Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 23
punkturinn var þó að sjálfsögðu
„sá feiti“ við píanóið, brosmildur
og geðþekkur og engum duldist
að þarna var kominn einhver mesti
skemmtikraftur sem komið hefur
hingað til lands.“
Kynleg’ur kvistur
I daglegri umgengni utan sviðs
þótti Fats fremur einkennilegur í
háttum. Það var nánast útilokað
að ræða við hann um landsins
gagn og nauðsynjar. Fyrir utan
tónlistina virtist hann ekki hafa
áhuga á öðru en fötum og mat. I
svítunni hans á Hótel Loftleiðum
var komið fyrir eldunartækjum þar
sem Domino eyddi flestum stund-
um á milli tónleika við að malla
„Jambalaya-mat“, eða það sem
heimamenn í New Orleans kalla
„cajun“, sem byggir á franskri
matargerðarlist. Um þetta syngur
Domino m.a. í laginu „Jambalaya",
þar sem hann lofsyngur „catfish
pie filled with gumbo“. En þótt
Domino hafi lítt blandað geði við
innfædda á meðan á dvöl hans
stóð tók hann engu að síður slíku
ástfóstri við land og þjóð að hann
hét því að koma hingað aftur við
fyrsta tækifæri. Hefur þar eflaust
ráðið mestu um þær stórkostlegu
viðtökur sem hann fékk á tónleik-
um sínum.
Félagar hans í hljómsveitinni
urðu ekki síður hrifnir af íslandi
enda eignuðust margir þeirra góða
kunningja hér á landi. I viðtali, sem
blaðamaður Morgunblaðsins átti
við þá þtjá í hljómsveitinni, sem
hafa verið með Domino frá upp-
hafi, hljómsveitarstjórann Dave
Bartholomew og saxafónleikarana
Herb Hardesty og Lee Allen, áttu
þeir fá orð til að lýsa ánægju sinni
með Islandsheimsóknina. „Það
hefur verið farið með okkur eins
og kónga“, sagði Bartholomew. í
viðtalinu vildi hann koma á fram-
færi sérstöku þakklæti til Björg-
vins Halldórssonar, sem hann sagði
að hefði verið allur af vilja gerður
til að gera þeim dvölina hér sem
ánægjulegasta. „Fínn strákur,
Björgvin", sagði Dave og bætti því
við að hið sama væri að segja um
allt það fólk sem þeir félagar hefðu
kynnst á íslandi. „Þegar Björgvin
kom til okkar, þar sem við vorum
að spila í London, og fór að tala
um möguleikana á að við kæmum
til íslands hugsaði ég með mér:
Fjandinn hafi það, hvern langar
að fara til íslands. - Þetta hefur
síðan reynst vera eitthvað það
heimskulegasta sem ég hef hugsað
um ævina. Nú vil ég snúa þessu
við og spyrja: Hvern langar ekki
að fara til Islands? Alla vega vona
ég svo sannarlega að ég eigi eftir
að koma hingað aftur,“ sagði Bart-
holomew og honum og félögum
hans hefur nú orðið að ósk sinni.
Er ekki að efa að landinn tekur
vel á móti þeim félögum eins og
raunin varð í fyrstu heimsókn
þeirra.
Sv.G.
Gunnlaugur Rögnvaldsson kepp-
ir ásamt Tékkanum Pavel Sedivy
í rallkeppni í Tékkóslóvakíu í lok
mánaðarins á vegum Chemopetr-
ol-keppnisliðsins.
ár fæ ég líklega 130 hestafla Skoda,
Sem er öflugri að öllu leyti. Markmið-
ið er að ná frambærilegum árangri
og verða landinu til sóma. Það tókst
ekki vel síðast, þá velti ég. Nú klikk-
ar vonandi ekkert," sagði Gunnlaug-
ur.
MORGUNBLAÐIÐ, MiÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
Húsið við Fannborg sem hýsa mun Félagsheimili Kópavogs. Morgunbiaðið/Þorkeii
Kópavogur:
Félagsheimilið tekið í notkun í haust
NÝTT félagsheimili við Fannborg í Kópavogi
verður tekið í notkun í haust. Félagsheimilið verð-
ur á neðstu hæð í húsi Bæjarskrifstofu Kópavogs.
Að sögn Guðjóns Magnússonar, menningarfulltrúa
Kópavogsbæjar, er hér verið að breyta gömlu hús-
næði og byggja það upp. Kvað hann félagsheimilið
búið að vera lengi í lagfæringu og myndi það skapa
ný tækifæri fyrir Leikfélag Kópavogs til að halda
starfsemi sinni áfram. Auk þess yrði þar pláss fyrir
ýmsa félags- og menningarstarfsemi í bænum, svo
sem tónleika, árshátíðir og þorrablót.
Ennfremur sagði Guðjón að húsið myndi taka 400
manns í sæti ef setið er í sætaröðum, en 200 manns
ef setið er við borð.
