Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
25
Gorbachev hvetur til leyni-
legra kosninga og lýðræðis
Moskvu, AP, Reuter.
MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, hvatti í gær til að
löguni um kosningar til áhrifamikilla embætta innan Kommúnista-
flokksins yrði breytt á þann veg að kosið yrði milli margra frambjóð-
enda. Gorbachev tilkynnti einnig að efnt yrði til allsheijarfundar
flokksins á næsta ári en slíkur fundur var siðast haldinn árið 1941.
Sovétleiðtoginn ávarpaði mið-
stjórn Kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna í gær og gerði stöðnunar-
tímabil undanfarinna tveggja
áratuga að umtalsefni. Gagnrýndi
hann Leonid Breshnev, fyrrum leið-
toga Sovétríkjanna , harðlega fyrir
slælega stjórn og fór jafnframt
hörðum orðum um Nikita Khruseh-
ev.
Gorbachev hvatti til þess að alls-
hetjarfundur flokksins yrði haldinn
á næsta ári og kvað það nauðsyn-
legt til að „tryggja aukið lýðræði
innan flokksins og í þjóðfélaginu".
Samkvæmt lögum flokksins má
boða til allshetjarfundar á fimm ára
fresti milli flokksþinga en sovéskir
ráðamenn sáu síð’ast ástæðu til
þess árið 1941.
Leiðtoginn kvartaði yfir því að
hægt miðaði á sviði endurskipu-
lagningar efnahagslífsins og
gagnrýndi staðnaða embættismenn,
sem hann sagði lifa í fortíðinni og
vera dragbíta á efnalegar og pólití-
skar framfarir. Hann sagði að svo
virtist sem embættismenn hugsuðu
margir hvetjir fyrst og fremst um
stöðu sína og titla í stað þess að
einbeita sér að því að bæta líf fólks-
ins í landinu. Sagði Gorbachev að
flokksforustan væri að ýmsu leyti
ábyrg fyrir þessari stöðu mála og
hvatti til aukinna áhrifa almennings
þegar ákvarðanir um heill og ham-
ingju væru teknar. Sagði hann að
breyta þyrfti gildandi lögum á þann
veg að flokksmenn gætu tilnefnt
frambjóðendur til embætta að vild
og kosið yrði um þá í leynilegum
kosningum. Hingað til hafa flokks-
menn samþykkt tilnefningar með
því að rétta upp hendur.Gorbachev
kvað einnig nauðsynlegt að ungt
fólk og konur kæmust til aukinna
áhrifa innan flokksins.
Þá ræddi Gorbachev vaxandi
þjóðernishyggju í ákveðnum hlutum
Sovétríkjanna og kvað nauðsynlegt
að uppræta hana m.a. með átaki í
menntamálum. Sagði hann að víða
hefði orðið vart óæskilegra þjóðern-
istilhneiginga og minntist í því
sambandi á óeirðir í Alma Ata í
Kazakhstan í desember á nýliðnu
ári. Sagði hann „ákveðna” flokks-
leiðtoga hafa sýnt kæruleysi og
gagnrýndi sérstaklega Dinmuk-
hamed Kunayev, fyrrverandi
flokksleiðtoga í Kazakhstan, sem
vikið var úr embætti í kjölíar óeirð-
anna. Almennt er talið að Kunayev
verði vikið úr miðstjórninni á þess-
um fundi. I tilkynningu frá Tass
fréttastofunni sagði að Vladimir
Shcherbitsky, flokksleiðtogi í Úkr-
aínu, myndi ávarpa miðstjórnina.
Þykir þetta benda til þess að hann
muni halda sæti sínu í miðstjórn
flokksins. Shcherbitsky hafði verið
gagnrýndur fyrir dapurlega stjórn
landbúnaðarmála í Úkraínu og voru
uppi getgátur um að hann yrði lát-
inn víkja.
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
BANDARÍKJADOLLAR
lækkaði í gær gagnvart
flestum helztu gjaldmiðl-
um heims. Síðidegis í gær
kostaði brezka pundið
1,5310 dollara (1,5255),
en annars var gengi doll-
arans þannig, að fyrir
hann fengust 1,8160 vest-
ur-þýzk mörk (1,8265),
1,5248 svissneskir frank-
ar (1,5295), 6,0600 fran-
skir frankar (6,0775),
2,0465 hollenzk gyllini
(2,0555), 1.290,50 ítalskar
lírur (1.295,25), 1,34485
kanadískir dollarar
(1,3525) og 151,95 jen
(152,10).
Verð á gulli hækkaði
og var það 411,40 dollar-
ar únsan (407,00).
34.000 bætast við í
hóp verkfallsmanna
London. Reuter.
SÍMVIRKJADEILAN í Bretlandi harðnaði enn í gær, þegar 34.000
starfsmenn á skrifstofum Breska Simafélagsins bættust í.hóp 114.000
verkfallsmanna og símasamband við kjarnorkurannsóknarstofnun, er
sinnir leynilegum verkefnum, var rofið.
Talsmaður Símafélagsins sagði,
að tveggja klukkustunda viðræður
milli fulltrúa félagsins og stéttarfé-
lags símvirkja í gær hefðu ekki borið
neinn árangur og enn bæri mikið í
milli samningsaðila. Pi'ekari sátta-
fundir hafa ekki verið ákveðnir.
Vinnustöðvun skrifstofufólksins
stendur í þijá daga og er til komin
vegna sérkrafna þess.
Talsmaður símvirkjafélagsins
sagði á mánudag, að þátttaka í verk-
fallinu væri algjör og væri áhrifa
þess þegar farið að gæta verulega
í iðnaði og neyðarþjónustu.
