Morgunblaðið - 04.03.1987, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MARZ 1987
49
Fastan 1 Hall-
grímskirkju
MEÐ öskudegi hefst sjö vikna
fasta þegar kirkjan minnist sér-
staklega pínu og dauða frelsar-
ans, fylgir í anda krossferli hans.
Um aldir hefur íslenska þjóðin
notið samfylgdar og leiðsagnar
Passíusálmanna um föstutímann,
og notið þar ómæidrar blessun-
ar. Svo er enn, sem betur fer.
Um margra ára skeið hefur sá
háttur verið hafður á í Hallgríms-
kirkju, að Passíusálmarnir hafa
verið lesnir þar við daglegar kvöld-
bænir alla virka daga föstunnar,
nema iaugardaga kl. 18.00. Þetta
hafa verið kyrrlátar helgistundir í
lok vinnudags, þar sem auk lesturs
Passíusálms er gjarna leikið á orgel
og flutt stutt bænagjörð. Nú er i
fyrsta sinn boðað til slíkra bæna-
stunda í Hallgrímskirkju hinni nýju
og er von og bæn okkar, að fegurð
og tign helgidómsins laði fólk að
til þess að eiga þar helga stund við
íhugun þess dýrmæta boðskapar,
sem Passíusálmarnir flytja.
Föstumessur verða auk þess á
hverju miðvikudagskvöldi föstunn-
ar, í fyrsta sinni nú í kvöld kl.
20.30. Að þessu sinni mun sr. Karl
Sigurbjömsson prédika og Mótt-
ettukór Hallgrímskiriqu syngja,
undir stjóm Harðar Askelssonar
organista.
Við nokkrar föstumessur um
Hópurinn sem tekur þátt í sýningu Leikfélags Flateyrar á Orðabelgnum
þessa föstu munu væntanlega
nokkrir aðrir söfnuðir höfuðborgar-
innar koma í heimsókn í Hallgríms-
kirkju og syngja með prestum
sínum og söngliði og organistum
föstumessu í minningarkirkju
passíusálmaskáldsins.
Þess skal jafnframt getið að
Hallgrímskirkja er opin alla daga
nema mánudaga kl. 10.00 til 18.00
og em allir velkomnir til að skoða
kirkjuna og njóta kyrrðar helgi-
dómsins til bænar og íhugunar.
Sóknarprestar
Hallgrímskirkju.
Leikfélag Flateyrar:
Frumsýnir Orðabelginn - eða
sög’una af Þorsteini karlssyni
eftir Brynju Benediktsdóttur
LEIKFÉLAG FLATEYRAR
frumsýnir „Orðabelginn — eða
Stjóra félagsins, frá vinstri Lára V. Júlíusdóttir lagalegur rápgjafi félagins, Kristín Waage þjóðfélags-
fræðingur, Kristín Snæfells Arnþórsdóttir formaður, Helga Ágústsdóttir rithöfundur, Anna Þorgríms-
dóttir deildarsijóri og Elsa Guðmundsdóttir læknanemi.
Félagið K.O.N.A.N. stofnað:
Rekstur á sérstökum áninga-
stað fyrir konur hafinn
STOFNAÐ hefur verið félagið
K.O.N.A.N., í þeim tilgangi að
reka áningastað fyrir konur, sem
hafa verið í meðferð vegna vímu-
gjafaneyslu og þurfa stuðning til
að takast á við lifið á nýjan leik.
Heimili eru til fyrir karlmenn
og á vegum Félagsmálastofnun-
ar Reykjavíkurborgar eru sex
pláss á áningastöðum ætluð kon-
um.
í ræðu sem Helga Ágústsdóttir
rithöfundur flutti á stofnfundi fé-
lagsins sagði hún meðal annars, að
konur yrðu engu að síður en karl-
menn vímuefnaneytendur. Þær
Fjöltefli Tals og
Polúgaevskís
SOVÉSKU stórmeistararnir,
sem teflt hafa undanfarnar vik-
ur á IBM-skákmótinu í
Reykjavík, þeir Mikhaíl Tal
fyrrum heimsmeistari og Lév
Polúgaevskí, tefla fjöltefli á
vegum félagsins MÍR, Menning-
artengsla íslands og ráðsljórn-
arríkjanna, í samkomusal
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins Borgartúni 18 í kvöld
4. mars.
