Morgunblaðið - 28.01.1987, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
33
Hús Leikfélags
Akureyrar 80 ára
HIÐ VIRÐULEGA og fallega hús, sem Leikfélag Akureyrar hefur
starfsemi sína í, við Hafnarstræti, er 80 ára um þessar mundir.
Húsið var vígt þann 20. janúar 1907, en það var byggt að forgöngu
templara. Fyrsta leiksýningin í liúsinu var „Ævintýri á gönguför"
eftir C. Hostrup. Þá kostaði miði
0,75 kr. og barnasæti 0,35 kr.
A blaðamannfundi sem Pétur
Einarsson leikhússtjóri boðaði til í
tilefni af afmælinu kynnti Haraldur
M. Sigurðsson brot úr sögu húss-
ins, en hann vinnur að ritun sögu
leikhúss á Akureyri og leikfélaga,
en Leikfélag Akureyrar á einnig
stórafmæli á þessu ári. Það var
stofnað 19. apríl árið 1917.
Hús leikfélagsins gekk fyrst und-
ir nafninu Good-templarahúsið,
síðar Samkomuhúsið, eða Leikfé-
lagshúsið. Á lóðinni, sem húsið
stendur á, Hafnarstræti 57, byggði
Góðtemplarareglan fyrst samkomu-
hús árið 1902. Það var einlyft með
lágu risi og inngngi á suðurhlið.
Mikið hrun
í Ólafs-
fjarðar-
múla um
helgina
Rennifæri um allt
í betri sæti 1 kr., í almenn sæti
Árið 1906 var templurum heimilað
að byggja nýtt hús á sömu lóð, og
var stærð hússins ákveðin 24x16
álnir með þverbyggingu við norð-
ur-enda 21x10 álnir og annarri við
suðurenda 16x10 álnir. Guðbjörn
Björnsson og Guðmundur Olafsson
smiðir keyptu gamla húsið og fluttu
það norður á Torfunef. Þeir tóku
einnig að sér að byggja nýja húsið
fyrir 21.500 krónur. Smíði hússins
gekk vel, var það vígt hinn 20. jan-
úar 1907 og hafði þá veríð rúmt
hálft ár í smíðum.
Síðar eða í desembermánuði árið
1916 keypti bæjarstjómin húsið
fyrir 28.000 krónur. Húsið var
áfram notað til leiksýninga og sam-
komuhalds, en nú voru auk þess
bæjarstjórnarfundir haldnir þar. í
kjallaranum var húsvarðaríbúð og
auk þess bókhlaða, póstafgreiðsla
og skrifstofur.
Hér að ofan eru smábrot úr 80
ára sögu þessa húss, sem er mið-
stöð leiklistarinnar í höfuðstað
Norðurlands. Pétur Einarsson sýndi
blaðamönnum húsið og innviði þess
í lok blaðamannafundarins nýverið.
Hann sagði að húsið væri að flestu
leyti óhentugt sem leikhús, en
vissulega hefði það þjónað lengi og
dyggilega.
Aðspurður í lokin, hvað gert yrði
fyrir eða við húsið á afmælisárinu
sagði hann að ráðgerður væri fund-
Morgunblaðið/Fríða Proppé
Pétur Einarsson leikhússtjóri fyrir framan hús Leikfélags
Akureyrar.
i ur með stjóm leikfélagsins og
bæjaryfirvöldum þar sem framtíð
hússins yrði rædd, en eins og Morg-
unblaðið hefur skýrt frá, liggja
frammi hugmyndir um breytingar
og lagfæringar á Samkomuhúsi
Akureyrar, sem Þorsteinn Gunnars-
son hefur teiknað.
Skólanefnd Akureyrar:
Kynnisfundir vegna
skiptíngar í skólahverfi
kjördæmid
VEGIR eru greiðfærir um allt
kjördæmið, samkvæmt upplýs-
ingum hjá Vegagerðinni. Mikið
hrun var í Ólafsfjarðarmúla um
síðustu helgi en lagaðist nokkuð
í gær.
Vegir em í góðu lagi hér í um-
dæminu og hefur ís svo til alls
staðar tekið upp, nema á einstaka
hliðarvegum. Mikið hmn var úr
Ólafsfjarðarmúla um helgina, eins
og ætíð í hlýindum og roki. Engin
óhöpp urðu, en samkvæmt upplýs-
ingum frá Vegagerðinni er full
ástæða fyrir vegfarendur að huga
að aðstæðum þarna þessa dagana.
