Morgunblaðið - 28.01.1987, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
Ríkissjóður fékk
450 milljónir kr.
úr búrekstrinum
ÞAÐ ER mat fjármálaráðu-
neytisins, að tekjur ríkisins
af rekstrar- og fjárfestingar-
vörum I búrekstri nemi 450
milljónum króna á árinu
Kvenna-
listinn
með fyrir-
spurnir
Guðrún Agnarsdóttir,
þingmaður Samtaka um
kvennalista, hefur borið fram
eftirfarandi fyrirspurnir til
einstakra ráðherra:
1) Til utanríkisráðherra: Um
hvaða mál hafa Norðurlanda-
þjóðimar fimm verið ósammála
í atkvæðagreiðslum á þingi Sam-
einuðu þjóðanna á sl. 10 árum.
2) Til heilbrigðisráðherra:
Hvenær skipaði heilbrigðisráð-
herra nefnd til að endurskoða
og samræma löggjöf um smit-
sjúkdóma og sóttvarnir? Hvað
líður störfum nefndarinnar?
3) Til forsætisráðherra: Hvað
líður störfum framkvæmda-
nefndar ríkisstjómarinnar sem
forsætisráðherra skipaði 25. mai
1986 til þess að samhæfa að-
gerðir í baráttunni gegn út-
breiðslu og notkun ávana- og
fíkniefna? Hvenær hyggst
nefndin skila áfangaskýrslu eða
ljúka störfum?
4) Til forsætisráðherra: Gerir
framkvæmdanefnd ríkisstjóm-
arinnar um ávana- og fíkniefni
ráð fyrir áframhaldandi rekstri
hjálparstöðvar Rauða kross Is-
lands fyrir böm og unglinga við
Tjamargötu 35 í Reykjavík? Mun
ríkisstjómin tryggja nægilegt fé
til rekstrar stöðvarinnar á þessu
ári?
1985. Sú upphæð skiptist
þannig, að 80 milljónir króna
eru vegna aðflutningsgjalda,
280 milljónir vegna uppsafn-
aðs söluskatts og 90 milljónir
vegna fóðurgjalds.
Þessar upplýsingar komu
fram í svari Þorsteins Pálsson-
ar, fjármálaráðherra, við
fyrirspurn frá Áma Johnsen
(S.-Sl.) á Alþingi í gær.
Fj árm ál aráðherra upplýsti
jafnframt, að uppsafnaður sölu-
skattur af landbúnaðarvörum í
heild nam á árinu 1985 380
milljónum króna nettó. Skipting-
in er sú, að uppsafnaður sölu-
skattur vegna rekstrarkostnaðar
er 280 milljónir kr. og 100 millj-
ónir kr. vegna slátrunar, kjöt-
og mjólkurvinnslu.
Pyrirspyijandi sagði, að þess-
ar upplýsingar leiddu í ljós að
landbúnaðurinn hefði ekki að-
eins í för með sér útgjöld fyrir
ríkissjóð heldur gæfi hann af sér
tekjur. Þetta taldi hann sýna
mikilvægi atvinnugreinarinnar.
Á síðasta ári var 575 milljónum króna varið til aðstoðar húsbyggjendum og íbúðarkaupendum, sem
lent höfðu í greiðsluerfiðleikum.
Aðstoð við húsnæðiskaupendur í erfiðleikum:
Heildarfyrirgreiðsla 1400
milljónir króna 1983-1986
Skýrsla um ráðgjafastöð Húsnæðisstofnunar veff“a greíðsiuerfiðieíka hús-
byggenda og íbúðarkaup-
Félagsmálaráðherra hefur ráðgjafastöðvar Húsnæðis- enda. Samkvæmt skýrslunni
lagt fram skýrslu um störf stofnunar ríkisins og lán var heildarfyrirgreiðsla af
Nýbirta skýrslan frá
OECD er ógnvekjandi
- sagði Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
SIGRÍÐUR Dúna Kristmundsdóttir (Kl.-Rvk.) sagði á Alþingi í
gær, að nýbirt skýrsla OECD um íslensk menntamál væri „ógn-
vekjandi.“ Hvatti hún menntamálaráðherra til að kynna sér efni
hennar nákvæmlega og láta síðan hendur standa fram úr ermum
og taka á þeim á vanda, sem skýrslan vekur athygli á.
