Morgunblaðið - 28.01.1987, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1987
Er gott ao veroa
í neðsta sæti?
Eystrasaltskeppmn:
Morgunblaðið/SUS
O íslenska landsliðið fagnar hér áhorfendum eftir jafnteflið gegn Sovétríkjunum. Eins og sjá má hafa
áhorfendur risið úr sætum til að fagna leikmönnum íslands.
-- ÞAÐ kann ef til vill einhverjum
að þykja það furðuleg staðhæfing
þegar sagt er að íslenska lands-
liðið i handknattleik hafi staðið
sig frábærlega vel á Eystrasalts-
mótinu sem lauk á sunnudaginn.
Liðið hafnaði þar í sjötta og
neðsta sæti og þá er ekki nema
von að einhver efist um hversu
frábær árangurinn hafi verið.
Hvernig fer það saman að ná frá-
bærum árangri og verða um leið
í neðsta sæti?
íslenska liðið lék mjög vel í
þessu móti ef leikurinn gegn Vést-
ur-Þjóðverjum er undanskilin. Mót
þetta er eitt það sterkasta sem
íslenska landsliðið hefur tekið þátt
í en þar léku auk okkar lið Vestur-
Þjóðverja, Austur-Þjóðverja, Pól-
lands, Sovétríkjanna og Svía. Þrjár
A-þjóðir og þrjár B-þjóðir.
Fyrsti leikur íslands var gegn
heimamönnum, Austur-Þjóðverj-
um, og var það opnunarleikur
mótsins. Þeirri viðureign lauk með
jafntefli, 17:17, og verður það að
skoðast sem mjög góður árangur.
Austur-Þjóðverjar hafa um árabil
verið með eitt sterkasta hand-
knattleikslandslið í heiminum og
það hefur ekkert breyst. Leikurinn
var spennandi og jafn mestan
tímann en þýskir náðu fjögurra
marka forystu fyrir leikhlé.
Með geysilegri baráttu og góð-
um varnarleik tókst okkar mönnum
að komast 17:16 yfir en Þjóðverjar
jöfnuðu síðan þremur sekúndum
fyrir leikslok. Fæstir höfðu búist
við að ísland næði jafntefli gegn
bronsliðinu frá HM í Sviss en sú
varð engu að síöur rauninn.
Rassskelling
Það virðist sem íslenska liðið
verði að leika einn slakan leik í
hverju móti og sá leikur var að
þessu sinni gegn Vestur-Þjóðverj-
um en honum lauk með 25:16 sigri
' Þjóðverjanna.
Það gekk ekkert upp í þessum
leik og alla leikgieði vantaði í liðið.
Leikgleðin er það sem íslenska
landsliðið hefur verið hvað þekkt-
ast fyrir og sagði Sovéski lands-
liðsþjálfarinn til dæmis eftir
stórsigur Sovétmanna yfir Austur-
Þjóverjum í síðasta leik mótsins
að Sovétmenn hefðu lært mikið
af íslendingum daginn áður er
þeir gerðu jafntefli við þá. Sovét-
menn höfðu gaman af því sem
þeir voru að gera í síðasta leiknum
og það lærðu þeiraf íslendingum.
Pólverjar voru næstir á dagskrá
og í gífurlega spennandi leik tókst
okkur að vinna 29:28 í Wismar þar
sem áhorfendur kunnu svo sann-
arlega að meta leikgleði íslenska
liðsins. Strákarnir léku mikinn og
hraðan sóknarleik að þessu sinni
og kunnu áhorfendur vel að meta
leikkerfi liðsins og skothörku leik-
manna.
Sigur fyrir Sovéskan
handknattleik
„Þetta jafntefli má skoða sem
sigur fyrir Sovéskan handknatt-
leik,“ sagði þjálfari Sovétmanna
eftir að ísland og Sovétríkin höfðu
gert jafntefli 23:23. Hann hafði orð
á því að ísland væri án efa ein af
bestu handknattleiksþjóðum i
heimi og sá timi væri löngu liðinn
að einhverjir gætu verið vissir um
stig í leik gegn þeim.
Já, þessi orð Jewtuschenko,
þjálfara Sovétríkjanna, lýsa ef til
vill betur en margt annað hversu
virtir íslenskir handknattleiksmenn
eru um þessar mundir.
Tiedemann, þjálari Austur-Þjóð-
varja, sagði eftir leik okkar við þá
að ísland væri meðal bestu hand-
knattleiksþjóöa heims og því væri
það engin skömm að tapa, eða
gera jafntefli, við þá. Þessir tveir
heimsþekktu og virtu þjálfarar hafa
greinilega mikið álit á íslenskum
handknattleik.
