Morgunblaðið - 20.03.1987, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1987
Skoðanakönnun Evrópubandalagsins:
Helmingur Evrópubúa
vill sameinaða Evrópu
FLESTIR Evrópubúar efast um
að Evrópa verði orðin að risa-
veldi árið 2000 samkvæmt
skoðanakönnun, sem birt var á
miðvikudag. Tveir af hveijum
þremur, sem spurðir voru, kváð-
ust aftur á móti hlynntir því að
Evrópubandalagið yrði sterkara
og stjómarhættir í Evrópu með
sama hætti og í Bandaríkjunum.
Brubeck
til Sovét-
ríkjanna
Spurt var hvort leiðtogi Evrópu-
stjórnar yrði, ef til þess kæmi, jafn
valdamikill og leiðtogar Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna. 44
prósent aðspurðra sögðu já, 35 pró-
sent nei og 21 prósent svaraði ekki.
Helmingur þeirra, sem rætt var
við, kvaðst telja að um aldamótin
myndu Evrópubúar nota Evrópu-
myntina í viðskiptum í Vestur-
Evrópu, 33 prósent töldu að svo
vrði ekki og 17 prósent voru óviss.
Helmingur aðspurðra sagðist
telja að fyrir aldamótin yrði málum
svo komið að gengið yrði til kosn-
inga um forsætisráðherra Evrópu-
bandalagsins, en 30 prósent voru
ekki á því. 57 prósent lýstu sig
reiðubúin til að greiða stjómmála-
manni frá öðru landi atkvæði sitt,
ef til þess kæmi.
47 prósent kváðust treysta Evr-
ópustjóm til að ákvarða sameigin-
lega stefnu Evrópubandalagsins í
efnahags-, utanríkis- og vamarmál-
um.
Carlos Ripa di Meana, yfirmaður
samskipta hjá Evrópubandalaginu,
sagði um könnunina að greinilegt
væri að evrópskir borgarar vildu
fremur stuðla að sameinaðri Evrópu
en stjómmálaleiðtogar í ríkjum
Vestur-Evrópu.
11.920 menn voru spurðir í könn-
uninni, sem gerð var af tilefni þess
að 25. mars eru þijátíu ár liðin frá
því að stofnsamningur Evrópu-
bandalagsins var undirritaður í
Róm.
Bandaríkin:
Reuter
Michael Deaver, fyrrum aðstoðarstarfsmannastjóra Hvíta hússins.
Washington, Reuter.
KVARTETT Daves Brubeck
heldur til Sovétríkjanna í
hljómleikaferð síðar f þessum
mánuði, að því er upplýsinga-
stofnun Bandaríkjanna greindi
frá í gær. Að sögn er ferðin
hluti af samskiptum Banda-
rikjamanna og Sovétmanna í
menningarmálum.
Jazzkvartettinn, sem kom
hingað á listahátíð síðasta sum-
ar, heldur fímm tónleika í
Moskvu, þijá í Tallinn, höfuðborg
Eistlands, og fímm í Leníngrad.
„Þegar tillit er tekið til þess
gífurlega áhuga, sem er á jazz-
tónlist í Sovétríkjunum, ætti
hljómleikaferð Daves Brubeck að
jafnast á við það þegar Vladimir
Horowitz [píanóleikari brottflutt-
ur frá Sovétríkjunum] sneri aftur
á síðasta ári við mikinn fógnuð,“
sagði Stephen Rhinesmith, sem
er fulltrúi Bandarílqamanna í
menningarsamskiptum við Sovét-
menn. Stórveldin gerðu samning
um slík samskipti árið 1985.
Deaver ákærður fynr
meinsæri o g siðblindu
WaBhington, AP, Reuter.
MICHAEL Deaver, fyrrum að-
stoðarmaður Bandarlkjaforseta,
hefur verið stefnt fyrir rétt.
Deaver er gefið að sök að hafa
logið að háttsettum bandarískum
embættismönnum er hann rak
erindi viðskiptavina sinna í Was-
hington.
Deaver, sem er gamall vinur
bæði Ronalds Reagan Bandaríkja-
forseta og Nancy konu hans, er
sakaður um að hafa sagt ósatt er
hann bar vitni fyrir þingi og kvið-
dómi, sem rannsakaði viðskipti
hans.
Deaver gaf út tilkynningu þar
sem hann neitaði að hafa gerst sek-
ur um meinsæri og spáði því að
hann yrði sýknaður í réttarhöldun-
um.
„Vitnisburður minn um öll þessi
atriði var sannleikanum samkvæm-
ur og réttur að því er ég best veit
og man,“ sagði í tilkynningunni.
