Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANUAR 1987
45
Byggt á gömlum grunni
Allt frá því í nóvember á síðast-
liðnu ári hefur staðið yfir
ræðukeppni MORFÍS, en sú
skammstöfun stendur fyrir
„Mælsku- og rökræðukeppni fram-
haldsskóla Islands". í keppninni
taka þátt velflestir framhaldsskólar
á íslandi, en nú er tekið að síga á
seinni hluta hennar. Þau tvö ár sem
keppt hefur verið hefur lið Mál-
fundafélagsins Framtíðarinnar
verið sigursælt, en sigurliðið fær
veglegan farandbikar til gæslu.
Vinni lið sama skóla þrjú ár í röð
fær það bikarinn hins vegar til eign-
ar, svo að nú er mikill hugur í liði
Framtíðarinnar. Af þessu tilefni fór
blaðamaður á fund þeirra félaga
og spurði þá tíðinda.
í liðinu eru fjórir menn; Birgir
Armannsson, frummælandi, Auð-
unn Atlason, meðmælandi, Illugi
Gunnarsson, stuðningsmaður, og
Sveinn Valfells III., liðsstjóri. Fyrst
spurðum við hvemig gengi í keppn-
inni.
„Prýðilega, þakka þér.
MORFÍS-keppnin byrjaði í kring
um byltingarafmæli Sovétríkjanna
í nóvember sl., en fyrr um haustið
höfðum við unnið Verzlunarskóla-
liðið í árlegri vináttukeppni skól-
anna. Lið Framtíðarinnar hefur
ekki tapað keppni þrettán skipti í
röð, svo við getum verið ánægðir.
Við töpuðum í vináttukeppninni við
Verzló 1984, en svo ekki sögu meir.
Þetta kann að hljóma drambslega,
en svona er það nú bara.“
Hvaða skýringu hafið þið á þess-
ari velgengni Menntaskólans?
„Við höfum engin skýr svör við
því, en því má náttúrulega ekki
gleyma að Framtíðin e 104 ára
gamalt félag og við byggjum því á
gömlum grunni. Félagið var stofnað
sérstaklega til þess að æfa ræðu-
mennsku, svo að það væri nú
eitthvað undarlegt ef það hefði eng-
an árangur borið. Svo má nefna
að áhuginn innan skólans er mjög
almennur. í bekkjakeppninni eru
þrettán lið, svo að þar með eru um
50 manns, sem hrærast í þessu
beint, auk allra hinna, sem láta sér
nægja að fylgjast með.“
En eitthvað hlýtur það að vera
sem vekur áhuga fólks á ræðu-
mennsku. Er það taumlaus frama-
gimd eða hvað?
„Hér blómstrar mælskulistin."
„Það held ég nú ekki. Ég held
frekar að fólk skynji að það þarf
að geta komið fyrir sig orði í fjöl-
menni og líka hitt að þama sjá
margir sér leið inn í félagslífið, sem
annars væri þeim e.t.v. ófær. I öðr-
um skólum er gífurlegur skákáhugi,
körfuboltaáhugi, eða hvað sem er;
hér blómstrar mælskulistin."
Hvað um gagnið sem af þessu er?
„Við þurfum að færa rök fyrir
máli okkar með ábyrgum og skipu-
legum hætti. Það er kannski það
besta við þessa íþrótt, að maður
þjálfast í því að finna rök fyrir
óskyldustu málum, sem eru manni
jafnvel hreint ekki að skapi.“
En neikvæða hliðin?
„Fyrirkomulag keppninnar gerir
það að verkum að maður talar allt-
of sjaldan af sannfæringu og að
því leyti er bara verið að þjálfa
menn upp í að vera atvinnustjóm-
málamenn. Það nær enginn ár-
angri, sem ekki semur ræðumar
sínar sjálfur."
Nú eru §órir skólar eftir í
MORFÍS-keppninni og væntanlega
verður undanúrslitakeppnin hinn
12. febrúar. Auk Menntaskólans
em Fjölbrautaskólinn í Garðabæ,
Fjölbrautaskólinn á Suðumesjum
og Menntaskólinn í Hamrahlíð eft-
ir. Þjálfari Framtíðarinnar er
Kristján Hrafnsson, sem er forseti
Lið Framtíðarinnar, Illugi Gunnarsson, Birgir Ármannsson og Auðunn Atlason.
