Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 2
'2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987 Tvöföldun á sölu á loðnu og loðnu- hrognum til Japan SOLUMIÐSTOÐ hraðfrystihús- anna hefur samið við japanska kaupendur um sölu á 5.000 lestum af frystum loðnuhrogfnum og sama magni af frystri loðnu. I fyrra seldi SH 2.800 lestir af hrognum og 1.800 lestir af loðnu til Japans. Samið var um svipað verð í yenum talið og í síðasta samningi, en það samsvarar rúm- lega 20% verðhækkun í íslenzkum krónum. Japanir munu eins og i fyrra greiða fyrir afurðir þessar með dölum. Samtals fást 650 til 700 milljónir króna fyrir loðnuaf- urðirnar að þessu sinni. Yenið kostaði um 0,20910 krónur um áramótin 1985—1986 en 0,25136 um síðustu áramót. Hækk- unin er 20,16%. Þó samið hafi verið um svipað verð í yenum talið og í fyrra, er samningurinn í dölum eins og þá. Friðrik Pálsson, forstjóri SH, var spurður hvers vegna samið hefði verið í dölum miðað við fallandi gengi þess gjaldmiðils. Hann sagði, að þó annað hefði komið til um- ræðu, hefðu samningsaðilar orðið ásáttir um að semja með þessum hætti. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um samninginn. Við gerð síðustu samninga högnuðust jap- önsku kaupendumir nokkuð á því, að greiða fyrir loðnuna með dölum, en þróun daisins næstu þrjá mánuði ræður úrslitum um það, hvort svo verður að nýju. Loðnan og hrognin verða flutt utan í marz og apríl, en til að ná 5.000 lestum af hrognum þarf um 62.500 lestir af loðnu upp úr sjó. Verð á loðnu til bræðsiu hefur verið fijálst á yfirstandandi vertíð, en vaninn undanfarin ár hefur verið sá, að annað verð hefur verið ákveð- ið á loðnu til hrognatöku og frysting- ar en til bræðslu. Líklega verður verð á loðnu til hrognatöku og fryst- ingar frjáist að þessu sinni, en endanleg ákvörðun um það hefur enn ekki verið tekin. Viðar Elíasson, verkstjóri í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, sagði í samtali við Morgunblaðið, að iíklega gæti frysting loðnu hafizt 10. til 15. febrúar. Loðnan væri fryst í tveimur flokkum eftir hrognafyll- ingu, 13 tii 15% og yfir 15%. Fyrst í marz yrði líklega hægt að hefja hrognatökuna, en hún miðaðist við 22 til 23% hrognafyllingu í loðn- unni. Hann sagði að gott þætti að ná um 8% nýtingu út úr hrognatök- unni. Morgunblaðið/Þorkell Kvenréttindafélagið 80 ára KVENRETTINDAFELAG Islands varð 80 ára í gær. Afmælisins var minnst í veislu á Hallveig- arstöðum og var hún mjög fjölsótt. Fjórar konur, sem unnið hafa ötult starf í félaginu, voru gerðar heiðursfélagar, Guðrún Gísladótt- ir, Lóa Kristjánsdóttir, Sigurveig Guðmunds- dóttir og Valborg Bentsdóttir. Formaður Kvenréttindafélags íslands er Lára V. Júlíus- dóttir. Myndin var tekin í afmælishófinu í gær. Björg Einarsdóttir rithöfundur er í ræðustól, en hún flutti erindi um stofnanda félagsins, Brieti Bjarnhéðinsdóttur. Enn engin lausn í sjón- máli í farmannadeilunni V estmannaeyjar: Snót undir- ritar samning SAMNINGUR milli verkakvenna- félagsins Snótar og vinnuveitenda í Vestmannaeyjum var undirritað- ur í gær með fyrirvara um samþykki félaganna. Fyrirhugað er að bera samninginn undir at- kvæði á félagsfundi í Snót á fimmtudaginn kemur. Samningurinn er grundvallaður á samningum ASÍ og VSÍ frá því í desember, en auk þess eru í honum ákvæði um starfsaldurshækkanir og um hækkun á fatapeningum. Starfs- menn, sem unnið hafa í fískvinnslu í 5 ár, fá 2% hækkun á grunnlaun, starfsmenn sem unnið hafa í fisk- vinnslu í 10 ár hjá sama vinnuveit- anda fá 3% og þeir sem unnið hafa í 15 ár í fískvinnslu hjá sama vinnu- veitanda fá 4% hækkun á grunnlaun. Auk þessa hækka hlífðarfatapening- ar um rúmar 65 krónur á viku. