Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 36
MORGUNBLABIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28; JANÚAR 1987
Hneyksli —
eftirÓskarD.
*
Olafsson
Kæri lesandi!
„Of seint er að byrgja brunninn
þegar bamið er dottið ofan í
hann.“
Þetta ber mönnum að hafa í
huga er þeir fíkra sig áfram í
lífsbaráttunni nú á þessum síðustu
og hröðustu tímum. Hraði, tækni-
framfarir og lífsgæðakapphlaupið
er nokkuð sem einkennir þann
heim sem við þekkjum. Þjóðfélag-
ið okkar er búið heilmiklum
kostum sem stjómvöld hveiju
sinni hampa af miklu kappi en
þá vilja lestir þjóðfélagsins oft
verða útundan.
Mætti þar helst kenna um aft-
urhaldssemi, stöðnun, þröngsýni
og heimsku sem svo aftur birtist
í viðhorfum manna eins og hjá
Oddi Ólafssyni aðstoðarritstjóra
Tímans. Hann lýsir því yfír af
miklum siðferðishug í greinardálk
sínum „Vítt og breitt" þann 21.
jan. ’87 að Nemendafélag ungl-
ingaskóla í Breiðholti hafí innleitt
nýjung í skemmtanalífíð, þ.e. að
gefa smokk með hverjum ballmiða
á böllin hjá sér. Einnig segir hann
orðrétt: „Vonandi er búið að
kenna krakkanum sem setti til-
kynninguna saman árangursríkari
tÚburði til að nota smokkinn sinn
en tekist hefur að troða í hann
um meðferð á móðurmálinu." Þar
á hann við fréttatilkynningu sem
Nemendafélag Fjölbrautaskólans
í Breiðholti sendi blöðum þar sem
prentvillupúkinn margfrægi skaut
tvisvar upp kollinum. Að öðru leyti
tel ég pistil Odds neikvæðan og
mjög svo ómálefnalegan að ótal-
inni Iítilsvirðingu og einskærum
ruddaskap sem nemendum fjöl-
brauta- og menntaskóla er sýndur
með þess konar málfari sem Odd-
ur setur á blað fyrir alþjóð. Einnig
má skýrt sjá það að hann er ekki
bam síns tíma þar sem tónar for-
dóma og stöðnunar berast frá
honum. Hann er nefnilega bara
einn af mörgum, sem rakka niður
málefnalega umræðu um hluti
sem þvi miður er alltof lítið rætt
um. Því má líkja við bam sem
alltaf er lokað inni í dimmum
kústaskáp þegar minnst er á „við-
kvæm“ málefni. Þar í myrkrinu
blómstrar vanþekking, feimni og
blekking sem svo smitar út frá
sér, smitar þjóðfélagið með
heimsku sinni, afturhaldssemi og
síðast en ekki síst úreltum og
gamaldags hugsunarhætti.
Kjarni málsins
Og þar erum við komin að
kjama málsins: Eru e.t.v. hin
ýmsu málefni rökkuð niður af
kústaskápsbömum sem ólust upp
í heimi vanþekkingar og leyndar-
dóma, leyndardóma sem snúast
um kynferðismál almennt, ofbeldi
á heimilum og hin ýmsu mál sem
almennt eru talin vera feimnismál
hin mestu. Ef afturhaldsseggir
þessa þjóðfélags hyggjast halda
fram sjónarmiðum sínum án þess
að skammast sín hið minnsta þá
gott og vel. En eitt vil ég benda
þeim á, það er að við lifum og
hrærumst á níunda áratug 20.
aldarinnar, þar sem nútíminn ræð-
ur ríkjum með öllu sínu ágæti og
agnúum. Að þjóðfélagið þarfnast
stöðugrar endurnýjunar og hlúa
þarf vel að æsku landsins og sann-
ast þá hið fornkveðna að upp-
fræðsla og menntun eykur innri
þroska og síðast en ekki síst að
það erum við, æska landsins, sem
erfum það með öllum sínum fél-
agslegum gæðum og göllum.
Þannig hlýtur það að vera skýlaus
krafa okkar, erfínpja landsins, að
við fáum að taka virkan þátt í því
að móta framtíð okkar og skapa
heilbrigt andrúmsloft þegar rætt
er um hin svokölluðu feimnismál.
Eða erum við ekki dómbærir þjóð-
félagsþegnar?
Því skora ég á alla að líta raun-
hæft á þessi mál og vera hrein-
skilnir og draga allt „óhreint“ út
úr hinum illræmda dimma kústa-
skáp.
Að lokum
En til hvers? Já til hvers öll
þessi læti um smámál eins og
eða eyðni?
Óskar D. Ólafsson
heilbrigðisstofnunin og yfír höfuð
öll heilbrigðisstéttin mælt með
notkun smokksins.
Hvað varðar siðferðilegu hlið-
ina þá er alls ekki verið að
hvetja til lauslætis eins og fjöl-
miðlamenn hafa verið að benda
á, heldur er verið að taka á miklu
feimnismáli, sem er einna við-
kvæmast hjá þeim hópi sem talinn
er vera í mestri hættu að mati
landlæknis (þ.e. 15— 24 ára).