Talsmaður Símafélagsins sagði,
að ólíklegt væri, að viðskiptavinir
fyrirtækisins, sem eru um 21 milljón
talsins, yrðu fyrir tilfinnanlegum
óþægindum, þar sem deildarstjórar
hefðu fallist á að sinna neyðarvið-
gerðum, sem símvirkjar annast
venjulega.
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra, sagði í þingræðu í breska
þinginu í gær, að hún óttaðist að
verkfallið kæmi illa niður á öldruðu
fólki og sjúku og einnig að það ylli
vandræðum í viðskiptalífinu. Síma-
sambandslaust var í gær við nokkrar
lögreglustöðvar á afskekktum stöð-
um í Thamesdal.
Orðrómur um valda-
rán á degi hverjum
Manilu, Reutcr.
FRÁ því Corazon Aquino, forseti Filippseyja, komst til valda í febr-
úar á síðasta ári hefur þrisvar verið reynt að steypa henni af stóli.
Á degi hverjum ganga sögur um að valdarán sé í uppsiglingu.
Þann 6. júlí lýsti Arturo Tolent-
ino, fyrrum þingmaður, yfir því að
stjórn uppreisnarmanna hefði tekið
við völdum. Fjórir hershöfðingjar
og um 300 stuðningsmenn Ferdin-
ands Marcos, fyrrum forseta,
studdu Tolentino. Hann sór emb-
ættiseið forseta og skipaði Juan
Ponce Enrile varnarmálaráðherra.
Uppreisninn rann út í sandinn þeg-
ar Enrile og Fidel Ramos, yfirmaður
stjórnarhersins, lýstu yfir stuðningi
við Aquino og hvöttu uppreisnar-
menn til að gefast upp. Tolentino
og nokkrir stuðningsmenn hans
voru ákærðir en síðar var fallið frá
frekari málarekstri.
I septembermánuði tók Enrile að
fara hörðum orðum um stjórn Aqu-
ino og valdamenn innan hersins,
sem steyptu Marcos á sínum tíma,
tóku undir þá gagnrýni. Sá orðróm-
ur gekk fjöllum hærra að stuðnings-
menn Enriles og Ferdinands Marcos
innan hersins hygðust ræna völd-
um. Ferdinand Ramos lýsti þá yfir
stuðningi við Aquino og skipaði
hermönnum að fylgja fyrirskipun-
um sínum.
22. nóvember skipaði Ramos her-
mönnum að vera í viðbragðsstöðu
við þinghúsið og aðrar mikilvægar
byggingar í Manila en þá gengu
sögur um að andstæðingar forset-
ans hygðust ráðast á þinghúsið og
ræna völdum. Daginn eftir skipaði
Ramos hermönnum að virða fyrir-
mæli Enriles að vettugi. Aquino
kallaði stjórn sína saman til neyðar-
Reuter
Vopnaður stuðningsmaður Ferd-
inands Marcos á þaki sjónvarps-
stöðvar, sem uppreisnarmenn
tóku á sitt vald í gærmorgun.
fundar og óskaði þess að allir
ráðherrar hennar segðu af sér.
Þann dag samþykkti hún þó aðeins
lausnarbeiðni Enriles.
Valdaránstilraunin í gær virðist
hafa verið lokatilraun andstæðinga
forsetans til að koma í veg fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu 2. febrúar
um nýja stjórnarskrá sem Aquino
hefur látið semja. Hljóti hún sam-
þykki landsmanna mun Aquino sitja
sem forseti til 1992.
Stjórnunarfélag íslands mun efna til 10 vikna endurmenntunarnámskeiðs sem
hefst þann 5. febrúar n. k. og stendur fram til 15. apríl. Hér er um tilvalió tækifæri aó
ræöa fyrir þá, sem hyggjast breyta um starf eöa eru aö hefja störf aö nýju eftir
lengra eöa skemmra hlé. Námskeió þetta hefur veriö haldiö tvisvar áöur viö mjög
góöar undirtektir enda hefur áhersla veriö lögó á fjölbreytt námsefni, og hæfa
kennara meö mikla sérfræöilega reynslu og þekkingu hver á sínu sviöi. Námiö er
tilvaliö fyrir þá, sem vilja afla sér hagnýtrar þekkingar á sviöi verslunar og viöskipta
og eru reióubúnir aó sækja hálfsdags nám er hefst 5. febrúar og stendur fram aó
páskum. Kennsia slcíptist» 4 svió:
1. Sölu- og markaóssviö 3. Tölvusvid
a. Sölutækni a. Grunnnámskeiö á tölvur
b. Markaössókn b. Ritvinnsla
c. Skjalageró c. Gagnagrunnur
d. íslensk haglýsing d. Áætlanageró
e. Rekstrarhagfræói e. Tölvubókhald
2. Stjómunarsviö 4. Málasvið
a. Stjórnun og samskipti viö starfsmenn a. Ensk verslunarbréf
b. Viötalstækni b. Enska í viðskiptum og verslun
c. Veröútreikningar og tilboösgerö
d. Bókfærsla
e. Skjalavistun
f. Veröbréfamarkaöurinn
Til að koma til móts við óskir fjölmargra um hálfsdagsnám verður kennt alla virka
daga frá klukkan 13.00 til 17.00 i húsakynnum SFÍ aö Ánanaustum 15,101 Reykja-
vik.
Allar nánari upplýsingar veitir Anna Siguróardóttir hjá Stjórnunarfélagi íslands i
síma (91) 62 10 66.
Stjórnunarféldg
íslands
Ánanaustum 15 ■ Simi: 6210 66