garð. Fyrstu vélbátamir gengu til sjó- róðra vertíðina 1906. Jóhann Friðfinnsson hefur þetta að segja um stofnun Bátaábyrgðar- félagsins: „Sú var gæfa Eyjanna, að árið 1861 kom hingað ungur sýslumaður, Breiðfirðingurinn Bjarni E. Magnússon, en segja má að með komu hans hafi verið brotið blað í söguna. Má í því sambandi nefna forgöngu hans um stofnun Skipaábyrgðarfélags, bókasafns, upphaf bamafræðslu og ræktunar á Heimaey. Stofnun Skipaábyrgð- arfélagsins er ein hin merkasta sem um getur meðal þjóðarinnar á þeim tíma og sú lang árangursríkasta miðað við að hafa staðið af sér öll áföll á sínum langa starfsferli. Hún rís í dag hátt yfir allar sambærileg- ar tilraunir er síðar vom gerðar annars staðar í svipuðu skyni. Má fyrst og fremst þakka það braut- ryðjandanum og þeim ágætu mönnum sem gegnum tiðina hafa haldið kyndlinum á lofti.“ I stofnskrá félagsins segir svo um tilganginn: „. . . að efla og styrkja sjávarútveg Vestmannaeyja með því að tryggja þá, er eiga í skipum, er ganga til fiskveiða á vertíð, gegn skaða þeim, er skip þessi geta orðið fyrir bæði á sjó og landi.“ í upphafí var aðeins um tryggingar stórskipa að ræða, en svo vom tíæringar, áttæringar og sexæringar nefndir. Voru skip þessi 11 talsins 1862 og hélst tala þeirra svipuð fram yfir aldamót, en fór þá vaxandi. Árið 1906 komu vélbát- arnir til sögunnar. Töluverðar umræður urðu hvort taka ætti þá í tryggingu. Fyrsta árið vom tveir vélbátar í tryggingu hjá félaginu en árið eftir, 1907, vom 19 vélbát- ar í tryggingu. Og þá var nafni félagsins breytt sem fyrr getur. Árið 1901 vom íbúar í Eyjum 607 en 10 ámm síðar, er vélbátaútgerð- in var komin vel á legg, vom íbúarnir orðnir 1.492. Þetta segir mikla sögu. Eins og að líkum lætur hafa skipst á skin og skúrir í rekstri og afkomu félagsins en ávallt hefur því tekist að standa við allar sínar skuldbindingar gagnvart viðskipta- mönnum. Það var ástæðan fyrir því að félagið fékk endanlega þá viður- kenningu löggjafans 1949, að fá að starfa sjálfstætt samkvæmt eig- in lögum. Frá því Samábyrgð íslands á fiskiskipum var stofnuð hefur Báta- ábyrgðarfélagið endurtryggt áhættuna hjá félaginu. Árið 1885 vom fæst skip í tryggingu, 6 að tölu, 1922 vom bátamir orðnir 53, 1942 81, 1959 104, 1972 68 og þeir em nú 34. Þessar tölur segja sína sögu. Eftir 1960 fóm skipin stækkandi og félagið hafði ekki tök á að fá þau öll í viðskipti, enda lengi reglur þar um og ekki eru í skyldu- tryggingu hjá félaginu skip yfír 100 tonn. Til að bæta sér upp fækkun skipa > tryggingu hefur félagið reynt að auka reksturinn á annan veg. Fyrir t

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.