Morgunblaðið - 04.03.1987, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987
Stj órnarf rumvarp
um fangelsi og
fangavist:
Vinnuhæli
lögð niður
Menn verða ekki
settir inn vegna
meðlagsskulda
í FRUMVARPI til laga um fang-
elsi og fangavist, sem dómsmála-
ráðherra lagði fram á Alþingi í
gær, er mörkuð ný stefna i fang-
elsismálum. Vinnuhæli eru m.a.
felld niður, sem sérstök tegund
fangelsis. Samkvæmt þvi verður
ekki heimilt að setja þá inn, sem
skulda meðlag og barnalífeyri. I
reynd hafa slíkir aðiiar ekki ve-
rið vistaðir á vinnuhælum frá því
upp úr 1970, en það er þó heim-
ilt samkvæmt gildandi lögum.
I frumvarpinu er gert ráð fyrir
því, að fangelsi verði af tvennu tagi:
afplánunarfangelsi og gæsluvarð-
haldsfangelsi. Hið fyrmefnda
kemur í stað ríkisfangelsis, vinnu-
hælis og unglingavinnuhælis
samkvæmt núgildandi lögum.
í frumvarpinu eru ákvæði um
sérhæfða þjónustu, sem veita skal
í fangelsum. Þar er um að ræða
heilbrigðisþjónustu, félagslega
þjónustu og prestsþjónustu. Gert
er ráð fyrir því, að Skilorðseftirlit
ríkisins í núverandi mynd verði lagt
niður, en sett á fót stofnun, er yfir-
taki verkefni þess og hafi að auki
með höndum félagslega þjónustu
við fanga og núverandi skjólstæð-
inga Skilorðseftirlitsins.
Þá eru í fmmvarpinu ákvæði um
ýmis grundvallarréttindi fanga, sem
ekki hafa verið lögfest áður.
MMAGI
Úr upptökusal Stöðvar 2. Er erlent efni stöðvarinnar of mikið í hlutfalli við innlent?
Endurskoðun útvarpslaga haf in:
Menmngarsjóður úrvarps-
stöðva verði lagður niður
10% auglýsingatekna sjónvarpsstöðva renni milli-
liðalaust í innlenda dagskrárgerð
SVERRIR Hermannsson,
menntamálaráðherra, sagði á
Alþingi í gær, að hann myndi
leggja það til við nefnd, sem fa-
lið hefur verið að endurskoða
útvarpslögin, að ákvæði um
menningarsjóð útvarpsstöðva
falli á brott. í stað þess verði
gert um það samkomulag milli
menntamálaráðuneytis og sjón-
varpsstöðva, að 10% af auglýsin-
gatekjum hverrar stöðvar fari
til innlendrar dagskrárgerðar
viðkomandi stöðvar.
Ráðherra lét þessi ummæli falla
í tilefni fyrirspurnar frá Ástu Ragn-
heiði Jóhannesdóttur, varaþing-
manni Framsóknarflokksins, um
erlent dagskrárefni íslenskra sjón-
varpsstöðva. I máli Ástu Ragn-
heiðar kom fram, að könnun á efni
íslenskra sjónvarpsstöðva á tímabil-
inu 28. nóv. til 18. des. s.l. hefði
leitt í ljós að 47% efnis ríkissjón-
varpsins væri innlent en 13,5% efnis
Stöðvar 2. Hæsta hlutfall innlends
efnis hjá ríkissjónvarpinu á þessum
tíma hefði verið 74% en 34% hjá
Stöð 2. Lægsta hlutfall innlends
efnis hjá Stöð 2 hefði verið 3,3%.
Þá sagði þingmaðurinn, að 70%
af erlendu efni ríkissjónvarpsins
væri engilsaxneskt (með ensku tali)
en 100% af erlendu efni Stöðvar
2. Hún spurði, hvort þetta væri
ekki of einhæft. Getur þetta ekki
haft áhrif á málþroska og hugsun
ólæsra barna? spurði hún. Þingmað-
urinn minnti á ákvæði útvaipslaga,
þar sem segir að útvarpstöðvar
skuli stuðla að almennri menningar-
þróun og efla íslenska tungu. Hún
taldi, að upplýsingamar um hlut-
fall hins erlenda efnis sýndu að við
þetta væri ekki staðið.
Sverrir Hermannsson,
menntamálaráðherra, sagði, að í
lögum væru engar heimildir til þess
að hafa afskipti af dagskrágerð
útvarpstöðva eða mæla fyrir um
hlutföll innlends og erlends efnis.
Hins vegar kvaðst hann vilja beita
sér fyrir aukinni innlendri dagskrár-
gerð með þeirri breytingu á gildandi
útvaipslögum, að menningarsjóður
útvarpstöðva verði lagður niður og
stöðvarnar ráðstafi sjálfar milliliða-
laust 10% af auglýsingatekjum
sínum til innlendrar dagskrárgerð-
ar. Hann sagðist hafa skipað nefnd
til að endurskoða útvarpslögin og
hefði henni m.a. verið falið að vinna
að þessari breytingu. Ákvæði um
menningarsjóð útvarpsstöðva yrðu
hins vegar ekki felld brott fyrr en
lokið væri heildarskoðun útvarp-
slaganna.
