Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 16
RAGNAR
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
4"
Ameríkubikarinn:
Conner er
talínn sigur-
stranglegri
TEPPA- og gardínusalinn Dennis Conner er talinn sigurstranglegri í
úrslitakeppninni um Ameríkubikarinn í siglingum. Lokasprettur keppn-
innar, sem staðið hefur í fjóra mánuði, hefst við Perth á vesturströnd
Ástralíu á laugardaginn. Mætast þá skúta Conner, Stars & Stripes, og
ástralska skútan Kookaburra III, sem 28 ára Ástrali, Iain Murray,
stjórnar. Sú sem fyrri verður til að vinna fjórar kappsiglingar telzt
sigurvegari. Conner vann Amerikubikarinn 1977 og 1980, en er þó
frægastur fyrir að hafa tapað honum árið 1983. Það var í fyrsta sinn
sem bandarísk skúta tapaði keppninni frá upphafi, en hún fór fyrst
fram árið 1851. Vinni Conner nú yrði hann jafnframt fyrsti maðurinn,
sem endurheimtir bikarinn fyrir Bandaríkjamenn.
Dennis Conner er
44 ára og mjög
reyndur sjómaður.
Hann hóf siglingar
á unglingsárum hjá
siglingaklúbbi
borgarinnar San
Diego í Kaliforníu,
en skúta hans í
Ameríkubikamum,
Stars & Stripes,
siglir undir merkj-
um þess klúbbs. Conner keppti fýrst
í Ameríkubikamum árið 1974. Er
þetta því fimmta keppnin hans og
nú siglir hann fjórða sinni til úrslita.
Hann er sagður mjög leikinn keppn-
ismaður og til marks um reynslu
hans hefur Conner að baki 10.000
sjóstundir við stjómvölinn á 12 metra
skútum. Fara miklar sögur af skip-
stjómarhæfileikum hans og er mjög
eftirsótt að komast í skiprúm hjá
honum. Hefur Conner því úrvalsliði
á að skipa.
Hámenntuð áhöfn
í áhöfn hans em að mestu sjálf-
boðaliðar, sem fómað hafa auðæfum
og frestað frama á öðmm sviðum í
þeirri von að hreppa siglingaverð-
launin eftirsóttu. Tíu skipverjar em
langskólagengnir. Seglamaðurinn er
til dæmis með meistaragráðu í fög-
mm listum, vindumaðurinn er
sameindalíffræðingur en auk þeirra
em sálfræðingur, tveir skipaverk-
fræðingar, hagfræðingur, ensku-
fræðingur og veðurfræðingur í
áhöfninni. Einu laun þessara manna
í rúmlega tvö ár hafa verið 10 doll-
ara vasapeningur á dag. Frítt fæði
hafa þeir haft svo og fatnað. Ferða-
lög í sambandi við keppnina og
undirbúning hennar hafa þeir fengið
greidd.
Conner gerir miklar kröfur til
áhafnar sinnar og reynir mjög á lagni
og þolinmæði hennar því hann er
sagður erfiður við að lynda vegna
óþrjótandi sigurlöngunar. Fyrirgang-
urinn í honum er í réttu hlutfalli við
líkamsstærðina, en hann er 1,91
metrar á hæð. Sigur er honum allt,
annað'sætið ekkert. Ósigurinn 1983
var mikið áfall fyrir Conner, enda
heitir ævisaga hans „Ekkert afsakar
ósigur“.
í leit að fullkomnun
Conner hefur verið lýst sem manni
í stöðugri leit að hinu fullkomna.
Hann segir siglingar vera áhugamál
sitt, en í raun hafa þær verið hans
aðalstarf frá árinu 1979. Hann er
viðskiptafræðingur frá San Diego
State-háskólanum og á teppa- og
gluggatjaldafyrirtæki þar í borg.
Hann hefur lítið komið nálægt rekstri
þess í átta ár. árabil.
Talsvert hefur gustað um hann
Associated Press
Bandaríska skútan Stars & Stripes „plægir“ báruna undan vesturströnd Ástralíu í einni kappsiglingunni
í ameríkubikarnum. Dennis Conner skipstjóri, með hvítan hatt, stendur við stýrið.
síðustu mánuði í Fremantle, útborg
Perth, þar sem bækistöðvar kepp-
enda í Ámeríkubikamum hafa verið.
í fyrstu hélt hann því fram að nýsjá-
lenzka skútan New Zealand væri
ólögleg þar sem hún væri smíðuð
úr trefjagleri, en allar hinar skútum-
ar vom úr áli. Var það liður í
taugastríði, sem hann hefur háð við
mótheija sína. New Zealand tapaði
aðeins einni kappsiglingu af 38 í
forkeppninni en beið síðan lægri hlut,
1-4, fyrir Stars & Stripes í undanúr-
slitakeppninni.
Síðan reyndi Conner að dreyfa
athygli keppinauta sinna með því að
tilkynna að grópuð plastfílma, sem
notuð er á flugskeyti og eldflaugar
til að draga úr núningsmótstöðu,
hefði verið límd á skrokk skútu
sinnar til að auka hraða hennar.
Seglið minnir á konu-
brjóst
Á mánudag beitti hann sömu
brellu með því að láta út spyijast
að hann hefði orðið sér úti um nýtt
belgsegl fyrir úrslitakeppnina. Á því
ofanverðu væm 36 blöðmlaga „vas-
ar“ sem eiga að auka lyfti- og þarmeð
togkraft seglsins. Minna vasamir
útblásnir á konubijóst og sagðist
Conner kalla seglið „Dolly“ til heið-
urs barmastóm bandarísku þjóðlaga-
söngkonunni Dolly Parton.
Belgseglið er notað á siglingu þegar
beitt er undan vindi og belgist þá
út fremst á skútunni.
Sagt var að fregnin um seglið
hafi komið áhöfninni á Kookaburra
III, mótheijum Conners, í opna
skjöldu. Hafi þeir hins vegar reynt
að bera sig vel með því að halda
fram að lítill ávinningur væri í segli
af þessu tagi nema við alveg sérstök
veðurskiljrrði.
Taugastríð
Taugastríðið í Ameríkubikamum
hefur brotizt út með ýmsum hætti.
Vart hafði fregnin um nýja seglið
spurzt út er reynt var að hrella Conn-
er með því að afhenda skipveijum á
Kookaburra III lukkugrip. Var það
veifa sem Australia II, skúta auðkýf-
ingsins Alan Bond, sigldi með til
Metbfllinn Lada Samara er
til afgreiðslu með stuttum
fyrirvara.
Hagstæðir greiðsluskilmálar.
Lada Samara 4ra gíra:
247 þús.
Lada Samara 5 gfra:
265 þús.