Síðasti leikur mótisns var gegn
Svíum og þeim leik töpuðum við
21:23. Það hefði líklega verið hæg-
ur vandi að leika upp á jafntefli í
þessum leik en strákarnir höfðu
ekki áhuga á því. Sigur eða ekk-
ert! Með sigri hefðum við orðið í
þriðja sæti en færst upp í það
fjórða með jafntefli. Undir lok leiks-
ins reyndu menn skot til þess að
freista þess að jafna en það tókst
ekki og Svíar skoruðu síðasta
markið þannig að þeir unnu með
tveggja marka mun.
Neðsta sætið
engin skömm
Þó svo íslenska liðið hafi hafnað
í neðsta sæti í þessari keppni þá
var árangurinn góður. Sigur gegn
Pólverjum og jafntefli við Sovét-
menn og Austur-Þjóðverja er
árangur sem allar handknattleiks-
þjóðir geta verið ánægðar með.
Tapið gegn Svíum er skiljanlegt
þegar haft er í huga að hverju
strákarnir stefnu. Hið stóra tap
gegn Vestur-Þjóðverjum er hins
vegar verra að skýra og raunar
ekki hægt. Liðið lék illa og átti aldr-
ei möguleika á að vinna þann leik.
Tapið var ef til vill helst til stórt
miðað við gang leiksins.
Við skulum skoða hvernig ein-
stakir leikmenn liðsins stóðu sig í
þessari keppni.
Einar Þorvarðarson
Einar lék fyrstu þrjá leikina og
stóð sig mjög vel í tveimur þeirra.
Hann varði sértaklega vel í leiknum
gegn Pólverjum og einnig í fyrsta
leiknum gegn Austur-Þjóðvarjum.
í leiknum gegn Vestur-Þjóðverjum
náði hann sér hinsvegar ekki á
strik frekar en aðrir leikmenn liðs-
ins. Vörnin var þá slök og það
helst oft í hendur að ef vörnin er
slök er markvörðurinn slakur.
Brynjar Kvaran
Brynjar stóð í markinu síðustu
tvo leikina og stóð sig vel. Hann
var að vísu dálítið lengi í gang í
fyrri leiknum, gegn Sovétmönnum,
en varði síðan á mjög mikilvægum
augnablikum. í leiknum gegn
Svíum varði hann alveg ágætlega
og sérstaklega frá Björn Jilsen sem
er þeirra besta manður.
Guðmundur Hrafnkelsson
Guðmundur lék ekki mikið með
í þessari ferð. Hann kom inná gegn
Sovétmönnum í byrjun og náði
ekki að verja frekar en Brynjar.
Síðar í leiknum varði hann þó víta-
kast og hann stóð einnig í markinu
í tvígang er Sovétmenn misnotuðu
vítaköst.
Kristján Arason
Kristján lék vel í öllum leikjunum
nema gegn Vestur-Þjóðverjum og
reyndar á það við alla leikmenn
íslenska liðsins. Hann skoraði 28
mörk og varð í þriðja sæti í keppn-
inni um markahæstu menn. Kristj-
án leikur lykilhlutverk í liðinu og
skilar því oftast vel. Hann var
nokkrum sinnum settur inn á miðj-
una sem leikstjórnandi í þessari
keppni og það kæmi mér ekki á
óvart þó það yrði reynt talsvert í
komandi leikjum.
Þorgils Óttar Mathiesen
Þorgils Óttar er skemmtilegur línu-
maður og hann virðist einnig
tilvalinn fyrirliði. Hann náði sér
verlulega vel á strik í þremur leikj-
um af fimm en datt niður þess á
milli. Hann skoraði 16 mörk í þess-
ari keppni og þeir voru ekki margir
línumennirnirsem skoruðu meira.
Alfreð Gíslason
Alfreð lék best allra í íslenska
liðinu að þessu sinni. Hann skor-
aði 12 mörk í fjórum leikjum og lék
einnig einstaklega vel í vörninni.
Hann er líkamlega mjög sterkur
og nýtir sér það vel. Þau voru ófá
fríköstin sem hann fékk dæmd á
móterjana með því að láta þá riðj-
ast á sig og einnig gekk honum
vel að finna línumenn okkar í leikj-
unum. Mikill styrkur að fá hann
nú með af fullum krafti enda hefur
hann sýnt það með Essen að hann
er einn okkar besti handknattleik-
maður.
Sigurður Gunnarsson
Sigurður lék þrjá leiki eins og
félagi hans Einar Þorvarðarson.
Hann stóð fyllilega fyrir sínu í þess-
um leikjum, skoraði 11 mörk og
átti nokkra línusendingar sem gáfu
mörk. Sigðurður leikur ekki í vörn-
inni en í sókninni sér hann um að
stjórna leikkerfunum. í leiknum
gegn Vestur-Þjóðverjum gengu
kerfin illa upp og hefði því að
ósekju mátt reyna eitthvað nýtt.
Slíkt kemur með meiri samæfingu
leikmanna og allir muna hve
Ijómadi vel Sigurður lék á Olympíu-
leikunum.
