Morgunblaðið - 28.01.1987, Síða 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
22.tbl. 75. árg.
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÍJAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bretar hafa miklar
áhyggjur af örlög-
um Terry Waite
Beirút, London, AP. Reuter.
BREZKA ríkisstjórnin hefur áhyggjur af því að ekkert skuli
hafa heyrzt frá Terry Waite, sendimanni ensku biskupakirkj-
unnar. Robert Runcie, erkibiskup, sagði hins vegar að
ekkert hefði komið fram sem styddi fullyrðingar um að
Waite væri fangi mannræningja, sem hann ætlaði að reyna
fá til að sleppa tveimur Bandaríkjamönnum. Runcie hvatti
brezku þjóðina til að biðja fyrir Waite.
Waite er í fímmtu ferð sinni til
að semja um frelsi vestrænna
manna, sem haldið hefur verið í
Líbanon. Var hann sagður í góðu
sambandi við mannræningja og
að þessu sinni ætlaði hann að
freista þess að fá Terry Anderson,
fréttamann AP-fréttastofunnar,
og Thomas Sutherland, háskóla-
kennara, leysta úr haldi. Þeim var
rænt árið 1985.
Samtök, sem njóta stuðnings
írana, sögðust bera ábyrgð á ráni
á Saudi-Arabanum Khaled Deeb
Beirút í fyrrinótt. Hann er sonur
háttsetts embættismanns í Riy-
adh. Með ráninu á honum eru 26
útlendingar í haldi mannræningja
i Líbanon.
Samtökin kröfðust þess að
Mohammed Ali Hamadi, meintur
flugræningi, sem handtekinn var
í Vestur-Þýzkalandi 13. janúar
sl., yrði látinn laus. Handtökunnar
var hefnt með ráni á tveimur
Vestur-Þjóðveijum í Beirút. I gær
var bróðir Hamadi, Ali Abbas
Hamadi, handtekinn er hann kom
til Frankfurt frá Líbanon.
Reuter
Námsmenn við háskólann í Beirút efndu til fundar í gær á skólalóðinni þar sem þeir mótmæltu ráni á
fjórum kennurum, einum indverskum og þremur bandarískum, sl. laugardag.
Gorbachev vill róttæk-
ar þjóðfélagsbreytingar
Moskvu, AP.
Reuter
Blaðabrenna íMadríd
Spænskir námsmenn héldu áfram mótmælaaðgerðum í gær.
Efndu þeir m.a. til blaðabrennu í höfuðborg landsins, Madrfd, til
að mótmæla umfjöllun um aðgerðir þeirra. Námsmenn krefjast
þess að takmarkanir á inngöngu í háskóla verði numdar úr gildi
og að þeir fái ýmiss konar félagslegar bætur.
Stjórn
Aquino
ekkií
hættu
Washington, Maníla, AP. Reuter.
LARRY Speak-
es, talsmaður
Bandaríkjafor-
seta, sagði í
gærkvöldi að
sljórn Corazon
Aquino, for-
seta, virtist áfk
ekki í neinni ™
hættu eftir til- Corazon Aquino
raun til valdaráns á Filipps-
eyjum í fyrrinótt.
Speakes sagði að 18 foringjar,
þ.á m. hershöfðingi og ofurstar,
sem staðið hefðu á bak við valda-
ránstilraunina, hefðu gefíð sig
fram.
Áður tilkynnti Aquino að stjóm-
arherinn hefði brotið á bak aftur
valdaránstilraun stuðningsmanna
Ferdinands E. Marcos, fyrrum for-
seta. Enn höfðu þó um 200
uppreisnarmenn útvarps- og sjón-
varpsstöð á valdi sínu í gærkvöldi,
en staða þeirra var sögð vonlaus.
Hótaði Atjuino í gær að láta herinn
ráðast á stöðina ef þeir gæfust
ekki upp.
Sjá ennfremur fréttir af
valdaránstilrauninni á bls. 24.
MIKHAIL Gorbachev, aðalritari I skref í átt til lýðræðis með því I
sovézka kommúnistaflokksins, að gefa þjóðinni kost á að velja
lagði til á fundi miðstjórnar menn í áhrifastöður í leynilegum
flokksins i gær að stigin yrðu | kosningum, þar sem frambjóð- |
endur væru tveir eða fleiri.
Gorbachev lagði til breytingar á
reglum um kosningar í valdastöður
í flokknum og til þings, en útilok-
aði endurskoðun á reglum um val
manna í miðstjóm flokksins eða
stjómmálanefnd. Einnig gerði hann
tillögur um lagabreytingar til að
auðvelda framgang umbóta á sviði
efnahags- og félagsmála, sem hann
sagði marga „stirðbusa" í flokknum
hafa lagzt gegn. Lagði hann m.a.
til að sett yrðu lög sem heimiluðu
óbreyttum borgurum að lögsækja
stjómvöld og að dregið yrði úr mið-
stýringu í iðnaði. Jafnframt lagði
hann til að sett yrðu lög sem
Bandaríkin:
tryggðu fjölmiðlum aðgang að emb-
ættismönnum.
Talið er að Gorbachev vilji koma
á leynilegum kosningum til að losna
við aldraða harðlínumenn, stirð-
busana, úr áhrifastöðum og rýma
þar með fyrir mönnum, sem líklegri
eru til að greiða fyrir framgangi
stefnumála hans. Sagði Gorbachev
að víða hefði náðst umtalsverður
árangur á sviði efnahags- og félags-
mála. Stöðnunin væri hins vegar
viðloðandi á nokkrum stöðum en
þar hefðu embættis- og áhrifamenn
þverskallazt við að hrinda „áætlun
sinni um umbætur" í framkvæmd.
Sjá „Gorbachev hvetur til...“ á
bls. 25.
Mikilvægasta
ræða Reagans
Washington, New York. AP, Reuter.
RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, hélt mikilvægustu ræðu, sem
hann hefur flutt á ferli sínum, á sameiginlegum fundi beggja deilda
Bandaríkjaþings. Var ræðunnar beðið með mikilli eftirvæntingu þar
sem forsetinn hugðist reyna með henni að vinna aftur traust og
tiltrú kjósenda. Nýjar skoðanakannanir sýna að hann hefur misst
mikið af því trausti er hann naut.
Reagan hélt ræðuna kl. 2 í nótt
og hafði hún ekki verið afhent fjöl-
miðlum áður en Morgunblaðið fór
í prentun. Larry Speakes, talsmað-
ur forsetans, sagði þó að forsetinn
myndi viðurkenna að vopnasalan
til írans hefði verið mistök og heita
því að glappaskot af þessu tagi
yrði ekki endurtekið.
Speakes sagði að Reagan myndi
lýsa yfír vilja sínum til að semja
um afvopnun við Sovétmenn; hann
myndi leggja áherslu á umbætur
er orðið hefðu í efnahagsmálum
og varpa fram hugmyndum um
hvemig Bandaríkjamenn ættu að
bregðast við vaxandi samkeppni á
alþjóðlegum mörkuðum.
George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði á fundi
Utanríkismálanefndar öldunga-
deildarinnar í gær, að héðan í frá
yrði ekki um frekari vopnasending-
ar til írans að ræða.