Morgunblaðið - 15.02.1987, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.02.1987, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. FEBRÚAR 1987 AÐ HUGSA UM SJÁLFAN SIG Morgunblaðið/Þorkell Á tröppum Höfða. Fremstir standa Albert Guðmundsson, iðnaðarráðherra, Biwott og Davíð Oddsson, borgarstjóri. Fyrir aftan þá standa fylgdarmenn Biwotts og Ined Þorsteinsson, aðalræðismaður íslands í Kenýa. K.N. Biwott, iðnaðar og orkumálaráðherra Kenya: Hef áhuga á aukinni sam- vinnu íslands og Kenýa GÓÐ BYRJUN á deginum hefur ótrúlega mikið að segja fyrir vellíðan og sjálfstraust. Þess vegna fannst mér eftirfarandi hugmynd, sem ég rakst á í erlendu blaði, áhugaverð. Hún gengur út á að byggja upp sjálfstraustið strax á morgnana, um leið og farið er á fætur, svo þú getir gengið hress og örugg til daglegra starfa. Hugmyndin er þessi: Stattu fyrir framan spegil. Teygðu þig og beygðu. Hoppaðu, hristu þig og dansaðu um leið og þú gefur frá þér allskonar hróp og köll. Segðu svo við sjálfa þig: Ég er mikilsverð. Það er allt í lagi með mig. Mér líkar vel við sjálfa mig. Ég hef eitthvað til að miðla öðrum. Ég er hress og tilbúin til að takast á við daginn. Ef til vill fínnst ykkur þetta hálfundarlegar æfíngar í byijun, en þið komizt fljótt að því að þær eru ótrúlega góðar fyrir sjálfstraus- tið. Reynið að minnsta kosti! ANDLITSBAÐ Gamalt og gott ráð til að „opna“ og hreinsa húðina: Hellið sjóð- andi vatni í skál og haldið andlitinu yfir gufunni, helzt með handklæði yfír höfðinu, sbr mynd. Verið í „gufubaðinu" í 5-10 mínútur. Þurrk- ið þá andlitið varlega og smurjið góðu hreinsikremi á húðina. Fjarlægið síðan hreinsikremið og stijúkið yfír húðina með bómull vættri í mildu (alkóhóllausu) andlitsvatni. Iðnaðarráðherra Kenýa, K.N.K. Biwott, kom til landsins síðastliðinn föstudag, ásamt eiginkonu sinni og dóttur, ráðu- neytisstjóra fjármálaráðuneytis Kenýa og forstjóra rafveitu landsins. K.N.K. Biwott kvaðst í samtali við Morgunblaðið vera kominn til íslands að skoða stofnanir og fyrir- tæki á sviði orkumála og til að læra af íslendingum í þeim efnum. „Ég hef ekki komið til íslands áður og ég verð að segja að þessi stuttu kynni mín af landi og þjóð eru mjög góð. Hér virðist mjög gott skipulag á öllum hlutum. Ég hef meðal annars heimsótt Lands- virkjun, Hitaveitu Reykjavíkur og Orkustofnun og Jarðboranir og er ánægður með það sem ég hef séð,“ sagði ráðherrann. “Utan dagskrár, heimsóttum við sundlaugina í Laugardal og ég verð að segja að fyrir mér var það alveg sérstakt. Við höfum ekki sundlaug- ar af þessu tagi í Kenýa en ég hef mikinn áhuga á að bæta úr því; eftir að hafa séð ykkar laug. I Kenýa eru alveg sérlega góð skil- yrði til að byggja sundlaugar vegna þess að við ráðum yfír miklum jarð- varma, eins og þið.