Morgunblaðið - 25.01.1987, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. JANÚAR 1987
51
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Vélstjóra
og vélaverði vanta á mb Eyvind Vopna NS
70 og Lýting NS 250 sem gerðir eru út frá
Vopnafirði.
Upplýsingar í síma 97-3143 á daginn og síma
97-3231 á kvöldin.
Trésmiðir
Vantar nokkra trésmiði í byggingarvinnu.
Mikil verkefni framundan.
Upplýsingar í síma 16637 frá kl. 8.00-18.00
frá mánudegi til föstudags.
Stýrimaður
óskast á m/b Albert Ólafsson KE 39.
Upplýsingar í síma 92-1333 eða 92-2304.
Sunnuhlíð
Kópavogsbrouf I Simi 45550
Við leitum að starfsmanni á aldrinum 35-45
ára til fjölbreytilegra starfa á skrifstofu. Starf-
ið er hlutastarf.
Viðkomandi þarf að hafa góða framkomu,
staðgóða almenna menntun, ásamt góðri
vélritunarkunnáttu.
Æskilegt er að viðkomandi kunni skil á launaút-
reikningum og geti hafið störf 1. mars 1987.
Umsóknirmerktar: „Sunnuhlíð— 1766“ legg-
ist inn á auglýsingádeild Mbl. fyrir mánudag-
inn 2. febrúar 1987.
Ritari
Opinbert fyrirtæki vill ráða ritara til starfa
eftir hádegi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur og
fyrri störf sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
30. janúar nk. merktar: „SB — 2000“.
JL-húsið
auglýsir eftir starfskrafti í leikfangadeild. Einn-
ig afleysingafólk um helgar í ýmsar deildir.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Sumar 87
Spennandi tækifæri
Hefur þú áhuga á að skapa þér nafn sem
matreiðslumaður? Á einum vinsælasta mat-
sölustað á landinu er laus staða fyrir sjálf-
stæðan og hugmyndaríkan kokk.
Umsóknir með öllum upplýsingum sendist
auglýsingadeild Mbl. merkt: „Hótel — 2069“
fyrir 1. febrúar.
Hjúkrunarfæðingar
— Sjúkraliðar
Óskum að ráða hjúkrunarfræðinga og sjúkra-
liða nú þegar eða síðar.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
92-7151.
Dvalarheimili aidraðra,
Suðurnesjum,
Garðvangur,
Garði.
RIKISSPITALAR
LAUSARSTÖÐUR
Yfirlæknir
óskast við Röntgendeild Landspítalans. Á
sérsviði yfirlæknis þessa er forstaða, stjórn-
un og þróun sérhæfðra myndgerðarrann-
sókna í hjarta- og æðakerfi. Ennfremur
þátttaka í stjórnunarstörfum deildarinnar
samkvæmt erindisbréfi.
Umsækjandi skal hafa staðgóða sérfræði-
menntun í almennri röntgen- og myndgrein-
ingu, en auk þess sérhæfða menntun, reynslu
og starfsþjálfun í röntgen- og öðrum mynd-
gerðarrannsóknum á hjarta- og æðakerfi.
Upplýsingar um stöðuna veitir forstöðulæknir
deildarinnar, Ásmundur Brekkan prófessor.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna
skulu sendar stjórnarnefnd ríkisspítala fyrir
27. febrúar 1987.
Aðstoðarlæknar
óskast við Kvennadeild Landspítalans. Um 4
stöður er að ræða. Ein eins árs staða veitist
frá 15. mars nk. Tvær ársstöður veitast frá
1. júní nk. og ein 6 mánaða staða veitist frá
1. júlí nk.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum fyrir
lækna sendist skrifstofu ríkisspítala fyrir 25.
febrúar nk.
Upplýsingar veita yfirlæknar Kvennadeildar
í síma 29000.
Hjúkrunarfræðingar
óskast við Vistheimilið Vífilsstöðum einkum
á kvöldvaktir og um helgar. Sveigjanlegur
vinnutími mögulegur.
Starfsfólk
óskast við Vistheimilið Vífilsstöðum sem er
meðferðardeild fyrir vímuefnaneytendur.
Uppýsingar um ofangreindar stöður veitir
hjúkrunarstjóri Vistheimilisins Vífilsstöðum í
síma 656570.
