Morgunblaðið - 25.01.1987, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANUAR 1987
45
og jarðvegi við landnám, en gróður-
eyðing af manna völdum hefur ekki
síst verið stór þáttur þar.
Fram til þessa hefur skort heild-
stæða stefnumótun í umhverfismál-
um hér á landi, ólíkt því sem er í
flestum nágrannalöndum okkar.
Engin heildarlöggjöf hefur enn ver-
ið sett um þennan mikilvæga
málaflokk og með ýmsa þætti um-
hverfismála er nú farið í níu
ráðuneytum.
Markmið þessarar þingsályktun-
artillögu er að fela ríkisstjóminni
að marka ákveðna heildarstefnu í
umhverfísmálum þar sem ijallað
verði um það hvemig þessum mál-
um verði best skipað í framtíðinni
Dæmi um mengun sem auðvelt
er að kippa í lag.
bæði í löggjöf í stjómsýslu, og
gmndvöllur lagður að samvinnu
allra, sem hér eiga hlut að máli,
um nýskipan þessara mikilvægu
mála.
í þeim efnum þarf m.a. að hyggja
að því að hve miklu leyti æskilegt
og skynsamlegt er að endurskipu-
leggja yfírstjóm einstakra þátta
umhverfísmála í Stjómarráði ís-
lands og taka upp skipulagsbundna
samvinnu allra þeirra stjórnsýsluað-
ila sem hér eiga hlut að máli. Þá
þarf einnig að huga að endurskoðun
laganna um náttúruvemd, en sú
endurskoðun er þegar vel á veg
komin.
Gæta þarf sérstaklega að því að
hagnýtingu lands verði ætíð hagað
svo að um gróðureyðingu verði ekki
að ræða, m.a. með takmörkun beit-
ar og framkvæmd ítölu, en vemleg
gróðureyðing á sér stað ár hvert
eins og nú standa sakir. Jafnframt
þarf að endurskoða ákvæði um
mengunarvamir í íslenskum lögum
en þar er fýrst og fremst um að
ræða kafla í lögum nr. 109/1984
um hollustuhætti og heilbrigðiseft-
irlit.
Þá þarf að undirbúa sérstakt
átak til þess að draga úr megnun
frá frárennsli í þéttbýli og frá verk-
smiðjum og öðmm iðnaði, en slík
mengun er nú vaxandi vandamál
víða um land. Þar kemur til greina
að auðvelda sveitarfélögum kostn-
aðarsamar úrbætur vegna frá-
rennslis með sérstakri lánafyrir-
greiðslu.
Mað mótun nýrrar umhverfis-
málastefnu þarf einnig að taka tillit
til mjög vaxandi umferðar ferða-
manna og setja nýjar reglur um
umgengni þeirra og samgönguhætti
til vemdar náttúm landsins.
Þá þarf að auka vemlega frá því
sem nú er fræðslu í skólum landsins
og í fjölmiðlum um mikilvægi um-
hverfísverndar og þann þátt sem
hún getur átt í bættum lífsskilyrð-
um og lífsgæðum þjóðarinnar á
komandi ámm.
Hér hafa aðeins verið talin nokk-
ur þeirra atriða sem huga þarf að
við mótun heildarstefnu í umhverf-
ismálum. Ýms vandamál sem
nágrannaþjóðir okkar eiga við að
etja þekkjum við enn aðeins í litlum
mæli vegna strjálbýlis í landinu.
Engu að síður er vissulega tíma-
bært að þessu máli verði meiri
gaumur gefínn af hálfu stómvalda
og Alþingis en hingað til og farsæl
framtíðarstefna mótuð um vemdun
lífs og lands.“
Með þessum orðum lýkur grein-
argerðinni. Vonandi er að þingmenn
beri gæfu til að flýta afgreiðslu til-
lögunnar á næstu mánuðum svo
hægt verði að taka á þessu máli
af festu og koma því í gott horf á
næsta kjörtímabili.
- HV
Unglingar vinna að snyrtingu og fegrun umhverfis hér á landi og
er það þakkarvert.
Stúdentar
MR '67
Umræðufundur í tilefni 20 ára útskriftar verður í Hreyfilshúsinu
v/Grensásveg fimmtudaginn 29. janúar kl. 20.30.
Bekkjarráö.
FLUGSKÓLI
Nú er tækifærið!!
Flugskólinn Vesturjlug býður
uppá eftirfarandi nám:
1. Sóló-próf. Fyrstu réttindi, flýgur einn undir eftirliti
frá kennara.
2. Einkaflugmannsréttindi, bókleg og verkleg. Fyrir
þá sem vilja njóta flugsins sem tómstundagamans.
3. Blindflugsréttindi, bókleg og verkleg. Gefur aukna
möguleika fyrir einkaflugmenn, m.a. nauðsynlegt
ef flogið er til útlanda.
4. Atvinnuflugmannsréttindi, verkieg. Uppgangur er
í flugi, hafa því atvinnumöguleikar sjaldan verið
betri.
5. Endurhæfing, bókleg og verkleg. Fyrir alla flug-
menn.
Vesturflug er staðsett í nágrenni innanlands-
flugs Flugleiða.
Næsta námskeið hefst
2. febrúar næstkomandi.
Hringdu í síma 28970 eða líttu inn.
„Sjarmerandi"
satínnáttföt, jakki,
buxur og sloppur.
Sérstaklega
vandað satín,
mjúkt og létt.
Fallegir litir,
mildir eða líf-
legir að vild.
ŒB AUGíySINGAPjONUSTAN/ SÍA
Þau eru komin!
litið magn. Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
Pósthússtræti 13, sími 22477.