Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 4
4 ' MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987 Skoðanakönnun DV: Sjálfstæðisflokkur fengi 40% atkvæða UM 40% þeirra sem tóku afstöðu í skoðanakönnun DV um fylgi stjórnmálaflokkanna sögðust kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef nú væri kosið til Alþingis. Er það heldur hærra hlutfall en kaus flokkinn í kosningunum 1983 en mun meira en í síðustu skoðana- könnun DV er innan við 35% aðspurðra kváðust kjósa flokkinn. Fylgi Alþýðuflokksins hefur minnkað verulega frá skoðanakönn- un DV í desember en fylgi annarra flokka er svipað og þá, samkvæmt könnuninni. í skoðanakönnuninni voru 600 manns spurðir. 157 vildu ekki svara spurningunni eða voru óákveðnir. Þeir sem afstöðu tóku skiptast þannig: Alþýðuflokkur 19% (26,4% í skoðanakönnun DV í desember, 11,7% í kosningunum 1983). Framsóknarflokkur 17,8% (17% í desember, 19% í kosningun- um 1983). Bandalag jafnaðar- manna 0,3% (0 í desember, 7,3% 1983). Sjálfstæðisflokkur 39,9% (34,7% í desember, 39,2% í kosn- ingunum 1983). Alþýðubandalag 12% (13,4% j' desember, 17,3% 1983). Samtök um kvennalista 8,2% (7,1% í desember, 5,5% 1983). Flokkur mannsins 1,2% (0,6% í desember). Stefán Val- geirsson 1,7%. Þingsæti myndu skiptast þann- ig á milli flokkanna eftir þessum niðurstöðum samkvæmt útreikn- ingi DV: Sjálfstæðisflokkur 26 þingmenn (hefur 23), Alþýðu- flokkur 12 (6), Framsóknarflokkur 12 (14), Alþýðubandalag 8 (10), Samtök um kvennalista 5 (3), Bandalag jafnaðarmanna 0 (4). VEÐUR Morgunblaðið/Júlíus Umferðarspegillinn, sem komið var upp á horni Amtmannsstígs og Þingholtsstrætis, kemur ökumaönnum nú að litlu gagni, því hann hefur verið skemmdur. Þremur öðrum speglum hefur verið stolið. Þremur umferðarspegl- um af sex var stolið AF SEX umferðarspeglum sem settir hafa verið upp í Reykjavík hefur þremur verið stolið og einn brotinn i skemmdarfaraldri sem gengið hefur yfir borgina. Að sögn Inga Ú. Magnússonar gatnamálastjóra var sex umferðar- speglum komið fyrir víðsvegar um borgina með það í huga að auðvelda ökumönnum yfirsýn á blindhornum eða beyjum. Aðfaranótt síðastliðins föstudags brá hins vegar svo við að þremur speglum var stolið. Þeir voru á horni Grettisgötu/Frakk- astígs, Grettisgötu/Vitastígs og Skálholtsstígs/Grundarstígs en spegillinn á horni Amtmannstígs og Þingholtstrætis var brotinn. Sterkasta skákmót ársins að öllum A líkindum á Islandi I/EÐURHORFUR í DAG: Yfir norðaustanströnd Grænlands er 1025 millibara hæð sem fer heldur minnkandi. Hæðahryggir liggja frá henni suðaustur um ísland og allt til Bretlandseyja. Hiti breytist Iftið. SPÁ: í dag verður hægviðri á landinu, og sum staðar frost, en heldur vaxandi suðvestanátt og hlýnar þegar líöur á daginn. Sunn- an- og vestanlands verður skýjað og sums staöar þokuloft eða dálítil súld, en þurrt austanlands og jafnvel bjart veður. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: FIMMTUDAGUR: Suðvestlæg átt og hiti um eða yfir frostmarki. Bjart veður norðaustanlands, en skýjað og dálítil súld sunnan- og vestanlands. FÖSTUDAGUR: Vaxandi suðaustanátt og heldur hlýnandi. Rigning um sunnan- og vestanvert landið, og þykknar upp norðaustanlands. Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rígning / / / * / * / * / * Slydda / * / * # * * * * * Snjókoma * * * ■J 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius y Skúrir * V El =E Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður ~%w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma Akureyri hitl -1 veður skýjað Reykjavlk 2 þokuruón. Bergen 0 léttskýjaö Helsinki -17 léttskýjaft Jan Mayen -10 léttskýjaö Kaupmannah. -2 alskýjaö Narssarssuaq 0 slydda Nuuk -3 frostrlgn. Osló -B léttskýjað Stokkhólmur -9 snjókoma Þórshöfn 1 skýjað Algarve 18 þokumóða Amsterdam 2 skýjað Aþena 16 skýjað Barcelona 1B mistur Berlín -2 léttskýjað Chicago -11 snjókoma Glasgow 3 mistur Feneyjar S þokumóða Frankfurt -1 þokumóða Hamborg -1 alskýjað Las Palmas 22 skýjað London 4 mistur LosAngeles 14 alskýjað Lúxemborg -4 þokumóða Madrtd 12 alskýjað Malaga 17 mistur Mallorca 18 skýjað Miami 11 léttskýjað Montreal -23 léttskýjað NewYork -11 léttskýjað París -1 skýjað Róm 11 rigning Vín -1 skýjað Washington -12 léttskýjað Winnipeg -6 snjókoma ÁTTA erlendir stórmeistarar í skák frá sjö þjóðum taka þátt í IBM-skákmótinu, sem hefst á Hótel Loftleiðum 19. febrúar og stendur til 3. mars nk., ásamt íslendingunum Helga Ólafssyni, Jóhanni Hjartarsyni, Jóni L. Árnasyni og Margeiri Péturssyni. Þetta verður sterkasta skákmót, sem nokkru sinni hefur verið hald- ið á íslandi og reyndar á öllum Norðurlöndum. Meðalstig þátttakenda í IBM- mótinu eru 2583 stig og er mótið því í 14. styrkleikaflokki. Allt bendir til þess, að þetta alþjóðlega mót sé hið sterkasta sem haldið verður í heiminum á árinu 1987. Það er IBM á íslandi, sem í tilefni 20 ára afmælis fyrirtækisins, er boðsaðili og stendur straum af öllum kostnaði mótsins. Öll fram- kvæmd mótsins er í höndum Skáksambands íslands, sem nýtur aðgangseyris á meðan mótið stendur. Nú er staðfest að eftirtaldir keppendur taka þátt í mótinu og með nöfnum þeirra fýlgja nýjustu skákstigin, samkv. stigalista Al- þjóðaskáksambandsins FIDE frá 1. janúar sl.: Stórmeistari frá 1. ViktorKortsnoj, 2625 Sviss 2. Ludimir Ljubovic, 2620 Júgóslavíu 3. NigelShort, 2615 Englandi 4. Lajos Portisch, 2610 Ungverjal. 5. Mikhail Tal, 2605 Sovétríkj. 6. Jan Timman, 2590 Hollandi 7. Lev Polugaevsky, 2585 Sovétríkj. 8. Simen Agdestein, 2560 Noregi 9. Helgi Ólafsson, 2555 íslandi 10. Jóhann Hjartars., 2555 íslandi 11. Jón L. Ámason, 2540 íslandi 12. Margeir Péturss., 2535 íslandi Eins og listinn ber með sér eru allir þessir skákmenn mjög þekkt- ir, en þekktastir þeirra eru Mikhail Tal, fýrrum heimsmeistari og Viktor Kortsnoj, sem tvisvar sinn- um hefur verið áskorandi í heimsmeistaraeinvígi. Búnaðarfé- lagið 150 ára í dag BÚNAÐARFÉLAG íslands er 150 ára í dag. Þann 28. janúar 1837 „á burðardegi vors allranáðugasta kon- ungs, Friðriks sjötta“ var Suðuramtsins húss- og bú- stjómarfélag _ stofnað, en Búnaðarfélag íslands er arf- taki þess. Búnaðarfélagið mun minnast þessara tímamóta á ýmsan hátt á árinu en afmælishaldið nær hámarki með landbúnaðarsýn- ingunni BÚ ’87 sem haldin verður í Reiðhöllinni í Víðidal í Reykjavík dagana 14,—23. ágúst í sumar. Kjörorð sýning- arinnar verður „Máttur lífs og moldar".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.