Jón Erlendsson, sem bú-
settur er á Akureyri, hlaut
fyrstu verðlaun í smásagna-
samkeppni Ríkisútvarpsins á
Akureyri og Menningarsam-
taka Norðlendinga. Smá-
sögur Kristjáns G. Arngríms-
sonar og Guðmundar L.
Friðfinnssonar hlutu einnig
viðurkenningu.
Tuttugu smásögur bárust í
keppnina, en frestur til að senda
inn sögur rann út um áramótin.
Dómnefndin, skipuð Einari
Kristjánssyni rithöfundi, Jóni
Má Héðinssyni menntaskóla-
kennara og Hólmfríði Jónsdóttur
bókaverði, kvað upp úrskurð
sinn í gær, þriðjudag.
Verðlaunasaga Jóns Erlends-
sonar heitir „Nótt“ og verður
hún lesin í svæðisútvarpinu, í
þættinum Trönum, innan
skamms. Jón hlaut 15 þúsund
SKOLANEFND Akureyrar
hefur staðið að kynningu á
gögnum vegna vinnu við áætl-
anir um skiptingu í skóla-
hverfi í bænum. Þegar hafa
kr. í verðlaun. Hann hlaut einnig
viðurkenningu í ljóðasamkeppn-
inni sem sömu aðilar gengust
fyrir fyrr í vetur.
Tvær aðrar smásögur hlutu
viðurkenningu og verða lesnar í
gögn þessi verið kynnt fyrir
starfsfólki grunnskólanna og
sums staðar hafa fulltrúar
foreldraráða eða félaga fylgst
með. Nú hefur verið ákveðið
svæðisútvarpinu. Það eru sagan
„Urður“ eftir Kristján G. Arn-
grímsson og „Sívalningurinn"
eftir Guðmund L. Friðfinnsson,
en hann býr á Egilsá í Skaga-
firði.
að standa að tveimur kynning-
arfundum fyrir almenning.
Hugmyndin að fundunum er
tilkomin vegna þess að fram hafa
komið óskir um að bæjarbúum
almennt gefist kostur á að kynna
sér umrædd gögn og taka þátt í
umræðum um þessi mál. Því hafa
tveir fundir verið ákveðnir. Sá
fyrri er í kvöld, miðvikudagskvöld
28. janúar, í húsnæði KFUM og
K í Verslunarmiðstöðinni við
Sunnuhlíð og hefst kl. 20.30. Sá
síðari verður nk. mánudagskvöld,
2. febrúar kl. 20.30, í húsnæði
tæknisviðs Verkmenntaskólans
við Þórunnarstræti, sem er gamla
Iðnskólahúsið.
Helstu gögn, sem kynnt verða
á fundunum eru: Spá um mann-
fjölda og fjölda skólabama á
Akureyri tímabilið 1987 til 2004.
Valkostir um röð framkvæmda við
ný íbúðahverfí og áhrif þeirra á
dreifíngu skólabama. Yfirlit yfír
fjarlægðir frá núverandi gmnn-
skólum miðað við mismunandi
forsendur fyrir heimangöngu-
skóla. Kynning á mismunandi
valkostum um skipulags- og bygg-
ingarmál fyrir grannskólana á
Akureyri út frá ofannefndum for-
sendum.
í fréttatilkynningu frá skóla-
nefnd segir að að lokinni kynningu
sé gert ráð fyrir fyrirspurnum og
umræðum um þessi mál. Enn-
fremur hvetur nefndin alla sem
áhuga hafa til að nota tækifærið,
kynna sér stöðu mála og koma
sínum skoðunum á framfæri.
Akureyringar
heilsuhraustir
AKUREYRINGAR eru
heilsuhraustir um þessar
mundir og virðast hafa hrist
af sér víruspestir, sem tals-
vert var um eftir áramótin.
Hjálmar Freysteinsson
læknir á Heilsugæslustöðinni
sagði að heilsufar væri gott og
virtust bæjarbúar nú lausir
undan þeim víraspestum sem
gengu hér eftir áramótin. Að-
spurður kvaðst hann ekki hafa
orðið var við inflúensutilfelli.
