Morgunblaðið - 28.01.1987, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 281/JANÚAR 1987
Alþíngishúsið og
danska skjaldarmerkið
eftir Þorstein
Halldórsson
Grein þessa rita ég í tilefni DV-
kjallaragreinar Guðmundar H.
Guðjónssonar, skólastjóra í Vest-
mannaeyjum, hinn 16. janúar sl.
Slík skrif getur maður ekki látið
fram hjá sér fara án þess að leið-
rétta þær meinlegu villur sem í
þeim eru.
Skjaldarmerkin á
Alþingishúsinu
Það mun víst ekki vekja furðu
nokkurs manns sem leið á framhjá
Alþingishúsinu að sjá þar danska
skjaldarmerkið, því þar er það
hvergi að fínna. Hitt er annað mál
að þar er á þaki hússins fangamark
Kristjáns konungs níunda, sem telja
verður eðlilegt, þar sem húsið var
byggt á valdaárum hans. Á Al-
þingishúsinu hengu þó frá upphafí
(1881) tvö skjaldarmerki, þ.e. hið
islenska: silfraður, krýndur, flattur
þorskur á rauðum grunni og hið
danska: þijú kiýnd, blá ljón á gulum
feldi með rauðum hjörtum. Voru
merkin staðsett á framhlið hússins
sitt hvoru megin fyrir ofan svala-
gluggann.
Krýndi þorskurinn var tekinn
niður 1904 og nýtt skjaldarmerki
sett í hans stað; silfraður fálki á
íslenska skjaldarmerkið
1904-1919.
bláum grunni. 1911 voru bæði
merkin tekin niður og hefur ekkert
skjaldarmerki hangið utan á Al-
þingishúsinu siðan.
Landvættirnar
Næst er til að taka að landvætt
er kvenkyns orð en ekki karlkyns
eins og svo margir flaska á.
Alþingi íslendinga hefur nú þing-
að síðan 1881 undir myndum úr
hinni bráðsmellnu Ólafs sögu
Tryggvasonar f Heimskringlu, þ.e.:
griðungi, bergrisa, gammi ogdreka,
íslenska skjaldarmerkið frá mið-
öldum til 1904.
sem þar að auki eru skv. forsetaúr-
skurði nr. 35 frá 17. júní 1944 hinir
flórir skjaldberar íslenska skjaldar-
merkisins. Slqaldarmerki íslands er
skv. fyrmefndum úrskurði ákveðið:
„ ... silfurlitur kross í heiðbláum
feldi með eldrauðum krossi innan í
silfurlita krossinum". Þannig er það
að landvættimar bera slgaldar-
merki íslensku þjóðarinnar en ekki
fána eins og GHG segir. Þjóð-
fáninn, svo sem algengt er með
fána, er nokkurs konar „myndvarp"
skjaldarmerkisins.
Danska skjaldarmerkið. Það á
uppruna sinn að rekja til um
1100.
Landvættimar hafa prýtt fram-
hiið Alþingishússins frá upphafí í
ágætum lágmyndum yfír gluggun-
um á annarri hæð hússins.
Erlend yfirráð
íslendingum er vafalaust hollt
að minnast þess að þeir vom undir
erlendum yfírráðum í hartnær átta-
hundruð ár. Á það minna t.d. hin
ýmsu merkustu mannvirki á ís-
landi, s.s. stjómarráðshúsið og
Bessastaðastofa, hvorttveggja nýtt
íslenska skjaldarmerkið frá því
1944 ásamt skjaldberum þess:
griðungi, bergrisa, gammi og
dreka. Láréttu og lóðréttu strik-
in í skildinum tákna litina skv.
hinni fornu alþjóðlegu reglu i
skjaldarmerkjafræði, þ.e. lárétt:
blátt, lóðrétt: rautt.
íslenska skjaldarmerkið
1919-1944.
af forseta lýðveldisins og Alþingis-
húsið, svo dæmi séu nefnd. Munu
þau standa sem ævarandi áminning
til okkar um hið erlenda vald, svo
ekki sé nú minnst á fangamark
Slysavarnafélagið -
Landhelgisgæslan
eftir Guðmund
Guðmundsson
Nokkuð hefir verið rætt um það
á síðum þessa blaðs hvort Slysa-
vamafélagi íslands eða Landhelgis-
gæslunni beri að hafa yfírstjóm
með leit og björgun ef slys beri að
höndum á sjó.
Þessar stofnanir eru hver á sínu
sviði ómissandi ef þeir atburðir ger-
ast er höfða til þeirra verkefna er
undir þær heyra. Slysavamafélag
íslands er flöldahreyfíng sem ótví-
rætt hefir sannað gildi sitt um
áratugi. Þar hafa verið starfandi
áhugamannahópar af báðum kynj-
um, sem lagt hafa dag við nótt til
þess að vinna að ætlunarverki
Slysavamafélagsins. Uppbyggingin
á starfsemi félagsins hefír að veru-
legu leyti byggst á sjálfboðaliða-
starfí hinna fjölmörgu einstaklinga
er lagt hafa málefninu lið og hefir
þessi þáttur í félagsmálastarfí hins
daglega lífs óefað orðið mörgum
hvatning til frekari dáða á öðrum
sviðum.