Hjúkrunarfræðingar
óskast við blóðskilunardeild Landspítalans
(gervinýra) nú þegar eða eftir samkomulagi.
Unnið er á dagvöktum. Boðið er upp á aðlög-
un og þjálfun á staðnum.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar
óskast á lyflækningadeild 3 (hjartadeild).
Boðið er upp á aðlögun.
Upplýsingar um stöður þessar veitir hjúkr-
unarframkvæmdastjóri lyflækningadeildar í
síma 29000-485 eða 487.
Fóstra
óskast nú þegar til afleysinga í hlutastarf við
dagheimili ríkisspítala á Vífilsstöðum.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimil-
isins í síma 42800.
Starfsmaður
óskast á skóladagheimili ríkisspítala Litluhlíð í
hálfa vinnu frá kl. 15.00-19.00 á virkum dögum.
Upplýsingar veitir forstöðumaður dagheimil-
isins í síma 29000-667.
Reykjavik, 25.janúar 1987.
Mjög góður
starfskraftur
óskar eftir vinnu.
• Vanur vélabókhaldi.
• Stærðfræði- og tölvukunnátta á háskóla-
stigi.
• Mjög góð tungumálakunnátta í norður-
landamálum og ensku.
• 6 ára starfsreynsla erlendis.
• Margt kemur til greina.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„S — 2065“ fyrir 30. janúar.
Afgreiðslustörf
Óskum að ráða duglegt og áreiðanlegt
starfsfólk í verslun okkar Skeifunni 15.
- í kjötborð (heilsdagsstarf).
- í skódeild (hlutastarf eftir hádegi).
- Á kassa (heilsdagsstarf).
- í herradeild (hlutastarf eftir hádegi kemur
til greina).
- Hraustan ungling allan daginn.
Við leitum að fólki sem hefur góða og
örugga framkomu og á auðvelt með að veita
viðskiptavinum okkar sem besta þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri
(ekki í síma) mánudag og þriðjudag frá kl.
16.00-18.00.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á staðnum.
HAGKAUP
Skeifunni 15.— Starfsmsnnahald.
0
Afgreiðslustarf
f matvöruverslun
Við viljum ráða nú þegar starfsfólk til ýmissa
afgreiðslustarfa í SS-búðirnar.
Leitað er að snyrtilegum og duglegum ein-
staklingum sem hafa áhuga á og gaman af
að umgangast fólk, eru tilbúnir til að veita
góða þjónustu og taka þátt í að selja og af-
greiða 1. flokks vörur.
í boði eru skemmtileg störf hjá stóru og
traustu fyrirtæki, góður aðbúnaður fyrir
starfsmenn og auk fastra mánaðarlauna er
greiddur sölubónus.
Þeir sem áhuga hafa eða vilja fá frekari upp-
lýsingar um störf þessi vinsamlegast snúi
sér til starfsmannastjóra sem staðsettur er
á skrifstofu fyrirtækisins á Frakkastíg 1, R.
Sláturfélag Suðurlands,
starfsmannahald.
4»
Fulltrúi
f fjárhagsbókhald
Sláturfélag Suðurlands vill ráða starfsmann
í stöðu fulltrúa í fjárhagsbókhaldi á aðalskrif-
stofu fyrirtækisins.
Starfið er sjálfstætt, fjölbreytt og krefjandi
en er aðallega fólgið í endurskoðun bók-
halds, afstemmingu, millifærslum ásamt
ýmsum sérstökum verkefnum sem unnin eru
upp úr bókhaldi fyrirtækisins.
Við leitum að aðila sem hefur verslunarskóla-
próf eða aðra sambærilega menntun og
hefur starfsreynslu á sviði bókhalds.
í boði er staða hjá góðu fyrirtæki, ágæt laun
og sveigjanlegur vinnutími.
Allar nánari uppl. um starf þetta veitir starfs-
mannastjóri á skrifstofu fyrirtækisins á
Frakkastíg 1, R.
Sláturfélag Suðurlands,
starfsmannahald.
Lagerstarf
Heildverslun í Reykjavík óskar að ráða mann
til lagerstarfa. Æskilegur aldur 30-45 ára.
Umsóknir með upplýsingum um fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 1. febrúar
merkt: „R — 2066“.