Smásagnasamkeppni Ríkisútvarpsins
og Menningarsamtaka Norðlendinga:
Jón Erlendsson hlaut fyrstu
verðlaun fyrir smásöguna „Nótt“
Ráðherra leist
vel á Sverri
Menntamálaráðherra, Sverrir
Hermannsson, sagði eftir fund
sinn með Sverri Thorsteinsen,
skólastjóra á Stórutjörnum, í
gær, að honum hefði litist vel á
hann og gæti vel hugsað sér að
setja hann í embætti fræðslu-
stjóra til bráðabirgða. Sverrir
Thorsteinsen tók sér umhugsun-
arfrest til dagsins í dag.
Þeir nafnar ræddu á fundi sínum
titlögu fræðsluráðs Norðurlands
eystra þess efnis, að Sverrir Thor-
steinsen gegni tímabundið starfí
fræðslustjóra, eða þar til nýr
fræðslustjóri verður skipaður.
Sverrir Thorsteinsen tók sér frest
til dagsins í dag, eins og fyrr seg-
ir, til að gefa ákveðið svar.
Ráðherrann sagði ennfremur um
fundinn, þegar rætt var við hann í
gær: „Það fór vel á með okkur og
mínum mönnum hér í ráðuneytinu.
Mér líst vel á piltinn en hann tók
sér umhugusunarfrest til morguns.
Hann er með áríðandi kennslu í
sínum skóla, sem hann vill sinna.
Ég vil setja hann í starfíð tímabund-
ið, til dæmis í febrúar og marz, en
auðvitað heldur hann sínu skóla-
stjórastarfi á meðan að Stórutjörn-
um.“
Sverrir kemur norður á fímmtu-
dag, eins og skýrt var frá í gær,
og verður með opinn fund um
fræðslumál og fleira í Sjallanum á
fimmtudagkvöld og á Hótel
Húsavík á föstudagskvöld.
SJONVARP
AKUREYRI
DAGSKRÁ Sjónvarps Akur-
eyrar í kvöld, miðvikudag’s-
kvöld, er svohljóðandi:
Kl. 18.00 Teiknimynd. Mikki mús
og Andrés önd.
Kl. 18.25 Bjargvætturinn (Equ-
alizer). Róttækur óaldaflokkur
veldur ungum lækni og heilu íbúð-
arhverfi mikilli skelfingu með
hótunum um að loka heilsugæslu-
stöð nokkurri. Læknirinn leitar
hjálpar hjá Bjargvættinum.
Kl. 19.15 Los Angeles Jass. 2.
þáttur. Þættir þessir sem era fjórir
eru teknir upp í elsta jass-klúbbi í
Bandaríkjunum (Lighthouse Café,
Hermosa Beach California) og þar
koma fram hinir bestu í jass-tónlist-
inni í dag.
KI. 19.45 Leiktímabilið
($1.000.00 Infield). Bandarísk sjón-
■ varpsmynd með Rob Reiner, Bob
Constanzo, Christopher Guest og
Bruno Kirby í aðalhlutverkum.
Myndin fjallar um eitt leiktímabil
hornaboltaleikmanna, störf þeirra
og mislánsamt einkalíf.
Kl. 21.15 Hardeastle og
McCormic. Bandarískur mynda-
flokkur. Hardcastle (Brian Keith)
er fyrrverandi dómari. Þegar hann
lætur af störfum ákveður hann að
gæta MacCormick (Daniel Hugh
Kelly), sem var fundinn sekur en
hefur verið látinn laus og fengið
skilorðsbundinn dóm. I sameiningu
reyna þeir að fara ofan í ýmis lög-
reglumál, sem voru afgreidd með
sama hætti.
Kl. 22.05 í leit að Guði (God
Universe and The Hot Fudge
Sundays). Mynd þessi íjallar um
stúlkuna Algie og leit hennar að
sannleikanum um Guð og tilverana.
Algie er stúlka sem á móður í sér-
trúarsöfnuði og systur sem er í
hjólastól og er í sífellu að leita eft-
ir einhvetjum táknum til þess að
fullvissa sig um trúna á Guð.
Kl. 22.50 Hið yfirnáttúrulega
(The Keep) Bandarísk kvikmynd frá
1983. Myndin gerist í síðari heims-
styijöldinni. Hún íjallar um mið-
aldavirki í fjöllum Transylvaníu.
Innan veggja virkisins eru ævafom
öfl sem búa yfir ógnvekjandi krafti.
Kl. 00.20 Dagskrárlok.