Sigurður Sveinsson
Sigurður lék með í fjórum leikj-
um af fimm og stóð sig vel. Hann
hefur ekkert æft með liðinu og var
því ekki mikið með að þessu sinni
en það er greinilegt að hann verð-
ur ekki lengi að komast inn í
leikkerfin hjá þeim og með skyttur
sem hann og Kristján hægra meg-
in erum við ekki á flæðiskeri stödd.
Sigurður skoraði 7 mörk í keppn-
inni og það er gott að hafa hann
til að taka stöðu Krisstjáns þegar
-eða réttara sagt- ef hann verður
settur á miðjuna.
Bjarni Guðmundsson
Bjarni lék alla leiki liðsins og
flesta þeirra lék hann alla, var að-
eins skipt útaf í stuttan tíma ef
leikurinn gegn Svíum er undanskil-
in. Hann hefur oft leikið betur fyrir
ísland en hann gerði í þessari ferð.
Hraðaupphlaup hafa verið einn
helsti aðall hans lengi en nú brá
svo við að hann skoraði ekki úr
mörgum slíkum, nema í tveimur
leikjanna. Hinsvegar ógnar hann
alltaf talsvert og er snöggur að
skella sér inn úr horninu ef færi
gefst á. Bjarni skoraði 9 mörk.
Guðmundur Guðmundsson
Hinn aðalhornamaður okkar átti
einnig dálítið köflótta leiki að
þessu sinni. Hann gerði 6 mörk í
fjórum leikjum sem hann var með
í en hann skoraði aðeins í tveimur
þeirra. Mér fanst Guðmudnur ekki
nærri eins ógnandi í þessum leikj-
um og hann hefur verið með
landsliðinu, sérstaklega í HM í
Sviss, þar sem hann lék mjög vel.
Páli Ólafsson
Páll var með í öllum leikjum liðs-
ins og stóð sig vel í öllum nema
gegn Svíum. Þar átti hann afleitan
dag en allir vita að Páll getur gert
geysi skemmtilega hluti og því
enginn ástæða að örvænta. Mér
virtist Páll þó ekki vera í eins góðu
líkamlegu formi og oft áður, en
baráttuna vantar aldrei hjá honum.
Hann skoraði sex mörk í keppn-
inni.
Júlíus Jónasson
Júlíus fékk að reyna sig í síðasta
leiknum gegn Svíum og hann greip
það tækifæri fegins hendi og stóð
sig vel, sérstaklega í fyrri hálfleik,
og skoraði 4 mörk. Hann er mikið
efni og verður ábyggilega búinn
að bæta sig mjög mikið áður en
næsta mikilvæga mót, Olympíu-
leikarnir í Seoul, verður.
Karl Þráinsson
Karl lék ekki mikið með í þess-
ari keppni. Hann lék vel í þann
stutta tíma sem hann fékk tæki-
færi gegn Svíum og skoraði þá tvö
mörk úr jafnmörgum tilraunum úr
horninu. Það á við um hann, svo
og alla yngir leikmenn liðsins, sem
lítið fá að reyna sig að svona ferð-
ir eru mjög mikilvægar fyrir þá.
Þeir sjá og kynnast hinum heims-
frægu leikmönnum stórþjóðanna
og skjálfa þá ekki á beinunum þeg-
ar þeir standa auglitis til auglits
við þá á leikvelli einhvern tíma í
framtíðinni.
Geir Sveinsson
Geir Sveinsson lék mjög vel í
þessu móti og er hann nú án efa
einn okkar besti varnarmaður.
Hann lék lítið í sókninni og skoraði
aðeins eitt mark, en í vörninni var
hann frábær. Það var reglulega
gaman að sjá hann og Alfreð hlið
við hlið og virtist sem þeir hefðu
leikið saman frá upphafi en hið
rétta er að þeir hafa aldrei leikið
saman í landsliðinu áður.
Jakob Sigurðsson
Hann lék ekki mikið með að
þessu sinni. Hann er annar maður
í vinstra hornið, fyrir Guðmund
Guðmundsson, og lék hann eina
leikinn sem Guðmundr lék ekki,
gegn Sovétmönnum, og stóð sig
ágætlega. Hann hefði þó mátt
reyna meira sjálfur á stundum er
hann hikaði við að fara inn úr horn-
inu. Jakob á framtíðina fyrir sér í
vinstra horninu, það er ekki nokkur
vafi.
Héðinn Gilsson
Héðinn var eini leikmaðurinn
sem aðeins kom einu sinni inná í
ferðinni. Það var í leiknum gegn
Sovétríkjunum sem hann var sett-
ur í varnarveggin eftir að leiktíman-
um var lokið. Héðinn fékk boltann
í sig og kom þar með í veg fyrir
að Sovétmenn næðu skoti að
marki. Héðinn er gríðarlega mikið
efni í stórskyttu og margir áttu von
á að hann fengi að spreyta sig í
nokkar mínútur í þessari ferð.
- sus