Morgunblaðið - 04.03.1987, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987
19
viskufanga í Búlgaríu. í Búlgaríu
hefur jQöldi hinna tyrkneskumæl-
andi íbúa landsins verið fangelsaðir
vegna andstöðu sinnar gegn
mannanafnalögum þeim sem bjóða
tyrkneskumælandi minnihlutanum
að taka sér búlgörsk nöfn. Tyrk-
neskumælandi menn í Búlgaríu,
u.þ.b. 10% landsmanna, hafa um
aldaraðir verið þar búsettir og
myndað þar ákveðinn minnihluta
sem haldið hefur menningarlegum
sérkennum, s.s. tyrkneskri tungu
og þar með tymeskum nöfnum.
Að lokum verða almennar um-
ræði'r.
Veður í febrúar:
Hlýrra en
Febrúarmánuður var, í heildina,
hlýr, einkum suðvestanlands að
sögn Veðurstofunnar. Þó gerði
töluvert kuldakast um miðjan
mánuðinn. Kaldast var fyrir
norðan og mældist allt að 15.8
stig á Akureyri. Á suðvestur-
horninu var kaldast 6,3 stig.
Annað kuldakast var upp úr 20.
febrúar.
Meðalhiti í Reykjavík var 1,6 stig
og er það rösklega 1 stigi hlýrra en
í meðalári
í meðalári. Meðalhiti á Akureyri var
-1,1 stig, en það er tæplega hálfu
stigi hærra en í meðalári þar.
Urkoma mældist 84 mm í
Reykjavík. Er það 18% meira en í
meðalári. Hinsvegar voru sólskins-
stundir í Reykjavík ekki nema 39
V* og vantar þar 18 lh stund upp
á að þær séu eins og í meðalári. í
útreikningum á meðalári er miðað
við meðaltöl frá árinu 1951 til 1980.
Félagsfundur íslandsdeild-
ar Amnesty International
Mannréttindasamtökin Am-
nesty International efna til
félagsfundar fimmtudaginn 5.
Nýtt búvöruverð
hefur tekið gildi:
Mjólkurlítr-
inn hækkar
í 41,20 kr.
mars nk. kl. 20 í Odda, húsnæði
Háskóla íslands, stofu 202 eða
203.
Á fundinum verður gerð grein
fyrir herferð þeirri sem nýlega er
hafin á vegum Amnesty Intematio-
nal gegn dauðarefsingum og þá
sérstaklega dauðarefsingum í
Bandaríkjum. Sýnd verður heimild-
arkvikmynd því samfara.
Einnig verður fjallað um sam-
VERÐ á mjólk og nautgripakjöti
hækkaði um 4,4—5% á mánudag,
samkvæmt ákvörðun verðlags-
nefnda búvara. Kindakjöt
hækkaði um 5,9%. Verðið gildir
í 2 vikur í samræmi við sam-
komulag bænda og ríkisstjórnar-
innar.
Mjólkurlítrinn kostar nú 41,20
kr., og hækkaði um 1,90 kr., eða
um 4,8%. Einn lítri af tjóma hækk-
aði úr 243,40 í 254,10 kr., eða um
4,4%. Undanrennan hækkaði úr
26.30 í 27,60 kr. (4,9%), kíló af
skyri úr 68,80 í 72 (4,65%), smjör-
ið úr 242,80 í 254,90 kr. (5%) og
ostur úr 373,90 í 390,30 kr. (4,4%).
Verð á kindakjöti hækkaði um
5,8—5,9%. Kíló af dilkakjöti í 1.
verðflokki, í heilum skrokkum, skipt
að ósk kaupenda, hækkaði úr
244.30 í 258,60 kr., eða um 5,9%.
Nautgripakjöt í heilum og hálfum
skrokkum í 2. verðflokki (UNI)
hækkaði úr 255,80 í 267,10 kr., eða
um 4,4%. í öllum tilgreindum dæm-
um er um að ræða hámarkssmá-
söluverð sem fimmmannanefnd
ákveður.
ÍnéhM^
_ puiLCO eruhannaðir
sem tyigif Þv'®GEBÐAReJÓNUSTft. • •
j.SlMI'P"27500 . „„„.
Stöð2:
Vill samvinnu
við útlendinga
í kvikmynda-
og sjónvarps-
myndagerð
„VIÐ erum þessa dagana að
leita leiða, sem gera okkur
kleift að flytja út sjónvarpsefni
og jafnvel kvikmyndir,“ sagði
Jón Ottar Ragnarsson, sjón-
varpsstjóri Stöðvar 2, í samtali
við Morgunblaðið.
„Til þess að geta staðið í þessu
þurfum við að semja við alla lista-
hópa í landinu. Viðræður eru
hafnar við leikara og síðan verður
rætt við leikstjóra, tónlistarmenn,
myndlistarfólk og fleiri slíka hópa.
Ætlunin er að þrautkanna þessar
útflutningsleiðir því við stefnum
að alþjóðlegri dagskrárgerð um
leið og hún verður þjóðleg. Við
erum sérstaklega opnir fyrir sam-
vinnu við útlendinga í kvikmynda-
gerð,“ sagði Jón Ottar.
Hann sagðist halda til útlanda
strax að loknum kosningum til
að kanna þessar leiðir. „Eg ætla
þá til Norðurlandanna, Bretlands,
Bandaríkjanna og Þýskalands, til
að koma viðræðunum í gang, og
mun ég heimsækja bæði sjón-
varpsstöðvar og kvikmyndaver."
Fróðleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
jltogitttftlafttft