Morgunblaðið - 04.03.1987, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987
IBM-SKÁKMÓTIÐ
Kortsnoj lék af sér
273 þúsund krónum!
AFLEIKUR Viktors Kortsnoj í tímahraki gegn Jóni L. Amasyni í
síðustu umferð IBM-skákmótsins kostaði hann annað sætið í mótinu
og 273.000 krónur. í stað þess að vinna skákina við Jón tapaði hann
og endaði í 4.-5. sæti. Nigel Short tryggði sér hinsvegar efsta sætið
á mótinu áður en klukkutími var liðinn af síðustu umferðinni þegar
hann gerði jafntefli við Simen Agdestein í 15 leikjum, og Mikhail
Tal og Jan Timman skiptu á milli
að gera jafntefli.
Fyrstu skákum umferðarinnar
lauk fljótlega, því Agdestein og
Short og Polugaevski og Portisch
gerðu stutt jafntefli. Tal og Timman
tefldu hálfgerða hraðskák eftir Pet-
roff-vörn og áður en tveir tímar
voru liðnir voru allir menn þeirra
famir af borðinu nema kóngamir,
hrókamir og þrjú peð hjá hvomm
og þá sömdu þeir jafntefli. Ein-
hveijir héldu þvi fram að þeir hefðu
teflt jafnteflateoríu sem Rússar
hafa þróað þegar þeir vilja gera
jafntefli án þess að það líti of grun-
samlega út.
Helgi og Jóhann tefldu skemmti-
lega skák þar sem Jóhann fómaði
skiptamun fyrir kóngssókn. Helgi
tefldi vömina síðan vel og þótt Jó-
hann reyndi að finna vinningsleið
varð hann að gefast upp við það
og jafntefli varð raunin.
Eftir að Tal og Timman höfðu
gert jafntefli gat Viktor Kortsnoj
orðið einn í öðru sætinu með því
að vinna Jón L. Lengi vel leit líka
út fyrir sigur Kortsnojs en rétt áður
en skákin átti að fara í bið lék
Kortsnoj henni af sér og eftir tæpa
60 leiki varð Kortsnoj að leggja
niður vopnin. Þetta var annar sigur
Jóns á 2.600 stiga manni í mótinu
og hann endaði í mjög góðu sæti,
7.-8., með 50% vinninga.
Lengsta skák umferðarinnar var
milli Margeirs og Ljubojevics. Mar-
geir hafði lengst af betri stöðu og
hafnaði meðal annars jafnteflisboði
Júgóslavans. Það þótti mönnum
karlmannlega gert af Margeiri því
flestir hefðu búist við að hann yrði
sín 2. og 3. verðlaununum með því
feginn að ljúka mótinu sem fyrst.
Um það bil sem skákin átti að fara
í bið virtist Margeir missa aðeins
þráðinn, og eftir að þeir félagar
höfðu teflt 20 leiki í viðbót sættust
þeir á skiptan hlut.
Átti þetta inni
„Ég átti þetta inni eftir tapið
gegn Timman," sagði Jón L. Áma-
son um síðustu skákir sínar tvær
en í þeim vann hann Ljubojevic og
Kortsnoj.
Jón sagðist hafa byijað mótið af
mikilli leikgleði en eftir herfilegt tap
gegn Timman, eftir að hafa misst
niður gerunna stöðu í tímahraki,
sagðist hann hafa misst þráðinn og
ekki náð sér á strik fyrr en í síðustu
Margeir Pétursson og Ljubojevic.
umferðunum, þótt sigurinn yfír
Kortsnoj yrði að flokkast undir
heppnissigur.
Jón sagðist samt vera mjög án-
ægður með mótið sem hefði verið
mjög skemmtilegt og ágætis æfing
fyrir íslensku skákmennina.
Hefði getað sargað
fleirijafntefli
„Ég hefði getað sargað fleiri
jafntefli ef ég hefði reynt það,“
sagði Margeir Pétursson, en honum
gekk ekki sem best á IBM-skákmót-
inu.
Margeir sagði að tímamörkin á
mótinu hefðu ekki átt allskostar við
sig, og hann hefði yfirleitt leikið
af sér skákunum milli 40. og 45.
leiks í tímahraki. Síðan hefði það
komið í ljós að hann var alls ekki
í nægilega góðu formi.
„Það er alveg ljóst að ef á að
ná árangri á mótum sem þessum
þýðir ekkert annað en að vera at-
vinnumaður í skák,“ sagði Margeir
að lokum.
Jón L. Árnason og Víktor Kortsnoj.
Einar Falur
Ný reynsla að vinna
skákmenn með
yfir 2600 stig
„ÞETTA var góð reynsla að tefla á
IBM-skákmótinu og það verður að
halda fleiri mót af þessum styrk-
leikaflokki hér, við stöndum okkur
þá betur næst,“ sagði Jóhann Hjart-
arson þegar Morgunblaðið hitti
hann að mótinu loknu.
