Morgunblaðið - 28.01.1987, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
39
Stiörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur. Mig
langar til að spyija þig hvem-
ig fara saman kona fædd 25.
maí 1968 kl. 4.45 og maður
fæddur 11. desember 1967
kl. 12 á hádegi. Hvaða merki
er hann með í Venusi? Ein
sem bíður eftir svari. Með
fyrirfram þakklæti."
Svar:
Þú hefur Sól, Mars, Merkúr
og Rísandi merki í Tvíbura,
Tungl og Venus í Nauti og
Steingeit á Miðhimni.
Fjölhœf
Margar plánetur í Tvíbura
táknar að þú ert fjölhæf og
þarft fjölbreytileika í líf þitt.
Þú ert eirðarlaus og átt erfítt
með að sitja kyrr, þarft
hreyfingu og fólk í kringum
þig-
Tungumála-
hœfileikar
Merkúr Rísandi táknar að þú
hefur tungumálahæfíleika og
hæfíleika á sviðum sem hafa
með margs konar miðlun að
gera, t.d. upplýsingamiðlun,
fjölmiðlun, verslun, móttöku
o.þ.h.
Öryggi
Tungl og Venus í Nauti tákn-
ar að þú ert tilfínningalega
jarðbundin og líkamlega
næm. Þú ert töluverður
nautnamaður og kannt að
meta þægindi og gæði lífsins.
Nautið er stöðugt merki og
þvf þráir þú heldur öiyggi í
ást og vináttu og sömuleiðis
í daglegum lífí. Það mundi
t.d. henta þér vel að eiga
fallegt heimili en þar sem þú
ert einnig Tvíburi er ekki
æskilegt að þú sért of bundin
á heimilinu.
Málamiðlun
Það að þú ert samsett úr
Tvíbura og Nauti táknar að
þú þarft að gera málamiðlun.
Þú þarft fjölbreytileika og
frelsi en vilt samt öryggi.
Best væri ef þú gæti haft
öryggi á tilfínningasviðinu en
flölbreytileika í starfi. Það
getur þó tekið þig tíma að
finna jafnvægi og þangað til
getur togstreita og einhver
órói einkennt ltf þitt.
Hann
Hann hefur Sól, Merkúr og
Miðhiminn í Bogmanni,
Tungl í Hrút, Mars í Vatns-
bera og Steingeit Risandi.
Venus er í Sporðdreka, beint
á móti Tungli þínu. Það gefur
til kynna aðlöðun.
Frjálslyndur
Bogmenn og Tvíburar laðast
oft hvor að öðrum, enda er
margt líkt með merkjunum.
Bæði vilja frelsi og þurfa
hreyfíngu og fjölbreytileika.
Þið eigið því að mörgu leyti
ágætlega saman. Á hinn bóg-
inn getur frelsis- og Qöl-
breytileikaþörf ykkar beggja
sett strik í reikninginn. Þið
eigið bæði erfítt með að binda
ykkur og sérstaklega meðan
þið eruð þetta ung.
Yfirsýn
Bogmaðurinn þarf að hafa
ákveðna yfírsýn yfír lífíð,
þarf að vikka sjóndeildar-
hring sinn. Hann þarf því að
ferðast, sjá sig um og kynn-
ast lífínu. Ef þú vilt að
samband ykkar á milli gangi
þarft þú að varast að leggja
á hann hömlur eða láta hann
fá þá tilfínningu að þú hindr-
ir hann.
ÁbyrgÖ
Öllum samböndum fylgir
ákveðin ábyrgð. Steingeit
Rísandi táknar að hann getur
tekið á sig ábyrgð, ef hann
jafnframt hefur svigrúm og
frelsi. Venus í Sporðdreka
táknar að hann vill sterkt og
djúpt samband eða ekkert
samband.
GARPUR
/WISKVNM, SKELFlLEGASTA GEIMFARlÐ í
FLOTA HAKPTAXLS, SK.'ýsT A SKAUr/
GRETTIR
:::::::::::::::::::::::::::::::::::
::::::::::::::::::::::::::::::::......................................
