Morgunblaðið - 15.02.1987, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987
KEYTTI
VARÐSKIPIÐ
ALBERT
hefði komið á keðjuna. Bað hann
þá vélstjórann að ræsa vélina til
að halda skipinu frá, en fór svo upp
til að hjálpa syni sínum sem var
að skafa fugladrit af reykháfnum.
Segist Bolling hafa tekið hagla-
byssu sem þar var geymd og notuð
til að skjóta púðurskotum til að
fæla burtu fugla. Hann var svo á
leiðinni niður frá brúnni þegar skip
strandgæzlunnar birtist og honum
var tilkynnt að þeir ætluðu að senda
menn um borð í Albert.
Bolling veifaði þeim að koma nær
svo hann gæti afhent þeim afrit af
bréfinu til Yost aðmíráís. Einn yfir-
manna strandgæzlunnar sagði síðar
að hann hefði talið “óöruggt" að
koma nær eftir að hann sá vopnin
sem Bolling bar. En um þetta leyti
kom Patsy á skipsbátnum frá landi
þar sem hún hafði verið að kaupa
kort af ánni, svo hún tók afritið af
bréfinu og reri með það yfir að
skipi strandgæzlunnar. Bolling seg-
ist einnig hafa tilkynnt strandgæzl-
unni að hann legði af stað upp ána
eftir tvo tíma.
Strandgæzlan hafði samband við
EPIC, og þegar þar var staðfest
að Albert væri á svarta listanum
var hafínn undirbúningur að því að
senda menn um borð í skipið. Boll-
ing segir að tveir tímar hafí liðið
frá því strandgæzlan hafði fyrst
samband við hann þar til þeir köll-
uðu hann upp á ný. Var Bolling þá
að leggja af stað. Hann hafði svo
til lokið við að hífa upp akkerið,
og segist viss um að hefði hann
látið það út á ný hefði það ekki
gripið. Hann segir að þegar mikið
var að gera í brúnni hafí hann allt-
af skrúfað niður í talstöðinni svo
hún truflaði ekki. Þama hafí hann
verið önnum kafínn við að hlusta
eftir upplýsingum frá Billy, sem
stóð frammi í stefni, og við að gefa
vélstjóranum fyrirmæli um gang-
hraða.
Nú byijaði ballið. Bolling segist
hafa lagt til að strandgæzlan sendi
sveit sína um borð í Albert meðan
skipið lónaði upp eftir ánni en því
boði var ekki tekið. Síðar kom í Ijós
að strandgæzlan þekkti ekkert til
siglingarhæfíii Alberts og óttaðist
að skipið gæti komizt undan hrað-
bátnum, sem var í það minnsta
tvöfalt hraðskreiðari.
Nú komu fleiri hraðbátar gæzl-
unnar á vettvang og sigldu á eftir
Albert svo Bolling varð um og ó.
Hann kallaði upp Stan Sneath í
Philadelphia sem er sérfræðingur í
siglingalögum. Sneath var við
símann næstu þijá tímana að tala
bæði við Bolling og gæzluna, og
tókst honum loks að ná samkomu-
lagi um að Albert yrði siglt til
Wilmington.
Þegar Bolling Iagði Albert upp
að bryggju f Wilmington biðu þar
á hafnarbakkanum fulltrúar frá
strandgæzlunni, leyniþjónustu
gæzlunnar, eiturlyflaeftirliti ríkis-
ins, áfengis-, tóbaks- og vopnaeftir-
litinu, lögreglu staðarins og
alríkislögreglunni, sýslumaður og
Kieran Shanahan fulltrúi dóms-
málaráðuneytisins sem sagði síðar.
“Við töldum þetta hættuástand -
vopnað skip á leið að þéttbýlis-
svæði." Það voru því engar smá
viðtökur sem biðu Bolling fjölskyl-
dunnar.
Þegar sjóliðar gæzlunnar komu
um borð varð Billy það á að stjaka
við einum þeirra svo hann var flutt-
ur frá borði í handjámum. Faðir
hans var einnig handtekinn fyrir
að sýna foringjum gæzlunnar mót-
þróa. Voru þeir báðir fangelsaðir í
fjóra daga og gefín út ákæra á
hendur þeim fyrir mótþróa, and-
spymu og truflun á störfum
gæzlunnar með meim. Þegar mál
þeirra verður tekið fyrir eiga þeir
yfír höfðum sér hámarksdóma upp
á þriggja ára fangelsi, 5.000 dollara
sekt og 250.000 dollara skaðabæt-
ur. Feðgamir em þó ekki af baki
dottnir og ætla sér að vinna málið.
En Albert er kominn á sölulista og
fæst keyptur fyrir 495.000 dollara.
Norræni lýðháskólinn
Kungelv
Gamlir nemendur og velunnarar skólans. Þið sem
ætlið að taka þátt í 40 ára afmæli skólans sem
verður haldið í Kungelv þann 26. júní 1987 og
námsferðalaginu strax á eftir tilkynnið þátttöku
fyrir 25. febrúar til:
Elev Förbundt För Nordiska Folkhögskolen
Kungelv, Boks 1001, S 44225 Kungelv, Sverige.
Nudd
HEILSUNNAR VEGNA
Afslöppunamudd, vöðvanudd, íþróttanudd.
SlGURBORG G UÐMUNDSDÓTT1R,
Certified Massage THerapist. Upplýsingar í síma 77102.
á laugardögum
Aukin þjónusta
Bílavarahlutaverslun Heklu hf. verður framvegis opin á
laugardögum frá kl. 1000-1300, auk venjulegs opnunartíma
virka daga frá kl. 830-1800.
Sértiæfð þjónústa
í varahlutaverslun okkar eru sérhæfðir afgreiðslumenn ávallt
reiðubúnir til aðstoðar, hvort sem þig vantar varahluti, auka-
hluti eða upplýsingar varðandi viðhald bílsins. Til að tryggja
gæðin verslum við eingöngu með viðurkenndar vörur með árs
ábyrgð gagnvart göllum.
Ódýrari þjónusta
Nú bjóðum við viðskiptavinum okkar úti á landi, að fá alla
algengustu bílavarahlutina, án flutningskostnaðar hvert á
land sem er. Beinn sími sölumanna í varahlutaverslun er:
(91) 695650. Verið velkomin.
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Slmi 69 55 OO
. /itVI C>\ A\ v)
\