Morgunblaðið - 28.01.1987, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
41
Heilagra manna sögur
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Two Lives of Saint Cutbert. A
Life by an Anonymous Monk of
Lindisfame and Bede’s Prose Life.
Texts, Translation and Notes by
Bertram Colgrave. Cambridge Uni-
versity Press 1985.
The Life of Bishop Wilfrid by
Eddius Stephanus. Text, Tran-
slation and Notes by Bertram
Colgrave. Cambridge University
Press 1985.
hvem tíma á tímabilinu 711—721.
Höfundurinn var samtíðarmaður
biskupsins, sem telst til merkustu
leiðtoga engilsaxnesku kirkjunnar
á sínum tíma. lýst er átökunum
innan kirkjunnar og baráttu
Wilfrids við andstæðinga sína og
kristniboðs hans meðal heiðingja.
Wilfrid hlaut menntun sína í Lindis-
fame-klaustri og átti mikinn þátt í
niðurstöðu kirkjuþingsins í Whitby,
varðandi tímasetningu páskanna.
Leiðir hans lágu vítt um hinn
kristna heim, Frísland, Frakkland
og Ítalíu, þar sem hann sótti páfa
heim vegna deilna sinna við kirlq'u-
leiðtoga og konunga meðal engil-
saxa.
Wilfrid stofnaði nokkur klaustur
og var kunnur fyrir kirkjubygging-
ar og söfnun listaverka, hann var
kirkjuhöfðingi og átti mikinn þátt
í „gullöld Norðimralands".
Formálinn að ævi Wilfrids er svo
til frá orði til orðs uppskrift af form-
álanum að ævi Cuthberts, eftir
ókunnan höfund. Wilfrid lést 709.
Messa hans er 12. október.
I þessum ævum greinir frá
margvíslegum furðum og krafta-
verkum eins og tíðkast í heilagra-
manna sögum. Atburðimir vom
þeirra tíðar mönnum algjörar stað-
reyndir og hljóta að verða metnir
samkvæmt forsendum þeirra tíma
og allra tíma „Sub specie aetemitat-
is“.
Engilsaxneskar bókmenntir eru
ásamt latneskum miðaldambók-
menntum lykillinn að bókagerð hér
á landi, bókfell, rita og stafróf voru
tökuorð úr engilsaxnesku á tólftu
öld, fomenska; bocofell, writan og
stæfræw. Ahrif ensku kirkjunnar
bámst til íslands um Noreg á 11.
öld og í einu elsta handriti íslensku,
sem er talið vera frá því um 1150,
„Kirkjudagsmál“ eða „Im dedictati-
one templii" em lýsingar og fyrir-
mæli miðuð við timburkirkjur, en
ekki steinkirkjur, en lengst af vom
kirkjur engilsaxa timburkirlgur.
Auk beinna tilvísana í engilsaxnesk
fræði í íslenskum fombókmenntum
hefur G. Turville-Petre bent á
tengsl þessara fræða og mennt í
bók sinni „Origins of Icelandic Lit-
erature“.
„Gullöld Norðimralands" stóð frá
fyrri hluta 7. aldar fram undir miðja
8. öld. Þetta var tími Beda hins
fróða og á þeim tíma var Lífssaga
Sankti Cuthberts skráð af ókunnum
höfundi, en Beda studdist mjög við
hana í sinni samantekt um þann
helga mann. Meðal fleiri rita, sem
sett vom saman á latínu á þessum
tíma var: Ævi Wilfrids biskups, sem
síðar var helgaður, eftir Eddius
Stephanus. Elsta legendan um
Gregoríus páfa er frá þessum tíma.
Af listaverkum í bókagerð má
nefna Lindisfame-guðspjöllin, sem
nú em varðveitt í British Museum,
og telja má ömggt að fleiri slft
verk hafi verið unnin, lengi vel von
varðveitt.tvö guðspjöll í dómkirkj-
unni í York, allt fram á 16. öld.
Af listaverkum í stein er Acca-
krossinn, sem nú er varðveittur í
Hexham. Kista eða skrín heilags
Cuthberts er í svipuðum stíl, varð-
veitt í Durham. Kenningar hafa
komið fram um það, að Bjólfskviða
sé uppmnnin á þessari menningar-
legu gullöld engilsaxneskrar
menningar (R.W. Chambers: Beow-
ulf___2. útg. Cambridge 1932.)