Jóhann sagði að mótið hefði ve-
rið mjög erfitt og þar hefði aldrei
verið hægt að slappa af í neinni
skák. Þó hefði það verið uppörvandi
að vinna Kortsnoj og Short, því það
væri sér ný reynsla að vinna skák-
menn sem hafa yfir 2600 stig.
Jóhann sagði að vafalaust hefðu
íslensku skákmennirnir verið undir
meiri pressu en ella þar sem þeir
tefldu á heimavelli. “Það var einnig
mikið meira ónæði fyrir mótið en
ég hef kynnst áður,“ sagði hann.
“Við höfðum varla tíma til skák-
rannsókna því það var alltaf eitt-
hver ágangur og ónæði,“ sagði
Jóhann.
Jóhann vildi að lokum koma á
framfæri þakklæti til IBM fyrir að
halda mótið og sagðist vona að fyr-
irtækið stæði fyrir fleiri slíkum
mótum í framtíðinni.
Veisla fyrir
skákáhugamenn
„ÉG býst við að þetta mót hafi
verið veisla fyrir skákáhugamenn á
íslandi og það hlýtur að hafa verið
ánægjulegt að fá að sjá þessa menn
eins og Kortsnoj og Short tefla hér
á landi, þótt okkar frammistaða
hafi sjálfsagt valdið einhveijum
vonbrigðum,“ sagði Helgi Ólafsson
við Morgunblaðið að IBM- skákmót-
inu loknu.
Helgi sagðist þó vonast til að
fólk sýndi íslensku skákmönnunum
þolinmæði þótt þeir hefðu ef til vill
ekki staðið undir björtustu vonum.
“Það var við ramman reip að draga
því mótið var geysilega sterkt og
ég held að þeir sem hafa löggilt
skákvit hafi áttað sig á því. Og
þótt ég sjálfur hafi verið í friðsam-
asta lagi má ekki gleyma því að
hinir unnu góða sigra,“ sagði Helgi.
Helgi var spurður að því hvort
það væri ekki mikil pressa fyrir þá
að tefla á mótum hér á landi, sérs-
taklega þeim sem vekja jafn mikla
athygli og IBM- skákmótið. Helgi
viðurkenndi að það fylgdi því ákveð-
ið álag og honum sjálfum hefði
ekki gengið vel hér á lokuðum,
sterkum mótum. Hinsvegar væri
sjálfsagt hvergi betra að tefla en
hér þegar vel gengur.
Helgi sagði að lokum að sér fynd-
ist það vera mjög ánægjulegt
framlag IBM að standa fyrir skák-
mótinu og vonandi yrði framhald á
slíku.
GSH
Skiptamunsfórnin nægði aðeins til jafnteflis
Augu áhorfenda á Loftleiða-
hótelinu beindust fljótt að skák
Jóhanns Hjartarsonar og Helga
Ólafssonar. Jóhann virtist ná
öruggu frumkvæði út úr byij-
uninni og nældi í vænlegt peð
úr höndum Helga. Ekki lét
hann þar staðar numið, því
skiptamunsfórn fylgdi í kjöl-
farið og náði hættulegri sókn
að kóngi Helga.
Útlitið virtist dökkt, en Helga
tókst að bæta úr lekanum og kom-
ast út í endatafl þar sem Jóhann
hafði þijú peð í bætur fyrir skipta-
muninn. Möguleikarnir voru hans,
en líklega hefur hann teflt óná-
kvæmt því skömmu síðar tók hann
jafntefli með þráskák.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Helgi Ólafsson
Drottningarbragð
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3
- d5 4. Rc3 - Be7 5. Bg5 -
h6 6. Bxf6 - BxfG 7. e3 - 0-0
8. Hcl - c6 9. Bd3 - Rd7 10.
0-0 dxc4 11. Bxc4 - e5 12. h3
- exd4 13. exd4 — Rb6 14. Bb3
- Bf5
(Þeir kumpánar Karpov og
Kasparov eru miklir áhrifavaldar
í skákbyijunum, og svona hafa
teflst ófáar skákir þeirra. Helgi
sat raunar andspænis Kasparov í
sömu byijun í Dubai og hefur
væntanlega lært sína lexíu.)
15. Hel - a5 16. Re5!?
(Hvassari leikur en 16. a3, en
þannig tefldi Helgi í Wijk aan Zee
fyrir skömmu.)
16. - a4?!
(Helgi grípur til róttækra að-
gerða og fómar peði, en veitist
torvelt í framhaldinu að sýna fram
á réttmæti peðsfórnarinnar. 16. —
Bxe5 var ákjósanlegra.)
17. Rxa4 — Rxa4 18. Bxa4 —
Be6 19. Bc2
(Peðastaða hvíts er eitlítið tæt-
ingsleg, en í staðinn hyggur hvítur
á sókn að kóngi svarts.)
19. - He8 20. Dd3 - g6 21.
Hcdl
(21. Rxg6 dugir skammt vegna
21. — Dxd4 og svartur heldur
sínu.)
21. - Bxe5 22. Hxe5 - Bf5?
(Snjall leikur var til staðar. 22.
- Hxa2! 23. Hxe6 - Hxe6 24.