Morgunblaðið/Bjami
Opið þorrablót
laugardaginn 31. janúar. Húsiö opnað kl. 19. Upplagt tækifæri
fyrir minni fyrirtæki og smærri félög. Allir velkomnir.
Miöaverð kr. 1.100,-
Miðapantanir í síma 685090. Miðasala milli kl. 11 og 14 daglega.
Miðar afhentir frá kl. 18 á föstudag og laugardag frá kl. 13 til 15.
Nýjung í
orlofsmálum íslendinga
Glæsileg orlofshús til sölu við hvítu ströndina (Costa
Blanca) á Spáni.
Starfsmannafélög — félagasamtök — hópar — fyrirtæki.
íbúðir — raðhús — villur.
Einnig 203 fm veitingastaður og 200 fm kjörverslun.
Hagstætt verð og greiðslukjör.
Samningar í gangi um mjög hagstæðar ferðir fyrir verð-
andi húseigendur og þá, sem þegar eru búnir að kaupa.
Hafið samband strax, við komum með kynningar á stað-
inn ef óskað er.
Næsta kynnisferð til Spánar er 6.
febrúar 1987.
G. Óskarsson og Co.,
Laugavegi 18,
sími 17045.
„Það væri nú eitthvað undarlegt
ef 104 ára starf hefði ekki borið
árangur."
málfundafélagsins. Við spurðum
hann hvort að þetta væri tilgangur
félagsins — að vinna ræðukeppni.
„Nei. Aðaltilgangur félagsins er
að halda málfundi og standa fyrir
öðru félagslífi innan skólans. Við
starfrækjum Skákklúbb, Vísindafé-
lag, Róðrafélag og Bridge-klúbb,
auk þess sem að árlega er gefið
út blaðið Skinfaxi og við höfum
staðið í ýmissi útgáfustarfsemi ann-
arri.
En MORFÍS-keppnin. Hvetjar
eru sigurlíkumar?
„Ég held að þær séu talsverðar.
Mér finnst við og lið Fjölbrautaskól-
ans í Garðabæ vera með sterkustu
liðin, en þetta er náttúrulega
ábyrgðarlaust hjal, sem úrslitin
leiða í ljós hvort eigi við rök að
styðjast. Annars hefur það skyggt
nokkuð á keppnina að það gætir
vissrar andúðar í garð skólans, sér-
staklega af hálfu nokkurra einstakl-
inga innan M.H., sem ekki hafa
skirrst við að vera með rekið per-
sónuníð um liðsmenn okkar í
dagblöðum. Þetta er náttúrulega
ekki til þess að auka á keppnisand-
ann, en á sér því miður stað.“
Heldur þú að þið þurííð að fara
smíða skáp undir bikarinn?
„Það vona ég. Ég er a.m.k. far-
inn að leita að stað undir skápinn."
VAGNHÖFDA 11 REYKJAVÍK
SÍMI685090
ASUÐURNESJUM
Fats Domino og hljómsveit hansmunu halda
hljómleika í Stapa, Njardvík, föstudaginn 6. febrú-
arkí 20.00.
GLÆSILEGUR KVÖLDVERÐUR:
Rœkjukokteill
GljáÖur hamborgarhryggur
Miða- og borðapantanir daglegáíStapa rnilli kl. 19og21, simi
(92)2526:- '
Ath.: Aðeinsþetta eina sinn á Suöurnesjum
WORKS
Fjölnotakerfið Works frá Microsoft er
nú að verða mest notaða forritið á Macin-
tosh. Á námskeiðinu er farið rækilega í
þá möguleika sem forritið býður upp á.
Dagskrá:
* Grundvallaratriði við notkun Macintosh.
* Ritvinnsla, æfíngar.
* Gagnagrunnur, æfingar.
* Tölvureiknir, æfingar.
* Flutningur gagna á milli þátta forritsins.
* Umræður og fyrirspurnir.
Leiðbelnandl:
Guðmundur Karl Guðmundsson,
sölumaður hjá Radíóbúðinni.
Tími: 9.-12. febrúar ki. 18.15-21.15.
Innritun í símum 687590 og 686790.
Q|
fcv.v.-.vaai
Tölvufræðslan
Borgartúni 28.