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins gildir samningurinn frá og með þessari viku og til áramóta, en Snótarkonur fá greiddar 3.600 krón- ur í einu lagi i stað afturvirkninnar. „Áróðursstríð á hendur okkur,“ segir Éirgir Björgvinsson, formaður und- anþágunefndar SFR FUNDUR undirmanna á kaup- skipum og forsvarsmanna kaupskipaútgerðarinnar hjá rik- issáttasemjara var árangurslaus i gær og má segja að sama staða sé ennþá í deilunni og var fyrir helgina, þrátt fyrir að tilboð hafi gengið á milli aðila. Boðað hefur verið til nýs fundar í deilunni klukkan 14 í dag. „Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um verkbann, en það ligg- ur beint við að ef þetta verkfall dregst á langinn þá neyðumst við til þess. Þar væri um að ræða varn- araðgerð af okkar hálfu til þess að hafa stjóm á þessari vinnustöðv- un,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, aðspurður hverjar þær vamaraðgerðir væm, sem minnst er á í ályktun sam- bandsstjómar VSÍ. Hann sagði að það gæti reynst nauðsynlegt að setja verkbann á Sjómannafélag Reykjavíkur til þess að koma í veg fyrir að sjómenn í verkfalli fæm að vinna hjá öðrum. Hins vegar ef þessi deila kæmist á það stig að hún ógnaði veigamiklum þáttum í þjóðlífinu yrði að skoða málið í víðara samhengi, en VSÍ ætti ekki í neinni deilu við hafnarverkamenn eða yfirmenn á farskipunum. Ný- samið væri við hafnarverkamenn og þó ósamið væri við yfirmenn teldi hann að ekki yrði erfítt að semja við þá eftir að þessi deila leystist. Tvær beiðnir hafa borist til Sjó- mannafélags Reykjavíkur til þessa um undanþágur frá verkfallinu. Onnur beiðnin varðar það að skipið Keflavík, sem liggur í Hafnarfjarð- arhöfn með saltfarm, fái að fara til Austíjarðahafna. Birgir Björg- vinsson, formaður undanþágu- nefndar Sjómannafélagsins, segir að ákvörðun verði tekin um undan- þáguna fyrir hádegið í dag. Jákvætt svar hafi nánast legið fyrir, en þá hafi borist um það upplýsingar að leiguskip með saltfarm væri á leið- Anna Klemensd. fv. for- sætísráðherrafrú, látín ANNA Guðrún Klemensdóttir, ekkja Tryggva Þórhallssonar fyrrum forsætisráðherra, lést í gfær, á 97. aldursári. Annafæddist 19.júníárið 1890, dóttir hjónanna Klemensar Jóns- sonar, landritara og síðar ráð- herra, og Þorbjargar Stefánsdótt- ur. Hún var fyrsta símastúlkan í Reykjavík þegar símstöð var tekin þar í notkun. Anna giftist Tryggva Þórhallssyni árið 1913. Tryggvi var prestur á Hesti, en fluttist síðan til Reykjavíkur og gerðist Starfsmenn Búnaðarbank- ans andvígir sameiningu Á MJÖG fjölmennum fundi starfsmanna Búnaðarbankans á mánu- daginn var lýst yfir harðri andstöðu við hugmynd stjórnvalda um sameiningu Búnaðarbanka og Útvegsbanka. fundinum var eftirfarandi vel rekið fyrirtæki og nota eigið Á fundinum var ályktun samþykkt og hefur hún verið send viðskiptaráðherra og fomiönnum þingflokka: „Fundur starfsmanna Búnað- arbankans haldinn 26. janúar 1987 lýstir harðri andstöðu sinni gegn hugmyndum stjórnvalda um sameiningu Búnaðarbanka og Útvegsbanka. Fundurinn telur það mikla skammsýni af stjórnvöldum að ætla að ieggja niður blómlegt og fé þess til að leysa vanda fyrirtæk- is sem