Varnarliðsframkvæmdir næstu tvö, þrjú árin:
Kostnaður við framkvæmd-
ir tæpir 60 milljónir dala
Skýrsla um utanríkismál
Árleg skýrsla Matthíasar Á
Mathiesen, utanríkisráðherra, til
Alþingis um utanríkismál var
lögð fram á Alþingi í gær. Skýrsl-
an er í sjö meginköflum, auk
inngangs: 1) Inngangur (stefnu-
yfirlýsing ríkisstjórnar), 2)
Einstök alþjóðamál (afvopnun og
ráðstefna um öryggi Evrópu), 3)
Alþjóðstofnanir og svæðasam-
vinna (Sameinuðu þjóðirnar,
Atlantshafsbandalagið, Evrópur-
áðið, Norðurlandasamvinna), 4)
Málefni fjarlægra heimshluta, 5)
Utanríkisviðskipti, 6) Þróunar-
samvinna, 7) Oryggis og varnar-
mál (Varnarmálaskrifstofa,
ríkisstofnanir á varnarsvæðum,
varnarliðið, verklegar fram-
kvæmdir), 8) Hafréttarmál.
í kaflanum nýjar framkvæmdir
á vegum vamarliðsins er talað um
l)yg,K>nKu 300 fermetra húsnæðis
fyrir skrifstofu varnarliðsins, 400
fermetra félagsheimili, 550 fer-
metra húsnæði fyrir fjármála- og
bókhaldsdeild flughersins, vega-
gerð, bifreiðastæði og fráveitur
fyrir 250 íbúða hverfí, 250 íbúðir,
verkstæði við flugskýli, tvær varar-
afstöðvar við byggingu kafbátaeft-
irlitsins, framhaldsframkvæmdir
við flughlað, akstursbrautir og flug-
vallarveg vegna nýju flugstöðvar-
innar og viðgerð á eldri aksturs-
brautum.
Kostnaður við ofangreindar
framkvæmdir greiðist af Banda-
ríkjamönnum, nema viðgerð á eldri
akstursbrautum, sem Atlantshafs-
bandalagið greiðir.
Áætlaður kostnaður við þessar
framkvæmdir er um 59 milljónir
dollara, en endanlegt verð miðast
við samningsgerð sjóhersins við ís-
lenzka aðalverktaka. Framkvæmdir
þessar, sem heimilaðar vóru 1987,
taka 2 - 3 ár, og skriður kemst
væntanlega á þær upp úr miðju
sumri. íslenzkir aðalverktakar hafa
og fengið nokkur stór viðhaldsverk-
efni við vegi, bifreiðaverkstæði,
flugvallarbrautir, vatnsdreifikerfí
og viðhald á möstrum. Áætlaður
kostnaður er um 11 milljónir dala.
Áætlað er að fyrirtækið annist
framkvæmdir, nýframkvæmdir og
viðhald, árið 1987 fyrir u.þ.b. 56
milljónir dala.
í fyrirspumartímanum á Alþingi
í gær var einnig fjallað um framtíð
Rásar 2. Menntamálaráðherra
sagði, að ákvæði um starfrækslu
hennar væri að fínna í útvarpslög-
unum og í samræmi við það yrði
unnið. Hann kvað nú standa yfir
endurskoðun á dagskrárstefnu Rás-
ar 2, en fyrirhugað væri að styrkja
hana sem auglýsingamiðil í sam-
keppni við einkastöðvarnar. Við
umræðurnar upplýsti Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, að halli á
rekstri Ríkisútvarpsins hefði numið
150 milljónum króna á síðasta ári.
Það er nokkru hærri upphæð en
áður hefur komið fram. Hún gagn-
rýndi harðlega, að stofnunin hefði
verið svipt tekjum af aðflutnings-
gjöldum viðtækja og sagði að ýmsir
forystumenn Ríkisútvarpsins, sem
standa ættu vörð um stofnunina,
hefðu brugðist.
Þingsályktunartillaga:
Vemdun fjölsóttra ferðamanna-
staða í byggð o g óbyggðum
„Alþingi ályktar að skora
á ríkisstjórnina að setja við-
hlítandi reglur um um-
gengni og akstur
ferðamanna í byggðum og
óbyggðum Islands. - Mark-
mið þeirra reglna verði að
koma í veg fyrir spjöll á
náttúru landsins og veita
fjölsóttum en viðkvæmum
ferðamannastöðum á há-
lendinu fullnægjandi
vernd, m.a. með bættri
dvalaraðstöðu og ítölu ef
þurfa þykir. Jafnramt verði
kveðið skýrar en nú á um
viðurlög við spjöllum á sér-
stæðum náttúruminjum og
töku og útflutningi sjald-
gæfra jurta og steinateg-
unda sem hér finnast“.
Þannig hljóðar tillaga til
þingsályktunar sem fjórir
þingmenn Sjálfstæðisflokks
flytja: Gunnar G. Schram,
Guðmundur H. Garðarsson,
Eggert Haukdal og Kristín S.
Kvaran.
I greinargerð er lýst vax-
andi áhyggjum vegna örtraðar
og landspjalla sem stafa af ört
vaxandi ásókn ferðafólks, inn-
lends og erlends, á viðkvæm
svæði í byggðum og óbyggð-
um landsins.