Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
Sláturfélag Suðurlands 80 ára:
Hér eru yfirmenn allra deilda SS ásamt forstjóra og fulltrúa hans samankomnir á fundi. F.v.: Matthias Gíslason fulltrúi forstjóra, Ásgeir
Nikulásson forstöðumaður sútunarverksmiðju SS, Auður Hvanndal deildarstjóri erlendra viðskipta, Samúel Steinbjörnsson deildarstjóri
tæknideildar, Jón H. Bergs forstjóri, Vigfús Tómasson sölustjóri búvöru, Hjalti H. Hjaltason skrifstofustjóri, Steinþór Skúlason framleiðslu-
stjóri og loks Teitur Lárusson starfsmannastjóri. Á myndina vantar Jóhannes Jónsson forstöðumann vörumiðstöðvar SS og SS-búðanna.
Erfitt að gera upp á milli
margra góðra áfanga
— segirJónH.
Sláturfélag Suðurlands er í
dag 80 ára og er ferillinn í senn
litríkur og sögulegur. „Þegar ég
leit á dagatölin um áramótin
hrökk ég nokkuð við er ég sá
að ég átti þar með að baki 30
ára feril i forstjórastólnum.
Vissulega hafa náðst áfangar í
starfinu, en það er erfitt að gera
upp á milli þeirra. Mig setur
hljóðan ef ég á að tina út eitt-
hvað sem kalla mætti minnis-
stæðast. Ég held ég sleppi þvi
og horfi frekar með þér fram á
veginn,“ sagði Jón H. Bergs for-
stjóri SS í samtali við Morgun-
blaðið fyrir skömmu. Síðan lýsti
hann byggingarf ramkvæmdum
fyrirtækisins i Laugarnesi.
„Það eru fimm ár síðan að byijað
var þar á framkvæmdum og fyrsti
áfanginn er langt kominn og við
erum rétt að byrja á öðrum áfanga.
Öll okkar starfsemi mun flytjast
þangað í fyllingu tímans og allt
nema skrifstofumar eftir svona
2—3 ár. Það er ekki seinna vænna
að standa í þessu, það hefur lengi
staðið til að byggja nýja verksmiðju
á þessu mesta markaðssvæði okk-
ar, enda er orðið mjög þröngt um
alla okkar starfsemi hér í kjölfarið
á vaxandi kröfum um fullvinnslu
vörunnar. Borgin úthlutaði okkur
þessari ágætu lóð, en sjálf hefur
hún hugsað sér mikil stórhýsi þar
sem húsnæði okkar við Skúlagöt-
una er nú. Þetta eru því verðmætar
lóðir," sagði Jón H. Bergs ennfrem-
ur.
En ætlar SS að marka áfangann
með einhveijum sérstökum eftir-
minnilegum hætti, koma fram með
róttækar breytingar eða nýjungar
í starfeemi sinni og framleiðslu? Jón
H. Bergs: „Við erum náttúrlega
Bergs forsijóri
alltaf að koma með nýjungar í
vöruvali, við erum með mörg hundr-
uð vöruflokka og þar er stanslaus
þróun í gangi. Hins vegar er mjög
ákveðin og vaxandi eftirspum eftir
fullunninnivöru eins og ég sagði
áðan. Nú er svo algengt að bæði
heimilisfaðir og húsmóðir vinni úti,
að tíminn sem fólk hefur til að elda
heima fyrir er lítill. Á þessu sviði
höfum við ekki hvað síst reynt að
herða okkur og svara þessari eftir-
spum.
Annars hefur SS haldið þeirri
stöðu í gegnum áratugina sem til
stóð. Megináhersla hefur verið lögð
á fullkomnar vinnslustöðvar, allar
stöðvar okkar á Suðurlandi uppfylla
ýtmstu kröfur um hreinlæti, að-
stöðu og öryggi. Öll okkar sláturhús
hafa hlotið löggildingu og hefur
engu verið til sparað til þess að
þetta hafí mátt heppnast. Þá höfum
við reynt að fylgjast með markaðs-
málum eins náið og frekast hefur
verið kostur og hefur SS raunar
verið í fylkingarbijósti frá upphafí,
því strax árið 1908 var fyrsta SS-
búðin opnuð, kjötbúð í Haftiarstræt-
inu.“
Matthías Gíslason fulltrúi for-
stjóra hjá SS hefur tekið saman
ágrip af sögu fyrirtækisins og gef-
um við honum nú orðið:
Á þessu ári minnumst við merkis-
atburðar, sem gerðist fyrir áttatíu
árum og markaði tímamót í mark-
aðsmálum sunnlenskra bænda.