komið er í þrot. Starfsfólk Búnaðarbankans óttast að nýr banki, sem reistur væri á grunni Búnaðarbanka og Útvegsbanka, yrði veikari stofnun en Búnaðarbankinn er í dag. Með því er hagsmunum starfsfólks og viðskiptamanna bankans stefnt í hættu. Fundurinn leggur því áherslu á að Búnaðarbankinn haldi núverandi rekstrarformi svo að hvorki komi til uppsagna starfsfólks né að starfsöryggi þess sé ógnað á annan hátt. Þá bendir fundurinn á að í kjarasamningum bankamanna eru skýr ákvæði um að haft sé samráð við starfsmannafélag og/ eða SÍB ef um skipulagsbreyting- ar banka sé að ræða. Greina skal frá fyrirhuguðum breytingum strax á byijunarstigi. Starfsfólk Búnaðarbankans skorar á stjómvöld að leita ann- arra leiða til að mæta vanda Útvegsbankans. Anna Klemensdóttir ritstjóri Tímans. Hann var forsæt- isráðherra árið 1927 tii 1932. Tryggvi lést árið 1935, 46 ára gamall. Anna og Tryggvi eignuðust sjö börn. Þau eru Klemens, fyrrver- andi Hagstofustjóri, Valgerður, fyrrverandi skrifstofustjóri Þjóð- leikhússins, Þórhallur, fyrrum bankastjóri Búnaðarbankans, Agnar, fyrrum framkvæmdastjóri búnaðardeildar Sambandsins, Þor- björg, framkvæmdastjóri Fjölrit- unarskrifstofu Daníels Halldórs- sonar, Björn, aðstoðarbankastjóri Seðlabankans og Anna Guðrún, barnakennari. Anna bjó að Laufási við Laufás- veg og var ætíð kennd við húsið. inni til landsins á vegum rekstrarað- ila skipsins og gæti því eins farið svo að leyfið fengist ekki. Hin und- anþágan varðar kornfarm um borð í Grundarfossi. Beðið var leyfis til að færa skipið, sem liggur við Ægisgarð, inn í Sundahöfn svo hægt væri að skipa upp úr því korni. Birgir sagði að þessari beiðni hefði verið hafnað, enda væri hægt að skipa upp úr skipinu þar sem það væri. Birgir sagði að talsmenn Sjó- mannafélagsins hefðu marglýst því yfir að ekkert væri því til fyrirstöðu að veita undanþágur frá verkfall- inu, sem varða undirstöðuatvinnu- veg þjóðarinnar, sjávarútveginn. Þannig væri það til dæmis með útflutning saltsíldarinnar, en engin beiðni um undanþágu varðandi hana hefði borist. „Það er eins og þeir séu hræddir við að biðja um undanþágur eða vilji það ekki. Við heyrum ekki um alvarlegt ástand í atvinnumálum eða nauðsyn á und- anþágum nema í fjölmiðlum. Auðvitað er þetta ekkert annað en áróðursstríð á hendur okkur," sagði Birgir. Vegna yfirlýsinga sjómanna um að skipafélögin séu ekki reiðubúin til þess að greiða sambærileg laun og erlendar útgerðir leiguskipa greiða áhöfnum sínum, hefur samn- inganefnd kaupskipaútgerðanna sent frá sér fréttatilkynningu. Þar kemur fram að laun háseta á leigu- skipum eru frá 9 þúsund krónum og upp í 48.400 krónur á mánuði í heild. Hins vegar segir að sam- kvæmt tilboði kaupskipaútgerð- anna til Sjómannafélags Reykjavík- ur myndi meðaltal heildarlauna háseta í janúar með yfirvinnu hafa verið 93.166 kr. Þá hafa starfsmenn Kjararann- sóknanefndar sent frá sér fréttatil- kynningu, þar sem segir að ekki beri að líta á útreikninga þeirra á tilboði vinnuveitenda til SFR, „sem endanlegan úrskurð um væntanleg- ar tekjubreytingar farmanna yrði tilboðið að samningi". Við mat á tilboðinu, sem gert var að beiðni ríkissáttasemjara, hafi verið miðað við forsendur um vinnutíma sjó- manna, sem fyrir liggi úr könnun Kjararannsóknanefndar frá síðast- liðnu ári, en engin önnur sjálfstæð athugun hafi verið gerð á framan- greindum forsendum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.