Það var Stefán Benediktsson menntamálaráðherra, sagði, að
(A.-Rvk.), sem spurðist fyrir um
það, hvernig menntamálaráðherra
ætlaði að kynna skýrsluna og
hvaða áform hann hefði uppi um
að bregðast við ábendingum höf-
unda. Benti hann á, að í skýrslunni
væri farið mjög hörðum orðum
um ýmsa þætti íslenskra mennta-
mála af sérfróðum mönnum.
Sverrir Hermannsson,
skýrslan hefði borist í lokahand-
riti í miðjum þessum mánuði og
hefði síðan verið unnið að því að
fjöldfalda hana og dreifa á ensku,
en jafnframt væri unnið að þýð-
ingu hennar á íslensku. I síðari
hluta skýrslunnar væri að finna
viðbrögð íslenskra stjórnvalda við
athugasemdum og aðfinnslum
höfunda og þar kæmi fram að
Umhverfismál í eitt ráðuneyti:
Skipulagsmál - friðun-
armál - mengunarmál
Tillaga átta framsóknarmanna
„Alþingi ályktar að yfirstjórn helztu þátta umhverfismála skuli
sameinuð innan eins ráðuneytis. Til umhverfismála teljist mengun-
armál, friðunarmál og skipulagsmál. Yfirstjórn þessa málaflokks
verði í höndum sérstakrar skrifstofu innan félagsmálaráðuneytis
sem eftir það nefnist umhverfis- og félagsmálaráðuneyti...“.
Þannig hefst tillaga til þings-
ályktunar um samræmda heildar-
stjóm umhverfísmála, sem Páll
Pétursson (F.-Nv.) og sjö aðrir
þingmenn Framsóknarflokks hafa
lagt fram í sameinuðu þingi.
Tillagan gerir ráð fyrir að „um-
hverfis- og félagsmálaráðuneyti"
taki við tveimur málaflokkum frá
öðrum ráðuneytum: 1) mengunar-
málum, það er lög um hollustu-
hætti og heilbrigðiseftirlit (að
hluta), lög um alþjóðasamninga
um mengun sjávar, lög um eitur-
efni og hættuleg efni og lög um
geislavarnir, 2) friðunarmálum,
þ.e. lög um náttúruvernd, lög um
veiðar og vemdun dýra, lög um
eyðingu meindýra og lög um land-
græðslu. „Obein stjóm umhverfis-
mála verði styrkt með því að koma
á föstu samráði umhverfis- og
félagsmálaráðuneytis og annarra
ráðuneyta er fara með málefni
sem snerta umhverfísmál.
I greinargerð kemur fram að
Geir Hallgrímsson, þá forsætis-
ráðherra, skipaði níu manna nefnd
í marzmánuði 1975 til að vinna
að heildarlöggjöf um stjóm um-
hverfísmála. Nefndin samdi
frumvarp til laga um umhverfís-
mál sem lagt var fyrir Alþingi
vorið 1978, en það hlaut ekki af-
greiðslu á því þingi. Það var
endurflutt 1980-81 og aftur
1983-84, lítið breytt.
Fyrr á þessu þingi lagði Gunnar
G. Schram og fleiri þingmenn
Sjálfstæðisflokks fram tillögu til
þingsályktunar um stefnumótun í
umhverfismálum.
I greinargerð segir ennfremur
að „tregðu gæti hjá einstökum
ráðuneytum og stofnunum varð-
andi endurskipulagningu" á
yfírstjórn umhverfismála. „For-
sætisráðherra hefur því gert
ítrekaðar tillögur innan ríkis-
stjórnar til þess að skera á hnútinn
en án árangurs, þar sem einstak-
ir ráðherrar' Sálfstæðisflokksins
hafí lagst eindregið gegn öllum
hugmyndum til breytinga í þessu
efni. Flutningsmenn sjái sig því
til þess knúna að leggja fram
þessa tillögu til þingsályktunar
þannig að leiða megi í ljós afstöðu
þingsins til þess, hvaða málafloka
telja beri til umhverfísmála...“.
unnið væri að lausn á þeim vanda-
málum, sem á væri bent. Ráðherra
lagði á það áherslu, að mennta-
málanefnd OECD hefði ekki ætlað
sér að segja íslendingum fyrir
verkum, heldur koma fram með
ábendingar um það sem betur
mætti fara. Hann upplýsti, að
höfundar skýrslunnar, sem eru
þrír, hefðu komið hingað til lands
s.l. vor og aðeins haft viðdvöl í
sex daga. Þá sagði hann, að
skýrslunni hefði þegar verið dreift
til alþingismanna.
