Morgunblaðið - 28.01.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
31
Tækniskóli Islands:
56 luku náms-
stigum á haustönn
Á HAUSTÖNN 1986 voru á
fimmta hundrað nemenda í skól-
anum. Ýmsum námsstigum luku
56 manns en þar af er helmingur
í áframhaldandi námi við skól-
ann á vorönn ’87.
Við brautskráningu 20. des. flutti
Steinar _ Steinsson skólanefndar-
maður TI hátíðarávarp og Þorsteinn
Björnsson mælti fyrir munn 10 ára
árgangs byggingatæknifræðinga,
sem færðu skólanum að gjöf mynd-
verk eftir Lisbet Sveinsdóttur. í
heilbrigðisdeild var 3. október ’86
minnst 20 ára kennslu í meina-
tækni við TÍ. Af því tilefni gáfu
Meinatæknafélag íslands og 10 og
15 ára árgangar meinatækna verð-
mætt kennslutæki og peninga til
tækjakaupa.
Um svipað leyti sýndi fyrirtækið
Kerfí hf. skólanum mikinn sóma
með því að leyfa endurgjaldsiaust
kennsluafnot af hugbúnaðarsafninu
Alvís, en það mun metið á nálægt
900 þús. kr. og er mikilvægt við
kennslu í rekstrardeild.
í maí 1987 er að vænta fyrstu
iðnrekstrarfræðinga af sérsviðun-
um framleiðslusviði og markaðs-
sviði.
í október 1988 er áætluð braut-
skráning fyrstu röntgentækna frá
TÍ.
Byggingatæknifræðingar, brautskráðir 20. desember sl., talið frá vinstri. Fremri röð: Birgir Guðmunds-
son, Jón Viðar Matthiasson, Eyjólfur Valgarðsson, Guðbrandur Steinþórsson deildarstjóri, Helgi S.
Gunnarsson, Kristinn Magnússon, Bjarni Arnason. Aftari röð: Árni G. fKristjánsson, Guðmundur K.
Marinósson, Þorsteinn Sigvaldason, Brynjar Jónsson, Hjalti Sigmundsson, Eiríkur Amarson, Ármann
Ó. Sigurðsson.
Fj árhagsáætlun Bolungarvíkur
lögð fram:
Tekjurnar hækka
um 23 prósent
Skuldir bæjarins fara lækkandi
Bolungarvík.
FJÁRHAGSÁÆTLUN Bolung-
arvíkurkaupstaðar var tekin til
fyrri umræðu í bæjarstjóm Bol-
ungarvíkur i síðustu viku.
Samkvæmt áætluninni er gert
ráð fyrir að tekjur bæjarfélags-
ins verði 64,3 miHjónir sem er
23% hækkun frá síðasta ári. Gert
er ráð fyrir að skuldir fari lækk-
andi eins og þær hafa gert
undanfarin ár.
Álagningarhlutfall útsvars verð-
ur 10,4% og áfram verður haldið
þeirri stefnu að útsvar gjaldenda
67 ára og eldri er lækkað um 25%
og íbúðareigendur 67 ára og eldri
eru undanþegnir fasteignagjöldum.
En fasteignagjöld á hvem íbúa hafa
verið lægst í Bolungarvík undanfar-
in ár ef einungis eru teknir kaup-
staðir landsins.
Helstu gjaldaliðir eru íþrótta- og
æskulýðsmál og fræðslumál en í
þessa liði fara um 40 milljónir
króna. Þá er gert ráð fyrir 10 millj-
ónum til framkvæmda við stækkun
grunnskólans sem hafíst var handa
við á síðasta ári. Þar af koma um
3 milljónir króna frá ríkissjóði. Hér
á að vera jöfn skipting milli bæjar
og ríkis en ekki fékkst meira fé á
fjárlögum ríkisins og til að halda
áætlun með bygginguna bætir bæj-
arsjóður við að þessu sinni.