23
Athugasemd
ATHUGASEMD frá konu sem
viðtal var við vegna þátttöku
hennar í frumkönnun Krabba-
meinsf élagsins:
Nokkurs misskilnings gætir í
viðtali við mig, sem birtist í Morg-
unblaðinu 27. janúar sl. Ég óska
þess að eftirfarandi komi fram:
Ég tel mig ákaflega lánsama að
hafa fengið tækifæri til að taka
þátt í frumkönnun Krabbameins-
félagsins vegna leitar að krabba-
meini í ristli og endaþarmi. Mér
hefði aldrei
dottið í hug að fara í svona próf
ótilkvödd þar sem ég fann ekki
til neinna óþæginda. Það var fyrir-
höfn að taka sýnin en ekki
vandræðalegt.
Ranghermt er að ég hafi þurft
að bíða lengi eftir niðurstöðum
og var ég ristilspegluð tveimur
dögum eftir að hringt var í mig.
Að lokum vil ég ítreka þakk-
læti mitt til Krabbameinsfélagsins
og hvet þá sem eiga þess kost að
taka þátt í þessari könnun að
notfæra sér það.
&
Flugrekstarleyfi til dótturfyritækis
Arnarflugs enn 1 skoðun:
*
Ymislegt sem ráðuneyt-
ið vill fá að vita frekar
- segir Matthías Bjarnason samgönguráðherra
„ÞAÐ liggja fyrir ákaflega sterk meðmæli frá þeim stöðum sem Arnar-
flug hefur flogið til, um að dótturfyrirtæki Arnarflugs fái þessi
flugrekstrarleyfi. Þó er ýmislegt sem ráðuneytið vill fá að vita frekar
um fyrirhugaðan flugrekstur og þá með hvaða hætti fyrirtækið ætlar
að anna þessu flugi, með hve mörgum vélum, hvaða gerðar og svo
framvegis. Þetta er samt ekki svo aðkallandi og breytir engu um það
að flugrekstrarleyfið er nú í höndum Arnarflugs og það hefur engin
áhrif á reksturinn," sagði Matthías Bjarnason samgönguráðherra þeg-
ar hann var spurður að því hvað liði umsókn Arnarflugs um að
fyrirhugað dótturfyrirtæki félagsins yfirtæki innanlandsflugið.
Matthías sagði aðspurður að ember um að fyrirhugað dótturfyrir-
nokkur flugfélög vakið athygli ráðu-
neytisins á því að þau væru reiðubúin
að taka að sér flug á leiðum þeim
sem Arnarflug hefur verið með ef
flugrekstrarleyfi losnar en sagðist
Matthías telja að það hafi fyrst og
fremst verið verið vegna umtals um
að Arnarflug ætli að hætta innan-
landsflugi.
Arnarflug lagði inn umsókn hjá
samgönguráðuneytinu í byijun des-
tæki Arnarflugs yfirtæki innan-
landsflug félagsins, og undanfarið
hafa ráðuneytinu borist stuðnings-
yfirlýsingar við þessa fyrirætlun frá
hreppsnefndum og íbúum á stöðum
sem Arnarflug hefur flogið til. í
samtali við Morgunblaðið sagði
Kristinn Sigtryggson framkvæmda-
stjóri Arnarflugs að engar fyrir-
spurnir hefðu komið frá samgöngu-
ráðuneytinu vegna þessarar
umsóknar félagins.
Fræðslufundur hjá Fáki
FRÆÐSLUFUNDUR hjá hesta-
mannafélaginu Fáki verður
haldinn fimmtudaginn 29. janúar
kl. 20.30 i félagsheimilinu á Víði-
völlum.
A þessum fundi verður fjallað
um ýmislegt er lýtur að vetrarþjálf-
un og vetrarfóðrun reiðhesta, svo
og um sitthvað er varðar útreiðar
í skammdeginu og varúðarráðstaf-
anir sem gera þarf.
Brynjólfur Sandholt dýralæknir,
Bergíind Hilmarsdóttir fóðurfræð-
ingur og Haukur Árnason læknir á
slysadeild Borgarspítalans munu
flytja erindi og í lok fundarins verð-
ur sýnd kvikmynd frá sýningu
spænska reiðskólans í Vín.
BÍUUNNÁP^
• Lítill, sætur og ótrúlega
rúmgóöur.
• Léttur og lipur í bænum.
• Eyöir næstum engu.
• Hægt að leggja honum hvar
sem er.
Skutlan kostar nú frá aðeins
gengisskr. 14.1.87
BÍLABORG HF
Smiðshöfða 23sími 6812 99
266 þúsund krónum.
Skutlan er flutt inn af Bíla-
borg h/f. Það tryggir 1. flokks
þjónustu, sem er rómuð af öll-
um sem til þekkja.