„Eg hafði enga ástæðu til að ljúga
því að ég hafði ekkert brotið af
mér.“
Við blaðamenn sagði hann: „Fyr-
ir tíu mánuðum var skipuð sjálfstæð
nefnd til að rannsaka ásakanir um
að ég hefði brotið lög um hags-
munaárekstra," sagði Deaver. „í
stefnunni, sem lögð var fram í dag
er hvergi ákæra um að lög um
'nagsmunaárekstra hafí verið brotin
Ein á hundasleða
til Norðurpólsins
Ward Hunteyja, Kanada, Reuter.
SMÁVAlXIN, bandarísk kona, Pam Flowers, fertug að aldri, sem
ætlar sér að verða fyrst kvenna til að komast ein landleiðina til
Norðurpólsins, er lögð af stað á sleða dregnum af 8 hundum.
Hún lagði af stað fyrir tveimur vikum frá Ward Hunteyju i
Kanada og reiknar með að verða tvo mánuði í þessari hættuför.
í allan þann tíma verður eina
samband hennar við mannfólk, í
gegn um senditæki daglega, ef
aðstæður leyfa. Flowers þarf að
ljúka ferðinni fyrir miðjan maí því
þá verður ísinn orðinn þunnur og
erfiður yfírferðar. Fjarlægðin frá
Ward Hunteyju til Norðurpólsins
er í beinni línu 765 km. en Flow-
ers segist gera ráð fyrir að ferðast
a.m. k. 1.600 km. vegna króka
sem hún þurfí að taka. Sprungur
geta myndast í ísinn fyrirvaralítið
og geta þær orðið geysistórar.
Einnig þarf hún að krækja fyrir
hæðir því sleðinn, sem er gerður
eftir gömlum Eskimóasleðum, er
lítill (4,25m á lengd og 86cm á
breidd) og kemst ekki fullhlaðinn
(2770 kg) yfír háar hæðir.
Til að villast ekki af leið hefur
Flowers meðferðis helstu hjálpar-
tæki ferðamanna, áttavita og
sextant, en er auk þess með
stefnuvita er gerir henni kleift að
komast í samband við tvö gerfi-
tungl. Sagði hún áður en hún lagði
af stað að stefnuvitinn myndi vísa
henni á rétta leið og einnig sanna
að hún væri þar sem hún segðist
vera.
Fimbulkuldi getur ríkt á þess-
um slóðum og þegar sleðinn er á
ferð og vindhraðans gætir, getur
frostið orðið allt 100 gráður á
celsíus. Hin smávaxna Flowers,
sem er 152cm á hæð og 43 kg
að þyngd, verður því að laga at-
hafnir sínar að kuldanum eins og
öðrum ytri aðstæðum í þessari
ferð. Fæðan er hún neytir í ferð-
inni er valin með tilliti til þessa
og er sérstaklega hitaeiningarík.
Gefa þarf hundunum, sem eru af
síberískum uppruna, mat og
vökva fjórum sinnum á dag og
þar sem ekki var hægt að koma
miklum birgðum fyrir á sleðanum
verður 14-17' daga vistum fyrir
ferðalanganna varpað niður á fyr-
irfram ákveðnum stöðum á leið-
inni, ef veður leyfír!
Aðeins einn maður hefur áður
farið eins síns liðs til Norðurpóls-
ins, Japaninn Naomi Uemura, er
fórst árið 1984 er hann var að
klífa hið rúmlega 6.000 metra háa
Kinleyfjall f Aiaska, og er förin
farin í minningu hans. Flowers
segir að er hún las um hina ævin-
týralegu sleðaferð Uemura, hafí
kviknað hjá henni óslökkvandi
áhugi á heimskautaferðum. Hún
hafí selt eigur sínar og flutt til
Alaska og farið að þjálfa sjálfa
sig fyrir ferðina á Norðurpólinn.
Á undanfömum átta árum hafí
hún ferðast rúmlega 22.500 km
á hundasleða og yfírleitt verið ein
á ferð. í fyrra tók hún þátt í hinni
erfíðu 1.770 km hundasleða-
keppni þvert yfír Alaska.
Þegar heim kemur ætlar Flow-
ers að dekra svoiítið við sjálfa sig
áður en hún tekur til við að skrifa
bók um ferðina. Hún var meira
að segja svo bjartsýn á að allt
gengi vel að hún var búin að
ákveða að næst ætlaði hún að
komast ein síns liðs til Suðurpóls-
ins!
og er það staðfesting á að engin
fótur var fyrir þessum ásökunum."