“ -Nú hafa íslensk fyrirtæki unnið við orkuframkvæmdir í Kenýa um áratugarskeið. Hver er reynsla ykk- ar af þeim? „Við metum reynslu þessara íslensku fyrirtækja mjög mikils, en vinna þeirra hefur aðallega verið á sviði vísindarannsókna, áætlana- gerðar og ráðgjafar. Hinsvegar finnst mér nú tími til kominn að íslendingar taki þátt í meira kre- fjandi verkefnum á þessu sviði hjá okkur, til dæmis í borunum og öðr- um verkþáttum. Einnig er hugsanlegt að við fáum íslendinga til að byggja upp sund- laugar fyrir okkur og koma á stofn gróðurhúsum. Ég mundi gjaman vilja auka samvinnu landanna eins mikið og mögulegt er á þessum sviðum." -Nú leikur okkur Islendingum forvitni á félagslegum aðstæðum í landi þínu. Hvar standið þið til dæmis í jafnréttismálum og skóla- málum? „í Kenýa ríkir algert jafnrétti kynjanna. Fólk fær sömu laun fyrir sömu vinnu og bæði kynin eiga jafn- mikla möguleika á menntun og vinnu. Það er svo sjálfsagt mál hjá okkur að ekki þarf einu sinni að ræða það. Skólakerfíð hjá okkur er þannig að við skyldum fólk ekki í skóla. Böm byija á leikskóla 3 ára, fara síðan í forskóla og þaðan í bamaskóla. En þótt ekki sé skóla- skylda, fara allir í bamaskóla, læra að lesa og skrifa, því upp að gagn- fræðaskóla er námið fólkinu að kostnaðarlausu. Allir sem ná prófí upp úr bama- skóla, eða um 50% af nemendunum, fara síðan í gagnfræðaskóla. Þetta er að vísu mjög lágt hlutfall og við vildum gjaman að fleiri héldu áfram námi. Vel upplýst fólk gæti orðið til að auðvelda okkur að takast á við önnur vandamál, eins og fólks- fjölgun. Við emm með hæsta bameignahlutfall í heiminum og þótt við höfum vel skipulagða starf- semi á sviði ijölskyldu—áætlunar, getur verið mjög erfitt að koma upplýsingum til fólks. Það getur líka verið mjög erfítt að koma fólki í skilning um gildi takmarkana á bameignum. Fátækt fólk, sem hættir skólanámi eftir bamaskóla, fer út í bameignir mjög ungt, þann- ig að við teljum að aukin fræðsla og lengri skólaseta geti hjálpað okkur á þessu sviði." -Hvemig eyðir fólk þitt frítíma sínum? Hvaða tómstundastörf em vinsælust? „Allavega íþróttir, til dæmis fót- bolti og hokký. Við eram líka mikið söng— og dansfólk. Við eigum mik- ið af góðu söngfólki og marga geysilega fallega kóra. Þetta er hjá 'okkur eins og annars staðar, fólk hefur svo margvísleg áhugamál. Hinsvegar er eitt öðravísi hjá okkur en annars staðar. EiturlyQa- vandamál era svo til óþekkt meðal landsmanna. Öll þessi efni sem fólk er að láta í sig hafa alltaf verið til hjá okkur. Við ölumst upp með þessu og höfum ekki áhuga. Þau eiturlyljavandamál sem fyrir hendi era, era meðal útlendinga. Önnur vandamál, til dæmis siðferðislegs eðlis era hinsvegar eins hjá okkur og öðram þjóðum." HREYFING HELDUR MAGANUM í LAGI Margir eiga í vandræðum með of miklar magasýrar, annaðhvort vegna mataræðis (tormelt fæði) eða streitu í daglegu starfí. Þetta getur valdið verkjum, sviða og ónotum í maga. Bezta vömin gegn þessu er auðvitað að slappa af og borða meira af grænmeti og trefjaríkri fæðu. Einnig er áríðandi að hreyfa sig nógu mikið, svo sem að fá sér röskan göngutúr eða létt skokk, taka sundsprett, eða bara hreinlega að fara með bömunum út á leikvöll í smáleik! Biwottfjölskyldan með forseta íslands. Myndin var tekin á föstudagskvöld í kvöldverðarboði iðnaðarráð- herra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.