Ég held að það fari ekkert á
milli mála að þeir sem unnið hafa
að málefnum Slysavamafélagsins
og gjörst þekkja til þess starfs sem
þar er unnið, em einhuga um það
að enginn aðili annar er hæfari til
þess að hafa forystu um þær að-
gerðir sem kalla að ef sjóslys eiga
sér stað. Á£ þijátíu ára reynslu sem
virkur þátttakandi að málefnum
Slysavamafélagsins er undirritaður
sannfærður um að þessum málum
er best skipað á þann hátt sem að
ofan hefír verið vikið að.
Landhelgisgæslan er ríkisrekið
fyrirtæki sem háð er því hve fjár-
málavaldið er örlátt á fjármuni til
rekstui'sins hveiju sinni. Raunar
ætti það að vera metnaður okkar
og hrein skylda ríkisvaldsins að svo
sé um hnútana búið að Landhelgis-
gælsunni sé ávallt ætlað það
Guðmundur Guðmundsson
„Því aðeins getur Land-
helgisgæslan gegnt
sínu mikilvæga hlut-
verki að í engu sé til
sparað að búa skipin
þeim bestu tækjum,
sem völ er á.“
fjármagn til rekstursins að hún
geti gegnt sínu hlutverki svo sem
þörf er á hveiju sinni. Það sást
best á árum þorskastríðsins hvers
virði Landhelgisgæslan var þjóðinni
þegar barist var við breska heims-
veldið um jrfírráðarétt landhelginn-
ar.
Þeir sem þá störfuðu á skipum
gæslunnar vom stolt þjóðarinnar
og sýndu mikla þolinmæði og festu
í störfum sínum þótt við ofurefli
væri að etja.
Með fullri virðingu fyrir þessari
mikilvægu stofnun held ég að hún
geti best gegnt hlutverki sínu í sam-
bandi við aðgerðir ef sjóslys ber að
höndum með því að hafa sjálfdæmi
um bráðar ákvarðanir í einstökum
tilfellum en jafnframt góða sam-
vinnu við Slysavamafélagið, er
hefði yfírstjómina með höndum.
Hafa verður í huga að varðskipin
séu ávallt búin þeim fullkomnustu
tækjum, sem völ er á til siglinga
og staðarákvarðana. Þeir sem
standa best að útgerð stærri fiski-
skipa kappkosta að hafa þau vel
útbúin með fiskileitar- og siglinga-
tækjum og em í mörgum tilfellum
að minnsta kosti tvö og fleiri tæki
um borð af hverri gerð, radar, dýpt-
armæla, lóran-staðsetningarkerfí
o.fl. þannig að séð er fyrir því að
þó eitt tæki bili þá er annað til stað-
ar til að taka við.
Ég dreg í efa og veit raunar að
varðskipin séu eins vel búin tækjum
og best gerist í togumnum og er
það óafsakanlegt og skipstjómar-
menn þar um borð eiga sannarlega
skilið að hafa þennan búnað sem
fullkomnastan.
Það var hörmulegt að heyra frá
því sagt í útvarpinu eftir flugslysið,
sem varð í ísafjarðardjúpi fyrir
skömmu, að varðskip sem var í
næsta nágrenni hafði ekki um borð
miðunartæki , til þess að staðsetja
neyðarsendi er var í flugvélinni og
heyrðist í og jafnframt var sagt frá
því að tækið sem átti að vera um
borð í skipinu hefði bilað og væri
í landi í viðgerð. Hvað veldur, hefír
yfirstjóm gæslunnar ekki skilning
á því eða réttara sagt ekki fram-
takssemi til þess að hafa til vara
svo mikilvægt tæki sem setja mætti
um borð í skipin ef það bilar sem
um borð hefír verið, eða er fjár-
hagurinn svo slæmur að ekki er
unnt að kaupa varatæki sem kosta
mun innan við tvö hundruð þúsund
krónur. Slíkt má undir engum
kringumstæðum eiga sér stað og
er hreint óafsakanlegt, því aðeins
getur Landhelgisgæslan gegnt sínu
mikilvæga hlutverki að í engu sé
til sparað að búa skipin þeim bestu
tækjum, sem völ er á.
Höfundur er útgerðarmaður &
ísafirði ogformaður Útvegs-
mannafélags Vestfjarða.
Á myndbönd eru komnar topp myndir frá Midnight video
Myndbandaleigur: Mjög hagstætt verd.
PANTANIR Í SÍMA 671613.