Atburður þessi var ávöxtur af stór-
hug þeirra bænda, sem gengust
fyrir stofnun Sláturfélags Suður-
lands. Fullyrða má, að Bogi Th.
Melsted, sagnfræðingur í Kaup-
mannahöfn, hafí verið einn af
aðalhvatamönnum að stofnun þess.
Eftir hvatningarræðuna, sem hann
flutti á fundi á Þjórsárbrú 30. júlí
1905, var að hans tillögu kosin
þriggja manna nefnd til að gangast
fyrir stofnun einhverskonar sam-
vinnufélagsskapar um slátrun
búfjár og sölu sláturafurða. For-
maður nefndar þessarar var Ágúst
Helgason í Birtingarholti. Nefndin
tók það ráð að skrifa ýmsum mönn-
um á fyrirhuguðu félagssvæði bréf
og mæítust nefndarmenn til að full-
trúar yrðu kosnir í sýslunum til
þess að ráðgast um og undirbúa
stofnun sameignarsláturfélags.
Þessu var vel tekið og voru fulltrú-
ar kosnir, sem kvaddir voru til
fundar í Reykjavík 26. marz 1906.
Þar mættu fulltrúar úr V-Skafta-
fellssýslu, Rangárvallasýslu,
Ámessýslu, Kjósarsýslu og Borgar-
fjarðar- og Mýrasýslu. Fundurinn
samdi frumvarp til laga fyrir vænt-
anlegt sláturfélag á Suðurlandi.
Síðan var hafíst handa um söfnun
stofnfjárloforða. Lágmarksverð
stofnbréfa var ákveðið kr. 10.00.
Til stofnfundarins var síðan boð-
að og hann haldinn við Þjórsárbrú
28. janúar 1907 og sóttu hann
bændur úr Ámes- og Rangárvalla-
sýslum. Þá höfðu safnast stofnfjár-
loforð sem námu rúmlega 11
þúsund krónum og félagsmenn voru
orðnir 565. Þar var fyrirgreint laga-
frumvarp samþykkt sem fyrstu lög
Sláturféíags Suðurlands.
Á stofnfundinum vora kosnir
fulltrúar úr Ámes- og Rangárvalla-
sýslum í stjóm félagsins; tveir úr
hvorri sýslu. Síðar um veturinn
vora haldnir fundir í öðram sýslum,
er sent höfðu fulltrúa á undirbún-
ingsfundinn í Reykjavík árið áður.
Fyrsta stjóm félagsins var full-
skipuð síðla vetrar. Hana skipuðu:
Páll Ólafsson á Heiði fyrir Vestur-
Skaftafellssýslu, Eggert Pálsson á
Breiðabólsstað og Þórður Guð-
mundsson í Hala fyrir Rangárvalla-
sýslu, Ágúst Helgason í Birtingar-
holti og Vigfús Guðmundsson í
Haga fyrir Amessýslu, Bjöm
Bjamason S Grafarholti fyrir Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, Hjörtur
Snorrason á Skeljabrekku fyrir
Borgarfjarðarsýslu og Guðmundur
Ólafsson á Lundum fyrir Mýra-
sýslu. Ennfremur átti fyrsti forstjóri
félagsins sæti í stjóminni sam-
kvæmt fyrstu lögum félagsins, en
hann var Hannes Thorarensen.
Hannes var forstjóri til 1924. Þá
tók við forstjórastarfínu Helgi
Bergs og gegndi því til 1. janúar
1957, og var sonur hans, Jón H.
Bergs, ráðinn forstjóri frá þeim
degi að telja og hefur gegnt starf-
inu_ síðan.
Ágúst Heigason var kosinn fyrsti
formaður félagsins og var það sam-
1
•j *
' ' ’*Á í'-a '<v/" ' '
■
Fyrri áfanga hins nýja húsnæðis i Laugamesi er að ljúka, annað eins mannvirki og hér sést verður svo reist fyrir aftan bygginguna á
myndinni. Hvort hús verður 4.800 fermetrar á þremur hæðum og í fyllingu tímans verður öll starfsemi SS þama til húsa að slátruninni
undanskilinni.