Bb3 - Hxb2 25. Bxe6 - Df6!
og svartur heldur sínu, eins og
uppgötvaðist eftir skákina.)
23. Hxf5!
(Skákin myndi einfaldlega leys-
ast upp í jafntefli ef möguleiki
þessi væri ekki í stöðunni. Helga
var vart hugað líf meðal áhorf-
enda þegar hér var komið sögu,
en hann verst með ágætum.)
23. — gxf5 24. Dxf5 — Dg5 25.
Dh7+ - Kf8 26. Bb3 - Df6 27.
Hd3 - Dg6
(Þvingar fram endatafl vegna
ásetnings á hrókinn á d3. Eftir
27. - Hel+ 28. Kh2 - Dxf2 29.
Hf3 vinnur hvítur hins vegar.)
28. Dxg6 - fxg6 29. Hf3+ -
Kg7 30. Hf7+ - Kh8 31. Hxb7
- Hel+ 32. Kh2 - He2 33. Hc7
(Vinningsmöguleika var frekar
að leita eftir 33. Kg3. Svörtum
tekst nú að skipta upp á peðum
og Jóhann ákveður að þvinga
fram jafnteflið.)
33. - Hxf2 34. Hxc6 - Kg7 35.
Hc7+ - Kh8 36. Hc6 - Kg7
37. Hc7+ jafntefli.
Svartur heldur jafntefli eftir
37. - Kh8 38. d5 - Hxd6 39.
d6 Hd8 en hvítur hefur alla mögu-
leikana, svo óþarfi var að semja
strax um jafntefli.
Skák Korchnois og Jóns L.
Ámasonar hélt áhorfendum í helj-
argreipum allt fram yfir venjuleg
tímamörk. Korchnoi náði þægi-
legri stöðu úr byijuninni, en
tímanotkun var óhófleg hjá báð-
um aðilum. Korchnoi varð fóta-
skortur i mjög flókinni stöðu og
í gífurlegu tímahraki sneri Jón
skemmtilega taflinu sér í hag.
Kóngur Korchnois fór í langferð
um miðborðið, og þegar tíma-
mörkunum var náð var ljóst að
stórfellt liðstap lá fyrir hjá áskor-
andanum gamla.
Hvítt: Viktor Korchnoi
Svart: Jón L. Árnason
Enskur leikur
1. c4 - e5 2. g3 - d6 3. d4 -
exd4 4. Dxd4 — Rf6 5. Bg2 —
g6 6. De3+ - Be7 7. Rh3 - 0-0
8. Rf4 - c6 9. 0-0 Rbd7 10. b3
- a5 11. Rc3 - He8 12. Dd2 -
Rc5 13. Ba3 - Rfd7 14. Hadl
- Bf8 15. Dc2 - Bb6 16. Hd2
- Rf6 17. Bb2 - Bf5 18. Dcl
- Rfd7 19. Rdl - Re5 20. Re3
- Bc8 21. Bc3 - Dc7 22. Hfdl
- Re6 23. Bal - Rg7 24. Dc3
- Rf5 25. Rxf5 - Bxf5 26. e4
- Bg4 27. f3 - Bc8 28. Khl -
f5 29. c5 — dxc5 30. Rd3 — Bg7
31. Rxc5 - De7 32. f4 - Rg4
(Sjálfsagt var 44. Hd8+ en
tímahrakið tók nú alvarlegan toll
af gæðunum.)
44. - Dg2+ 45. Kd4 - Hg8 46.
Re6 - Hd2+
(Korchnoi setur snjalla brellu.
46. — Bxe5+ 47. Kxe5 Hxg4 48.
Hd8+ og mátar.)
47. Kc4
Nú byijar ballið fyrir alvöru.
34. h3 — gxf4 35. hxg4 —
Báðir keppendur vom í miklu
tímahraki og enginn vissi hvemig
staðan var.
35. - fxg3 36. gxf5 - Bxf5 37.
Dc4+ — Kh8 38. Bf3 — Dg5 39.
Kg2? -
Grófur afleikur, sem gladdi
áhorfendur. Eftir 39. De2 eða 39.
He2 er ekki að sjá, að svartur
hafi nægilegt spil fyrir manninn.)
39. - Dh6 40. Bg4 - Dh2+ 41.
Kf3 - Bxg4+ 42. Dxg4 - Hf8+
43. Ke4 - Hf2—44. Hd7?
hendur og stöðvuðu taflið uns
keppendur höfðu ritað niður leiki
sína. Jón tók sér nú góðan um-
hugsunarfrest og fann öruggan
vinning.)
47. - Hxd7 48. Hxd7 - Dc2+
49. Bc3 - b5+ 50. Kd4 - Bxe5+
51. Kxe5 — Hxgl 52. Bd4 —
De4+ 53. Kf6 - Dg6+ 54. Ke7+
— Hxdl 55. Rxd4 — g2 og
Korchnoi gafst upp.
Endasprettur Jóns var sérlega
glæsilegur á mótinu. Hann lagði
stórmeistarana Ljubojevic og
Korchnoi í síðustu tveimur um-
ferðunum og stóð sig best hinna
íslensku stórmeistara.