Deaver sagði starfi aðstoðar-
starfsmannastjóra í Hvíta húsinu
lausu í maí 1985 til þess að hefja
rekstur fyrirtækis, sem rekur mál
þrýstihópa á þingi. Hann á yfír
höfði sér allt að 25 ára fangelsi
verði hann sekur fundinn.
Reagan gaf út yfírlýsingu þegar
tilkynnt var um ákæruna: „Mike
Deaver hefur verið vinur okkar í
20 ár. Nancy og ég mun ætíð
minnast hans með hlýhug á þessum
erfíðu tímum. Við óskum hans alls
góðs,“ sagði Reagan.
Þetta er fyrsta ákæran á hendur
háttsettum aðstoðarmanni Reag-
ans. Rannsókn hefur lengi staðið
yfír á máli Deavers. Whitney North
Seymour var skipaður sjálfstæður
saksóknari og hefur hann kannað
hvort Deaver hafí brotið lög um
hagsmunaárekstra með því að nota
sambönd sín í Hvíta húsinu til að
auka veg fyrirtækis síns.
Deaver er einnig fyrsti embættis-
maðurinn, sem ákærður er sam-
kvæmt endurbótalögum, sem sett
voru eftir Watergate-hneykslið. Þar
er saksóknurum veitt vald til að
rannsaka ef grunur leikur á að
embættismaður hafí brotið af sér
og gildir þá einu hvort hann gegnir
embætti eða gerði það.
Ákæran er upp á 18 síður og er
Deaver þar sakaður um að hafa
logið um sambönd sín í Hvíta hús-
inu og við undirmenn ráðherra til
þess að ausa vatni á myllu við-
skiptavina sinna, þ. á m. erlendar
ríkisstjómir og stór fyrirtæki.
Deaver er gefíð að sök að hafa
logið um sambönd sín er hann
reyndi að hjálpa Kanadamönnum
að ná samkomulagi við Bandaríkja-
menn um súrt regn og flugfélaginu
Trans World Airlines að komast hjá
þvi að verða keypt.
í ákærunni segir að Deaver hafí
logið að þinginu um beiðni sína til
Johns Poindexter, fyrrum öryggisr-
áðgjafa, um að koma á fundi milli
Reagans og háttsetts suður-kóresks
embættismanns. Hann er einnig
sakaður um að hafa látið undir
höfuð leggjast að segja kviðdómara
frá samböndum sínum við George
Shultz utanríkisráðherra og Robert
McFarlane, fyrrum öryggisráð-
gjafa, er hann reyndi að knýja fram
skattaívilnanir fyrir hönd Puerto
Rico.
Deaver hefur undanfarnar vikur
reynt að koma í veg fyrir ákæru á
þeirri forsendu að saksóknarinn í
málinu, sem er sérstaklega skipaður
af réttinum, væri ekki í samræmi
við stjómarskrá. Hann áfrýjaði
málinu til hæstaréttar, en William
Rehnquist dómari hafnaði beiðni
Deavers um að gefín yrði út neyðar-
skipun til að koma í veg fyrir stefnu.
Fyrirtæki Deavers var orðið mik-
ið að vöxtum og velti milljónum
dollara árlega. En hann hefur nú
misst nærri alla viðskiptavini sína
vegna umfjöllunar fjölmiðla um
rannsóknina og gæti þurft að greiða
allt að hálfa milljón dollara fyrir
lögfræðiaðstoð.
Suður-Afríka:
Sjö ungmenni myrt
í nágrenni Durban
Jóhannesarborg. AP. Reuter.
LÍK sjö svartra ungmenna, sem
höfðu verið skotin og stungin
með hnífum, fundust á þriðju-
dagsmorgun á hliðarvegi í
bænum Kwamashu í nágrenni
Durban. Ungmennin voru á aldr-
inum 15 — 17 ára.
Talsmaður upplýsingaþjónustu
ríkisstjómarinnar sagði, að líkin
hefðu öll fundist á sama stað. „Það
er eins og þama hafi farið fram
fjöldaaftaka," sagði hann. Átök
hafa oftsinnis orðið í bænum á und-
anfömum árum og hafa þar ást við
herská ungmenni og hófsamir
stuðningsmenn Zuluhöfðingjans
Mangosuthu Buthelezi.
Talsmaðurinn vildi ekki láta nán-
ari upplýsingar í té og sagði, að
lögreglan hefði rannsókn málsins
með höndum. Þó sagði hann, að
öryggisverðir væru á vakt á þessum
slóðum og hefðu þyrlu sér til full-
tingis.