Til gatnagerðar er áætlað að
veija 6,7 milljónum og þar með
gert ráð fyrir að ljúka við að leggja
slitlag á allar götur bæjarins, en á
næstu tveimur árum er hinsvegar
gert ráð fyrir að ljúka frágangi á
öllum götum bæjarins.
Við gerð þessarar fjárhagsáætl-
unar sat áheymarfulltrúi H-listans
alla þá fundi sem fóm í vinnu við
hana og er því fjárhagsáætlun lögð
fram með samþykki allra flokka.
Síðari umræða um fjárhagsáætlun-
ina verður 5. febrúar en næstkom-
andi fimmtudag verður opinn
fundur í ráðhússalnum þar sem íbú-
um gefst kostur á að ræða þessa
fjárhagsáætlun og koma með fyrir-
spumir.
Gunnar
Fræðsluráð Hafnarfjarðar:
Fulltrúi Alþýðu-
bandalags segir
sig úr ráðinu
RAGNAR Gislason, fulltrúi Al-
þýðubandalagsins í fræðsluráði
Hafnarfjarðar, hefur tilkynnt
Magnúsi Jóni Ámasyni, efsta
manni & lista flokksins i bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar, að hann
hafi sagt sig úr ráðinu. Um leið
tilgreindi hann ástæður sinar i
trúnaðarbréfi til Magnúsar og
setti honum það f sjálfsvald hve-
nær hann tilkynnti bæjarráði um
úrsögnina.
í bókun fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins á fundi bæjarráðs 8.
janúar síðastliðinn er gefíð í skyn
að afsögn Ragnars tengist því að
Ellert Borgar Þorvaldsson fræðslu-
stjóri Hafnarfjarðar fékk ekki
stuðning meirihluta bæjarstjómar í
starf skólastjóra Lækjarskóla í
Hafnarfírði, sem síðan leiddi til
uppsagnar hans úr starfí fræðslu-
stjóra, eins og áður hefur verið
rakið í Morgunblaðinu.
í samtali við Morgunblaðið
síðastliðinn sunnudag sagði Guð-
mundur Ámi Stefánsson bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar að það væri
rangt að Ragnar hefði sagt sig úr
fræðsluráði. Ragnar staðfesti það
hinsvegar við blaðið að hann hefði
sagt sig úr ráðinu, þótt það hefði
ef til vill ekki verið formlega til-
kynnt í bæjarráði enn. Ragnar sagði
að sú úrsögn tengdist vissulega að
nokkm leyti ofangreindu máli en
einnig hefði hann komist að raun
um að fræðsluráðið starfaði á öðr-
um gmndvelli en hann hafði haldið
þegar hann tók þar sæti síðastliðið
sumar og væri úrsögnin því einnig
tilkomin vegna þess.
ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA ...
SPÆNSKU!
VAKA{ ijel0afdl
Síóumúla 29, 108 Reykjavík, sími 688300
Meó útsendingum Sjónvarpsins á
spænskukennsluefninu HABLAMOS
ESPANOL gefst þeim fjölmörgu ís-
lendingum sem hafa ætlaö sér að
læra spænsku tækifæri til þess á ein-
faldan og þægilegan hátt.
Kennslubókin sem þiö þurfió er kom-
in út hjá Vöku-helgafelli og fæst í
bókaverslunum um allt land.
Þetta er nútimaleg kennslubók
sem hentar fólki á öllum aldri.
HABLAMOS ESPANOL hefur hvarvetna
hlotiö miklar vinsældir og er eitt kunn-
asta sjónvarpskennsluefni i spænsku
sem fram hefur komió. Tengja menn vin-
sældirnar því aö kennslan er snióin vió
hæfi feróamanna sem koma til Spánar
og annarra spænskumælandi landa.
LÆRIÐ SPÆNSKU Á EINEALDAN OG ÞÆGILEGAN HÁTT!
Orkin/sIa