Stefán Benediktsson (Afl,-
Rvk.) sagði, að skýrsla OECD
hefði upphaflega borist ráðuneyt-
inu í maí í fyrra og því nokkur
tími gefist til að gaumgæfa efni
hennar. Hann áréttaði að hér
væri ekki á ferð álit ókunnugra
gesta, heldur mat sérfróðra
manna á efni, sem þeir hefðu
mikla þekkingu á. Þingmaðurinn
lét í ljós áhyggjur af því, að svo
virtist sem ráðherra brygðist ekki
rétt við skýrslunni. Kvað hann það
vekja sér furðu, því ráðherrann
væri orðinn alþekktur sem mesti
kerfisbani á Islandi.
Gunnar G. Schram (S.-Rn.)
kvaðst fagna því, að OECD skýrsl-
an kæmi til umræðu á Alþingi og
sagði, að nauðsynlegt væri að þær
umræður yrðu mun ýtarlegri og
einskorðuðust ekki við fyrirspurn-
atímann. Þingmaðurinn sagði, að
í umfjöllun nefndarinnar, sem
samdi skýrsluna, um Háskóla Is-
lands væri bent á tvö alvarleg
umhugsunarefni. Annars vegar,
að 50% innritaðra nemenda hætta
námi eftir eitt ár og aðeins 25%
af þeim sem innritast útskrifast
frá skólanum. Hins vegar, að
rannsóknir við skólann væru á
lágu stigi og árangur og gæði
ekki eins og ástæða væri til að
ætlast til. I því sambandi hefðu
höfundar skýrslunnar vakið sér-
staka athygli á því, að um
helmingur allrar kennslu í skólan-
um er leystur af hendi af stunda-
kennurum.
þessu tagi 1400 milljónir
króna á tímabilinu 1983-1986
á núverandi verðlagi.
Á síðastliðnu ári (1986) var
575 m.kr. varið úr Byggingar-
sjóði ríkisins til aðstoðar hús-
byggendum og íbúðarkaupend-
um í greiðsluerfiðleikum. Árið
áður (1985) var 250 m.kr. varið
í þessum tilgangi. Frá því í febr-
úar 1985 hefur því um 825 m.kr.
verið varið úr Byggingarsjóði til
fólks í greiðsluerfiðíeikum vegna
húsnæðis. Árin 1983 og 1984
vóru veitt rúmlega 4200 við-
bótarlán, samtals að íjárhæði
550 m.kr. á núverandi verðlagi.
Heildarfyrirgreiðsla 1983-1986
nemur því um 1400 m.kr.
Jafnframt sérstökum lánum
úr Byggingarsjóði var lánum hjá
bönkum og sparisjóðum breytt
(lánatími Iengdur). Áætlað er að
um 100 m.kr. hafi þannig verið
skuldbreytt 1985 og svipuð upp-
hæð 1986.
AIMnGI
Skammstafanir í
stj órnmálaf r éttum
í stjórnmálafréttum
Morgunblaðsins eru
þessar skammstafanir
notaðar. Fyrir flokka:
A.: Alþýðuflokkur
Abl.: Alþýðubandalag
Bj.: Bandalagjafnaðarm.
F.: Framsóknarflokkur
Kl.: Kvennalisti
Kf.: Kvennaframboð
S.: Sjálfstæðisflokkur
Fyrir kjördæmi:
Rvk.: Reykjavík
VI.: Vesturland
Vf.: Vestfirðir
Nv.: Norðurland vestra
Ne.: Norðurland eystra
Al.: Austurland
Sl.: Suðurland
Rn.: Reykjanes