Þessar þijár heilagramannasög-
ur em allar skráðar eftir kirkjuþing-
ið í Whitby 664 (663), en þar varð
lagður gmndvöllurinn að framtíðar
kirkju- og klaustraskipan meðal
engilsaxa. Keltnesk kirkju- og
klausturhefð varð að þoka fyrir
þeirri rómversku og hl. Cuthbert
og Wilfrid biskup vom fulltrúar
keltneskrar og rómverskrar kirkju-
skipunar. Lífssaga hl. Cutberts er
talin hafa verið skrifuð ekki fyrr
en 699 og ekki síðar en 705. Helg-
ur dómur hl. Cuthberts var hafínn
úr jörðu 698, svo sagan hefur ekki
verið skráð fyrr, í textanum er get-
ið um konung Norðimralands, „sem
nú ríkir í friðsemd", þ.e. Aldfriths,
sem lést 705. Gerð Beda styðst
mjög við ævi hl. Cuthberts eftir
þann ókunna höfund, hann bætir
þó miklu efni við og breytir ýmsum
frásögnum frá fyrri gerðinni. Beda
ritar ævi hl. Cuthberts um 721, í
bók hans „De temporum ratione",
sem hann ritaði 725, segist hann
hafa ritað ævi Cuthberts „fyrir
nokkmm árum“ og svo helgar hann
ævina Eadfrith biskupi, sem lést
721.
Formálinn að fyrri gerðinni er í
hinum hefðbundna stíl formála fyr-
ir heilagramanna ævir, sem rekja
má til ævi hl. Antoníusar eftir Ath-
anasíus, sem þýdd var af Evagrius
úr grísku á latínu á síðari hluta 4.
aldar. Ævi Antoníusar og ævi hl.
Martins eftir Sulpicius Sevems frá
svipuðum tíma, ásamt ævi hl. Páls
frá Þebu, sem Hieronymus setti
saman eftir grískri frumgerð.
Ævi Wilfrids biskups eftir Eddius
Stephanus er merkasta ævisaga
enskra ármiðalda. Ævin er rituð
af aðdáanda hins sæla biskups ein-
* gcngisskr. 14.1.87
BÍLABORG HF
SMIÐSHÖFÐA 23, SlMI 68-12-99
LANCIA THEMA:
ÍBURÐUR,
PÆGINDI
0G TÆKNHEG
FULLKOMNUN
Við hjá Lancia viðurkennum fúslega að við höfum gaman
af því að vera fyrstir. Fyrir 25 árum síðan smíðuðum við
fyrsta ítalska bílinn með framdrifi. Það var líka okkar hug-
mynd að smíða bíl með sjálfstæðri fjöðrun á öllum hjólum
og sjálfberandi yfirbyggingu. Og enn erum við í fararbroddi.
Nú er það fólksbíll sem skipar sér á bekk með þeim bestu í
Evrópu og sameinar kraft og aksturseiginleika sportbílsins og
íburð og þægindi luxusbílsins. Þetta er LANCIA THEMA.
Að innan er THEMA íburðarmikill og geysilega rúmgóður og
undir húddinu leynist 165 hestafla TURBO vél með millikæli og
ýmsum tæknilegum eiginleikum, sem hingað til hafa eingöngu verið
notaðir í vélar kappakstursbíla. Þessi vél skilar THEMA TURBO úr
kyrrstöðu upp í 100 km hraða á aðeins 7.2 sekúndum og hámarkshraðinn
er 218 km/klst! Vélin er næsta hljóðlaus og titringsdeyfar eyða öllum titringi,
þannig að þú finnur raunverulega aldrei fyrir þessum ógnarkrafti. Hröðunin
og mýktin er slík, að líkast er að setið sé í þotu í flugtaki! Ef þetta er ekki nóg
fyrir þig, þá er hægt að fá THEMA með 32 ventla FERRARI V8 vél og þá er
hröðunin í 100 km hraða aðeins 6.8 sekúndur!
LANCIA THEMA TURBO kostar nú aðeins 895 þúsund krónur* með álfelgum og ríku-
legum búnaði. Aðrar gerðir af LANCIA THEMA kosta frá 760 þúsund krónum*.
Ef þú telur að þú eigir aðeins það besta skilið, hafðu þá samband við okkur og fáðu að reynsluaka
LANCIA THEMA TURBO, ÞAÐ ER LÍFSREYNSLA ÚT AF FYRIR SIG!
LANCIA THEMA ER FLUTTUR INN AF BÍLABORG H.F. ÞAÐ TRYGGIR ÖRUGGA
ENDURSÖLU OG 1. FLOKKS ÞJÓNUSTU, SEM ER RÓMUÐ AF ÖLLUM SEM TIL ÞEKKJA!
LANCIA THEMA FÆST í 5 MISMUNANDI GERÐUM:
THEMA TURBO - 2000 cc, 165 hö, 0-100 km/klst = 7.2 sek.
THEMA i.e - 2000 cc, 120 hö, 0-100 km/klst = 9.7 sek.
THEMA 6V - 2850 cc, 150 hö, 0-100 km/klst = 8.2 sek.
THEMA TURBO DIESEL - 2500 cc, 100 hö, 0-100 km/klst = 11.9 sek.
THEMA 8.32 - 2927 ccc, 218 hö, 0-100 km/klst = 6.8 sek.
LANCIATHEMA^