:::::::::::::::::::::::::::
FERDINAND
SMÁFÓLK
SEE, THI5 TELLS YOU
HOL) MUCH RAIN EACH
PLACE GETS IN A YEAR..
ALABAMA.66 INCHES... M0UNT WAIALEALE,0N
ARIZONA, 5EVENINCHE5... HAUJAll, ISTHE RAlNIEST..
MINNE50TA, 25 INCHES... IT GET5 460 INCHES ®
OF RAIN A YEAR... |
/ cO l ‘C* S
3-17 II l
Sjáðu, héraa sér maður
hvað úrkoman er á hveij-
um stað er mikil á hverju
árí...
Fagurhólsmýri 160 milli-
metrar, Hveravellir 19 ...,
Galtarviti 112 ...
Grímsstaðir 106 og í
Kvígindisdal er langmesta
úrkoman, 350 millimetrar
á ári...
Hver átti hugmyndina að
þessu?
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er ekki algengt að vömin
fái fímm slagi á tromp, hvað þá
ef trompin eru fímm hundar! Það
kom þó fyrir á báðum borðum
í leik Ester Jakobsdóttur og Jóns
Hjaltasonar á Reykjavíkurmót-
inu í sveitakeppni sl. sunnudag.
Suður gefur; enginn á hættu.
Vestur Norður ♦ 1087 ¥9764 ♦ D63 ♦ D82 Austur
♦ 965 ♦ G2
♦ DG1053 II ¥Á
♦ G9872 ♦ ÁK105
♦ - ♦ 1097654
Suður
♦ ÁKD43
VK82
♦ 4
♦ ÁKG3
í lokaða salnum spiluðu Jón
Hjaltason og Hörður Ámþórsson
tvo spaða á spil NS gegn Krist-
jönu Steingrímsdóttur og Höllu
Bergþórsdóttur. Kristjönu og
Höllu brást ekki bogalistin í
vöminni. Útspilið var hjarta-
drottning, sem austur drap á ás
og spilaði laufí. Vömin víxl-
trompaði nú lauf og hjarta þar
til trompin voru upp urin og
tígulásinn varð sjöundi slagur
vamarinnar. Tveir niður og 100
í dálk AV.
Vömin gekk eins fyrir sig í
opna salnum, en sagnir voru
mun líflegri. Þar sátu Ester Jak-
obsdóttir og Valgerður Krist-
jónsdóttir í NS gegn Símoni
Stmonarsyni og Guðmundi Páli
Amarsyni. Eftir að Ester opnaði
í suður á sterku laufí fór Símon
af stað í vestur, eins og hann
ætti allan heiminn:
Vestur Norður Austur Suður
S.S. V.K. G.P.A. EJ.
— — — 1 lauf
1 hjarta Pass 2 lauf 2 spaðar
3 tiglar Pass 4 tíglar 4 spaðar
Pass Pass Dobl Pass
Pass Pass
Ester er vorkunn að reyna við
fjóra spaða og í eðlilegri legu
hefði hún sloppið frá ákvörðun
sinni án teljanlegs skaða. En í
þetta sinn kostaði það 700.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Skákþingi Reylqavíkur
1987, sem háð er um þessar
mundir, kom þetta endatafl upp
í skák þeirra Sölva Jónssonar
og Einars T. Óskarssonar, sem
hafði svart og átti leik. Hvítur
hafði rétt lokið við að leika af
sér, 44. h2 — h3? og svartur
fann laglega vinningsleið. Með
44. Ke3 hefði hvítur að öllum
líkindum haldið jafntefli.
Vinningsleiðin byggir á þv! (
hve flarri hvíti kóngurinn og j
riddarínn em frá peðunum á *
kóngsvæng: 44. — g4!, 45. Rc4
(45. hxg4 er svarað með 45. — *
Bxf3!, 46. gxf3 — h3 og svartur
nær að vekja upp drottningu) —
Bxf3!, 46. hxg4 — Bxg2, 47. |
Ke3 — Bd4 og hvítur gafst upp.