Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 56
Qlterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! lí M 1 fei Þjónusta íþínaþágu /ksAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. ftor0iiit#M*i§> Portúgalar kaupa 25 þúsund tonn af saltfiski ^NÝLEGA undirritaði SÍF samn- mga í Portúgal um sölu á 25 þúsund tonnum af saltfiski til afhendingar á þessu ári. Samið var um allnokkra verðhækkun frá fyrra ári. Sú nýjung var tekin upp í þessum samningi að Portúgalar féllust á að 40% af magninu væri tandurfísk- ur, þ.e. fískur sem er minna staðinn en venjulegur saltfiskur. Til þessa hafa aðeins Spánveijar keypt tand- urfisk. í fyrra framleiddi SÍF 53 þúsund tonn af saltfiski, eða 7 þúsund tonn- um meira en árið áður. Verðmætið var 6 milljarðar króna, eða 2 millj- örðum meira en árið áður. Hvalfjörður: Brú yfir Botns- vog hagkvæm- ari en vegnr VEGAGERÐ ríkisins hefur beitt arðsemisreikningum við fram- kvæmdir á hennar vegum á undanförnum árum og sam- kvæmt nýjustu tölum er um 15% arðsemi af brú yfir Olfusárósa og Botnsvog í Hvalfirði. Þá er brú yfir Botnsvog 30% hag- kvæmari en vegur um voginn að sögn Jóns Rögnvaldssonar tækni- forstjóra Vegagerðar rikisins. Jón sagði að fyrstu útreikningar um arðsemi Ölfusárbrúar hefðu ekki sýnt neina arðsemi en við loka- hönnun verksins hefði enn frekari hagkvæmni verið gætt og áætlaður kostnaður við brúarsmíðina þá lækkað verulega miðað við fyn-i áætlun. „Og nú er svo komið að brúin gefiir viðunandi arðsemi eða um 15% miðað við þá notkun sem ,^við teljum að verði við þessa vegar- ”tengingu,“ sagði Jón. Þingmönnum Vesturlands og Reylg'aneskjördæmis hefur verið afhent bók með undirskriftum veg- farenda um Hvalijörð sem skora á þingmennina að beita sér fyrir var- anlegri vegagerð um fjörðinn. Að sögn Jóns fór fram fyrir nokkrum árum rannsókn á hagkvæmu brúar- stæði yfir Botnsvog, frá Múlanesi um Þemey að Þyrli. Þá vom einnig gerðar líffræðiathuganir. Jón sagði að brú yfir voginn væri 30% hag- kvæmari en varanlegur vegur og því mun fysilegri kostur ekki síst með umferðaröryggi í huga. Brú yfir voginn styttir leiðina um Hval- ^^fjörð um 6 km og áætlaður kostnað- ur við gerð hennar er svipaður og við bmna yfir Ölfusárósa. Háhyrningar skemmta Reyð- firðinffum „ „ „ o Reyðarfirði. Háhymingar hafa verið hér í Reyðarfirði í hópum í vetur. Hópamir era tveir tíl þrír og sjö ' cil tíu dýr í hveijum hópi. í heild hafa dýrin verið talin fimmtán til tuttugu. Dýrin hafa rekið á undan sér síld hér inn á leimmar og leikið listir sínar, öilum bæjarbúum til mikillar ánægju. Dýrin stökkva upp og velta sér í sjónum við bryggjusporðinn og inn við leimmar. Gréta. MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Morgunblaðið/Bjami Þykkþokayfir Reykjavík: Meiriraki er í lofti þar sem margt fólk býr ÞOKA hefur legið yfir Reykjavík og nágranna- byggðum undanfarið og hefur hún verið afar þykk á stundum. Veðurfræðingar segja þokuna myndast auðveld- lega þegar kólnar í veðri. Yfírleitt slítur vindurinn hana fljótt, en þar sem logn hefur verið undanfarið þá hefur hún legið yfir borginni eins og slæða. Á mánudag var þokan nær eingöngu yfír Reykjavík, en ekki ná- grannabyggðum. Það stafar af því að meiri hlýindi eru þar sem margt fólk býr og því meiri raki en annars staðar. Þá myndast auðveld- lega þoka ef kólnar í veðri. Þokan olli töfum á flugi til og frá Reykjavík í gær, en ekki þurfti að fella ferðir niður. Nokkrar ferðir voru farnar á vegum Flugleiða fyrir kl. 9, en síðan fór þok- an að þéttast. Flugleiða- menn sættu lagi þegar rofaði til og síðdegis var ástandið orðið sæmilegt. Utanlandsflug stöðvaðist ekki af völdum þokunnar, en röskun varð á því vegna veðurs í Evrópu og Banda- ríkjunum. Þokuhjúpurinn yfir Reykjavík í gærdag. Myndin er tekin úr Hallgrímskirkjuturni. Samlag skreiðarframleiðenda: Þijátíu þúsund pakk- ar af skreið til Nígeríu Flutt út án bankaábyrgða en í sam- vinnu við brezkt fyrirtæki SAMLAG skreiðarframleiðenda hefur nú ákveðið að senda 30.000 pakka af skreið til Nígeríu með flutningaskipinu Hvalvík strax og verkfalli undirmanna á kaupskipum lýkur. Reiknað er með að farm- urinn skili framleiðendum hér heima að meðaltali um 5.600 krónum á pakka eða alls tæpum 170 milljónum króna. Skreiðin verður flutt utan i samvinnu við brezkt fyrírtæki með viðtæk viðskiptasambönd i Nígeríu, en engar ábyrgðir hafa veríð opnaðar i bönkum vegna þessa útflutnings. Ólafur Bjömsson, stjómarfor- maður Samlags skreiðaiframleið- enda, sagði í saintali við Morgunblaðið, að nær allir félagar innan samlagsins hefðu verið sam- mála útflutningi með þessum hætti. Heimilt væri að flytja skreiðina utan án þess að samningar um sölu hefðu náðst, ef tollur yrði greiddur við affermingu. Brezka fyrirtækið myndi sjá um greiðslu tollsins og geymslu skreiðarinnar í kæli- geymslu, en samlagið sæi um að koma skreiðinni niður eftir. Þannig yrði gengið frá farmbréfum, að hægt yrði að selja skreiðina í litlum skömmtum, 1.000 til 2.000 pakka í einu. Ástæða þess væri sú, að á gjaldeyrismarkaðnum í Nígeríu væri erfitt að fá gjaldeyri nema til- tölulega litiar upphæðir og það liðkaði væntanlega fyrir sölu og gjaldeyriskaupum, að selja í smáum skömmtum. Ólafur sagði, að í samkomulagi samlagsins og brezka fyrirtækisins væri tekið fram, að ekkert yrði selt undir 165 dala skilaverði fyrir a- skreið og 135 dölum fyrir b-skreið. Ennfremur yrði heimilt að selja eitt- hvað af farminum eða allt áður en skreiðin yrði komin niður eftir, fengjust opnaðar ábyrgðir og sam- komulag um það næðist. Hann gat þess einnig að viðskiptaráðuneytið hefði ekki lagzt gegn útflutningi með þessum hætti og sömu sögu væri að segja um Landsbankann. Nú væru eftir hjá samlagsfélög- um um 20.000 pakkar og þá mætti flytja utan með sama hætti, tækist tilraunin nú vel. Síðustu ár hefðu verið framleiðendum erfið og væru þeir í flestum tilfellum búnir að greiða framleiðsluverð skreiðarinn- ar í formi vaxta af afurðalánum, en umrætt skilaverð ætti að duga vel fyrir áhvflandi skuldum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.