Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 44
44
HiU íIAát/í/a BP tftHlAOrtt'MÍVíAlW tílrt/. ftf(Atir»5inWt
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
Enn um tísku
Itískuhúsum Evrópu eru nú haldnar tískusýningar dag-
lega, þar sem kynnt er vor- og sumartískan 1987. Að
vísu var fyrst byrjað að kynna hana sl. vetur, en þá voru
allar línur mun óskýrari en nú, og telja tískufrömuðir að
loks sé ljóst hvert stefni í tískunni.
Hér gefur að líta hátískuna eins og Pierre Cardin telur
hana eiga að vera, auk tveggja kvöldkjóla frá París og Róm.
Það sem einkenndi föt Cardin voru skarpar, allt að því
abstrakt línur og mjúkar línur og kvenlegar látnar lönd og
leið fyrir framandleikann. Til þess að undirstrika pilsin not-
ar hann gjarðir, svipaðar gömlu húla-gjörðunum.
Kvöldkjólamir eru öllu hefðbundnari. Sá franski er reynd-
ar hannaður af Norðmanninum Per Spook og þótti hann í
djarflegra lagi, en sídd hans er mjög óræð. Að aftan er
hann ökklasíður, en að framan kemur mini-pils í ljós og sitt-
hvað fleira, en kjólinn er úr silki.
Kjóilinn frá Valentino í Rómaborg er öllu hefðbundnari
og er úr blönduðum efnum. Þrátt fyrir að þessi kjóll sé ólíkt
efnismeiri en sá frá París eiga þeir það sammerkt að athygli
er dregin að mittinu með linda, sem aukin heldur er hnýttur
með áberandi slaufu. Kjólamir em eins og flestar flíkur
komandi sumars í mildum, en fjörlegum litum.
Hins vegar er ólíkt meiri fyrirferð á þessari flík.
Sýningarstúlkur Pierre Cardin
þóttu frekar minna á listaverk
módemista en konulíkamann.
Þessi er ófeimin við að sýna á sér leggina,
a.m.k. að framanverðu.
Bikarinn, sem
Síðasta föstudag var þessi stóreflis kaka af-
hjúpuð í Hamborg, en þar í borg fer nú fram
alþjóðleg sýning bakarameistara og þeirra er
selja vömr tengdar bakstri. Sérstakir dómarar
vom kvaddir til, svo hægt væri að skera úr um
hvort kökunnar verði getið í heimsmetabók þeirri
er kennd er við mjöðinn Guinness. Kakan er 6,5
tonn að þyngd og u.þ.b. 18,5 m á hæð.
Ekki má bjóða þér bita?
Þessar tvær voru meðal þeirra sem sáu um
að setja kökuna saman, enda matarlegar að
— Þessi viH fá 5 pylsur.