Taflið hefst kl. 20.00, en húsið
verður opnað kl. 19.00. Þátttak-
endur þurfa að hafa með sér töfl.
söguna af Þorsteini karlssyni,“ í
kvöld. Hér er um að ræða nýtt
islenskt verk eftir Brynju Bened-
iktsdóttur. Leikstjóri er Oktavía
Stefánsdóttir, en hún hefur einn-
ig hannað alla búninga og
leikmuni.
Baráttuhátíð
vinstri manna
í háskólanum
Félag vinstrimanna í Háskóla
íslands heldur „baráttuhátíð". „í
fréttabréfi frá félaginu segir að þau
Bergþóra Ingólfsdóttir, ísak Harð-
arson, Kristín Ómarsdóttir og
Guðbergur Bergsson lesi úr verkum
sínum. Guðrún Hólmgeirsdóttir og
félagar flytji vísnasöng og Sif
Ragnhildardóttir bregði sér í gervi
Marlene Dietrich. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Össur Skarphéðins-
son flytja ávarp og Runólfur
Ágústsson, efsti maður á B-listan-
um, lista Félags vinstrimanna,
flytur barátturæðu. Þá mun hljóm-
sveitin Grafík taka við og flytja
tónlist til klukkan tvö eftir mið-
nætti. Kynnir kvöldsins verður
Edda Pétursdóttir og dagskráin
hefst klukkan 21.15.“
legðu hinsvegar meira á sig við að
dylja neyslu sína. Sex pláss á án-
ingastöðum eftir meðferð á stofnun
nægðu engan veginn til að sinna
þeim konum sem þyrftu á stuðningi
að halda áður en tekist er á við
lífsbaráttuna á ný. „Við hugsum
okkur þetta rekið sem heimili, ekki
stofnun eins og það orð skilgreinist
í hugum flestra. Konurnar stunda
vinnu, greiða sín húsaleigu og fæði,
njóta stuðnings og uppbyggingar
innan veggja heimilisins, jafnt hver
hjá annarri sem af hálfu þess starfs-
fólks er þar verður,“ sagði Helga.
Skilyrði fyrir að kona geti dvalist
á heimilinu er að hún hafi verið í
afvötnun og meðferð, og að hún
skuldbindi sig til að dvelja tiltekinn
lágmarkstíma á heimilinu, hlýti
húsreglum og notfæri sér af
fremsta megni allan stuðning og
leiðsögn sem til boða stendur.
Skráning stofnfélaga stendur til
10. mars og gíró-reikningur félags-
ins er 2626 í Breiðholtsútibúi;
Verslunarbanka íslands.
WIKA
Þrýstimælar
Allar stæröir og gerðir
SöiLQffflaayigjwiff'
Vesturgötu 16, sími 13280
Mikið er af söngvum í leikritinu,
bæði íslenskum og erlendum þjóð-
lögum, eftir Megas og fleiri, en
Brynja kveðst hafa haft hann, auk
annárra, í huga við samningu verks-
ins. Lokasöngurinn er eftir Atla
Heimi Sveinsson og er hann sérs-
taklega saminn fyrir þessa sýningu,
svo hér verður um frumflutning að
ræða á því tónverki.
í spjalli við Morgunblaðið sagði
Brynja að leikendur væru 23 tals-
ins, auk þess sem fímm strákar frá
Flateyri, hljómsveitin Gismó, sæju
um alla hljómlist í sýningunni.
„Kynslóðabilið er ekki að þvælast
fyrir þeim,“ sagði Brynja, „því leik-
aramir eru á öllum aldri, frá 13
ára og upp úr.“
Fjórar sýningar eru fyrirhugaðar
á Flateyri, en síðan er ætlunin að
sýna leikritið á nærliggjandi stöð-
um, til dæmis Bolungarvík, ísafirði,
Þingeyri, Bíldudal og Patreksfirði.
Formaður Leikfélags Flateyrar er
Sigrún Gísladóttir, hjúkrunarfræð-
ingur.
FRUM-
SÝNING
frumsýnir í dag
myndina
Egermestur
já nánaraugl. annars
staöar i blaöinu.
FRUM-
SÝNING
Bíóhöllin
frumsýnir í dag
myndina
Njósnarinn
Sjá nánaraugl. annars
staöar i blaöinu.