Morgunblaðið - 15.02.1987, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987
KEYPTI
YARÐSKIPIÐ
ALBERT
VAR HUNDELTUR
AF STRANDGÆZLUNNI
Bill Bolling frá Winnetka í Illinoisríki
í Bandaríkjunum hefur undanfarin
20 ár stundað þá iðju að kaupa gaml-
ar lystisnekkjur, gera þær upp og
selja síðan. Það var haustið 1985 sein
hann rakst á Albert þar sem skipið
lá illa farið á New River ánni í Fort
Lauderdale í Florida. Þar hafði Al-
bert legið og ryðgað niður í þrjú ár.
En Bolling og fjölskylda hans, eigin-
konan Patsy og sonurinn Billy, urðu
strax hrifin af skipinu, og það varð
úr að þau keyptu Albert og hófu strax
að breyta skipinu í lystisnekkju, sem
átti að verða framtíðarheimili þeirra.
En þau vissu ekki þá að skipið var á
svörtum lista hjá bandarísku strand-
gæzlunni, U. S. Coast Guard, ogþau
óraði ekki fyrir þeim erfiðleikum sem
þetta átti eftir að valda þeim.
inur Bolling-
fjölskyldunnar,
Roger Vaugh-
an, hefur skráð
sögu Alberts og
Bolling fjöl-
skyldunnar frá
því skipið lagði
fyrst úr höfn í júní í fyrra og þar
til þeir feðgar, Billy og Bill Bolling,
voru handteknir 7. október sl. sak-
aðir um að hafa beitt ofbeldi gegn
sjóliðum úr strandgæzlunni.
Vaughan var um skeið ritstjóri
tímaritsins The Yacht og kynntist
þá Bill Bolling sem starfaði sem
fréttaritari blaðsins. Fer hér á eftir
útdráttur úr frásögn Vaughans sem
birtist í The Washington Post
Magazine.
Bill Bolling er 58 ára. Að loknu
háskólanámi var honum ljóst að
hann langaði lítið til að setjast strax
í helgan stein, svo hann sneri sér
að sjónum og var um tíma í sigling-
um til að skoða sig um í heiminum.
Eftir það var hann í fimm ár í
Hollywood þar sem hann starfaði
sem “stunt man“, þ.e. hann tók að
sér að vera staðgengill leikara í
glæfralegum atriðum. Um tíma var
hann flugþjónn hjá Pan Am, hann
var í eitt ár starfsmaður leyniþjón-
ustunnar CLA, og loks sölumaður
hjá auglýsingafyrirtæki föður slns.
En árið 1965 urðu þáttaskil í lífi
hans þegar hann keypti fyrsta bát-
inn til að gera upp og selja. Og
næstu tuttugu árin keypti hann ell-
efu báta til viðbótar sem hann svo
seldi eftir að hafa gert þá upp.
Allt voru þetta litlar lystisnekkjur,
en svo kom Albert, þrettánda og
stærsta snekkjan.
Patsy Bolling er 43 ára, ættuð
frá Nova Scotia í Kanada þar sem
faðir hennar var skipstjóri á flutn-
ingaskipum. Patsy ólst að miklu
leyti upp á sjónum, og hefur meðal
annars fullkomin skipstjómarrétt-
indi. Um tíma stundaði hún sjóskí-
ðakennslu í Nassau á Bahamaeyj-
um, en þaðan er móðir hennar
ættuð, og var í áhöfn Teds Tumer,
sem er þekktur siglingagarpur. Nú
stundar hún kappakstur með góð-
um árangri hjá Vintage Car Racing
Circuit, og ekur þar bíl af gerðinni
Austin Mini. Hún og Bill giftust
árið 1973, og var brúðkaupið hald-
ið á sama stað á Barbados og
brúðkaup foreldra hennar árið
1936.
Viðgerðinni á Albert lauk í júní
í fyrra, og var ákveðið að vígja
skipið með siglingu til New York
og halda þar upp á þjóðhátíðardag-
inn fjórða júli. Var 30 gestum boðið
til helgardvalar um borð í New
York, þeirra á meðal Roger Vaug-
han.
Þegar Albert kom til Oxford I
Marylandríki til að sækja boðsgesti
var bersýnilegt að áhöfnin var eitt-
Billy Bolling fluttur
handjárnaður frá borði.