Þegar þessi aldurshópur hefur
opinberlega lagt örlítið innlegg í
umræðumar um hin svoköiluðu
„viðkvæm" málefni, hvað á sér
stað? Jú, það liggur við að allt
ætli að keyra um þverbak aftur.
Nemendafélag Fjölbrautaskólans
í Breiðholti gefíir smokk með
hveijum ballmiða og er þar með
stimplað sem óþverra lauslætis-
pakk af hinum þröngsýnu aftur-
haldsseggjum, sem sjá ekkert
annað í aðgerðum þessum.
Minna lauslæti og breytt hugar-
far er besta vömin. En er þetta
vöm sem dugar í þessu tilviki.
Ekki til stutts tíma litið.
Einhvers staðar verður að byija
og þá verður að vera til staðar
umræðugrundvöllur. Þar sem
hægt er að tala og tjá sig án for-
dóma og neikvæðra stimpla.
Umræðan um smokkinn hefur
vakið upp umræðu sem kannski á
eftir að þróa opnari og skemmti-
legri umræðugrundvöll, þar sem
hægt er að talast við af alvöm
en ekki fyndni og feimni.
Á íslandi býr fámennt og forvit-
ið samfélag sem ekki þorir og
þegir of oft.
En þorir þú, lesandi góður?
Höfundur er nemandi við Fjöl-
brautaskólann íBreiðholti.
„Því skora ég á alla
að líta raunhæft á
þessi mál og vera
hreinskilnir og
draga allt „óhreint“
út úr hinum ill-
ræmda dimma
kústaskáp.“
eyðni? Eða er þetta smámál og
eitthvað sem hægt er að breiða
yfír og gleyma? Nei, það hlýtur
hver heilbrigður maður að gera
sér grein fyrir að eyðnina verður
að stöðva, hvemig sem farið verð-
ur að.
Að undangengnum rannsókn-
um hefur verið komist að því að
smokkurinn gefi 95% vöm gegn
eyðni og þess vegna hlýtur það
að vera sjálfgefið að hann verði
innleiddur til þess að hefta út-
breiðslu eyðni. Annað er að aukin
notkun smokks hefur undantekn-
ingalaust leitt til ört fækkandi
kynsjúkdómatilfella. Að minnsta
kosti hefur landlæknisembættið,
borgarlæknisembættið og alþjóða
Blaðburóarfólk
óskast!
AUSTURBÆR KÓPAVOGUR
Þingholtsstræti o.fl. Hávegur
Laugavegur frá 32-80 og T raðir
Hverfisgata frá 4-62 o.fl.
VESTURBÆR
Aragata o.fl.
Einarsnes
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Dyrasímaþjónusta
Gestur rafvirkjam. — S. 19637.
□ Helgafell 59871287IV/V -.2
I.O.O.F. 9 = 1681288’/? =
□ Glitnir 59871287 = 1.
Kvenfélag
Langholtskirkju
boðar aðalfund þriðjudaginn 3.
feb. kl. 20.30 í safnaðarheimilinu.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosinn gjaldkeri.
Kosið um 1 sæti i varastjórn.
Önnur mál.
Slegið á létta strengi.
Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Hörgshlíð 12
Samkoma í kvöld, miðvikudags-
kvöld, kl. 20.00.
Málstofa
Málstofa í kvöld kl. 20.30 að
Amtmannsstig 2b. Umræðuefnið
verður: Boðun fagnaðarerindis-
ins í dag. Framsögu flytur sr.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir og
siðan verða umræður.
Allt áhugafólk er velkomið.
Góóandoginn!
raöauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar |
ísafjörður
Sjálfstæðisfélag ísafjarðar heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 5.
febrúar 1987 kl. 20.30 i húsnæði félagsins Hafnarstræti 12.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á landsfund.
Stjórnin.
Féjag sjálfstæðismanna
f Árbæjar- og Seláshverfi
og Grafarvogi
heldur almennan félagsfund i félagsheimil-
inu að Hraunbæ 102b, fimmtudaginn 29.
janúar kl. 20.30.
Efni fundarins:
1. Kjör fulltrúa á landsfund.
2. Gestur fundarins er Sólveig Péturs-
dóttir lögfræðingur.
3. Önnur mál.
Félagar hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Þorrablót — þorrablót
Sjálfstæðisfélögin í Árnessýslu og á Sel-
fossi halda sameiginlegt þorrablót sitt i
Inghóli, Selfossi, föstudaginn 6. feb. kl.
20.00. Heiðursgestur: Þórunn Gestsdóttir
formaður Landssambands sjálfstæðis-
kvenna. Þingmennirnir Þorsteinn Pálsson,
Eggert Haukdal og Árni Johnsen verða á
staðnum.
Skemmtiatriði og dans.
Húsið opnaö kl. 19.00.
Þátttaka tilkynnist fyrir miðvikudaginn 4.
febrúartil Öldu s: 4212, Margrétars: 1530,
Ágústu s: 1376 og Njáls s: 2488.
Sjálfstæðisfélögin.